Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sveitarfélög nota vatn sem féþúfu: „Ráðuneytið lítur því svo á að málinu sé ekki lokið“

Sveitarfélög nota vatn sem féþúfu: „Ráðuneytið lítur því svo á að málinu sé ekki lokið“

Sveit­ar­fé­lögin hafa lagt stund á það að nota vatns­veitur í þeirra eigu til þess að búa sér til hagnað sem er svo greiddur út sem arð­greiðslur. Það gera þau með því að ofrukka neyt­endur um vatns­gjald sem er ólög­legt. Nú liggur fyrir úrskurður sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins þess efnis, að óheim­ilt er að taka hærra gjald en nákvæm­lega það sem kostar að veita þjón­ust­una. Mannlíf hafði sam­band við Samgöngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neytið og lagði fram spurn­ingar um málið. Fyrir svörum var Þór­mundur Jón­atans­son upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins.

„Í úrskurð­inum var á hinn bóg­inn til­greint að ráðu­neytið hefði ekki heim­ild að lögum til að kveða á um end­ur­greiðslu ofgreidds vatns­gjalds og verður því að höfða einka­mál fyrir dóm­stólum vegna þeirra.“

Neytendasamtökin hafa barist ötullega í þessu máli og kallað eftir svörum og aðgerðum í þágu neytanda.  Eins og fram kemur í frétt um málið á vef samtakanna, undir yfirskriftinni Skuldar Orkuveita Reykjavíkur – vatns- og fráveita sf. notendum milljarða?, er alls ekki verið að tala um smáaura sem sveitarfélögin eru búin er að hafa af neytendum með ólögmætum hætti.

Þór­mundur Jón­atans­son upp­lýs­inga­full­trúi

 Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið

Mannlíf leit­aði svara hjá Samgöngu- og sveit­ar­stjórna­ráðu­neyt­inu við því hvort það myndi beita sér í því að skikka sveit­ar­fé­lögin til þess að greiða neyt­endum þær fjár­hæðir til baka sem búið væri að ofrukka þá um með ólög­mæltum hætti. Þór­mundur Jón­atans­son, upp­lýs­inga­full­trúi segir meðal ann­ars að ráðu­neytið hafi ekki laga­legar heim­ildir til þess að beita sér í því að sveit­ar­fé­lögin end­ur­greiði neyt­endum og verði hver og einn ein­stak­lingur að höfða mál til þess að freista þess að fá end­ur­greitt. Þá segir hann einnig að upp­lýs­ingar sveit­ar­fé­lag­anna vegna verð­skrár séu ekki full­nægj­andi og enn­fremur að ráðu­neytið hafi gefið út leið­bein­ingar þann 7. maí þar sem það hafi kallað eftir ítar­legri útskýr­ingum og hafa sveit­ar­fé­lögin frest til 30. júní til að bregð­ast við. Litið er svo á að mál­inu sé ekki lokið. Spurn­ingar Mannlífs og svör upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins má sjá hér að neðan.

 Fyrir utan að gefa út leið­bein­ingar, hyggst ráðu­neytið beita sér varð­andi það að neyt­endur fái end­ur­greiddar þær fjár­hæðir sem þeir hafa greitt umfram það sem lög gera ráð fyrir, og þá eins langt aftur í tím­ann og hægt er?

„Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið úrskurð­aði í mars 2019, í kæru ein­stak­lings vegna vatns­gjalds Orku­veitu Reykja­víkur, að álagn­ing veitu­fyr­ir­tæk­is­ins á vatns­gjaldi árs­ins 2016 væri ólög­mæt. Í rök­stuðn­ingi sínum taldi ráðu­neytið ljóst að sam­kvæmt 10. gr. laga um vatns­veitur sveit­ar­fé­laga væri með öllu óheim­ilt í gjald­skrá að ákveða hærra gjald en nemur með­al­kostn­aði af því að veita þjón­ust­una. Samkvæmt skýru orða­lagi 1. mgr. 10. gr. skuli vatns­gjaldi, ásamt öðrum tekjum vatns­veitu, aðeins ætlað að standa undir rekstri vatns­veit­unnar. Nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var því skýr um að óheim­ilt væri að taka arð af starf­semi vatns­veitu. Í úrskurð­inum var á hinn bóg­inn til­greint að ráðu­neytið hefði ekki heim­ild að lögum til að kveða á um end­ur­greiðslu ofgreidds vatns­gjalds og verður því að höfða einka­mál fyrir dóm­stólum vegna þeirra.“

„Nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var því skýr um að óheim­ilt væri að taka arð af starf­semi vatns­veitu.“

Hver og einn ein­stak­lingur þarf að sækja aurana sína til síns sveit­ar­fé­lags

Hefur ekk­ert eft­ir­lit verið við­haft sem gæti komið í veg fyrir að svona atvik eigi sér stað? Ef ekki er fyr­ir­hugað að herða á eft­ir­liti með starf­semi sem þess­ari í nán­ustu fram­tíð?

„Eftir að úrskurður lá fyrir vorið 2019 ákvað ráðu­neytið að hefja þegar í stað frum­kvæð­is­at­hugun og taka til skoð­unar gjald­skrár allra sveit­ar­fé­laga um vatns­veitur. Frum­kvæð­is­at­hugun af þessu tagi var sett af stað á grund­velli eft­ir­lits­hlut­verks ráðu­neyt­is­ins skv. 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga (nr. 138/2011). Vegna máls­ins kall­aði ráðu­neytið eftir sam­an­tekt frá öllum sveit­ar­fé­lögum um þau atriði og gögn er varða vatns­gjöld vatns­veitna í þeirra eigu (skv. 10. gr. laga um vatns­veitur sveit­ar­fé­laga, nr. 32/2004). Þau svör bár­ust og voru yfir­farin af ráðu­neyt­inu. Í leið­bein­ingum sem ráðu­neytið gaf út 7. maí sl. kemur fram að ráðu­neytið telji sam­an­tektir sveit­ar­fé­laga og vatns­veitna í þeirra eigu almennt ekki veita full­nægj­andi skýr­ingar eða upp­lýs­ingar um útreikn­inga á kostn­að­ar­liðum sem ákvarð­anir um álagn­ingu vatns­gjalda byggði á.

Ekki var hægt að ráða af þeim gögnum sem bár­ust ráðu­neyt­inu hvaða kostn­að­ar­liði sveit­ar­fé­lög og vatns­veitur í þeirra eigu legðu almennt til grund­vallar við útreikn­inga vatns­gjalds, eins og þeim beri að gera á grund­velli sjón­ar­miða sem gilda um þjón­ustu­gjöld af þessu tagi. Af því til­efni taldi ráðu­neytið rétt að gefa út leið­bein­ingar um þau atriði sem vatns­veitur eiga að hafa til hlið­sjónar við ákvörðun slíks gjalds. Ráðu­neytið fylgdi leið­bein­ingum sínum eftir með því að senda öllum sveit­ar­fé­lögum bréf í maí sl. þar sem óskað er eftir að þau og vatns­veitur í þeirra eigu yfir­fari gjald­skrár sínar í sam­ræmi við leið­bein­ing­arnar. Hafa sveit­ar­fé­lögin frest til 30. júní nk. til að upp­lýsa ráðu­neytið um þá vinnu.

Ráðu­neytið mun í fram­haldi af því meta hvort til­efni verður til að fjalla form­lega um gjald­skrár ein­stakra sveit­ar­fé­laga eða vatns­veitna á grund­velli 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, en slíkum málum getur m.a. lokið með fyr­ir­mælum ráðu­neyt­is­ins um að sveit­ar­fé­lag komi málum í lög­mætt horf, sbr. 3. tl. 2. mgr. ákvæð­is­ins. Ráðu­neytið lítur því svo á að mál­inu sé ekki lokið. Þá er ráðu­neytið ekki með til skoð­unar að breyta umræddu fyr­ir­komu­lagi á eft­ir­liti með stjórn­sýslu sveit­ar­fé­laga.“

„Ekki var hægt að ráða af þeim gögnum sem bár­ust ráðu­neyt­inu hvaða kostn­að­ar­liði sveit­ar­fé­lög og vatns­veitur í þeirra eigu legðu almennt til grund­vallar við útreikn­inga vatns­gjalds“

 Verður málið skoðað nánar og kafað dýpra ofan í þær millj­arða arð­greiðslur sem þessir aðilar hafa verið að veita sjálfum sér á kostnað neyt­enda?

„Nefna má að í lögum um vatns­veitur sveit­ar­fé­laga (nr. 332/2004) er ekki gert ráð fyrir sér­tæku eft­ir­liti með gjald­skrá vatns­veitna. Slíkt fyr­ir­komu­lag er ekki algengt í fram­kvæmd, en á við í ein­staka til­vikum, til dæmis hefur Orku­stofnun slíku hlut­verki að gegna vegna gjalda sem varða dreif­ingu raf­orku, á grund­velli raf­orku­laga, nr. 65/2003.

Í ljósi þess að ekki er kveðið á um sér­stakan eft­ir­lits­að­ila í lögum um vatns­veitur sveit­ar­fé­laga, eru stjórn­valds­á­kvarð­anir sem teknar eru á grund­velli lag­anna kær­an­legar til sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins. Ráðu­neytið hefur nokkrum sinnum fjallað um lög­mæti til­tek­inna gjalda hjá vatns­veitum sveit­ar­fé­laga í úrskurðum sínum, sem og önnur gjöld sveit­ar­fé­laga sem ekki eru kær­an­leg til ann­arra stjórn­valda. Hjá ráðu­neyt­inu liggja nú fyrir nokkrar stjórn­sýslu­kærur um ýmis gjöld sveit­ar­fé­laga, en ráðu­neytið er ekki með til skoð­unar að taka form­lega til umfjöll­unar aðrar gjald­skrár en gjald­skrár vatns­veitna á grund­velli 112. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga.“

Mannlíf mun halda áfram að fylgj­ast með þróun mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við