Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Meira frelsi: Þú mátt vera lengur á pöbbnum og fjöldatakmarkanir rýmkaðar

Meira frelsi: Þú mátt vera lengur á pöbbnum og fjöldatakmarkanir rýmkaðar
Þríeykið hefur losað um Covid hömlur frá og með mið­nætti. Mynd: Læknafélag Íslands.

Almennar fjölda­tak­mark­anir voruð liðk­aðar úr 150 í 300 manns og eins metra reglan tekur við af tveggja metra regl­unni, er meðal þeirra reglna sem við tóku í aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda á mið­nætti í nótt. Nýju regl­unar gilda í tvær vikur, til 29. júní.

Veit­inga­stöðum er heim­ilt að hleypa fólki inn til mið­nætt­is en þurfa að loka klukku­tíma síðar.

Þeim er enn gert að halda skrá yfir gesti og skylt er að bera grímur þegar eins metra ná­lægðar­tak­mörk­un verður ekki við komið. Krár, skemmti­staðir og spil­astaðir munu ekki þurfa að halda slíka skrá frá og með deg­in­um í dag en að öðru leyti gilda sömu regl­ur þar og á veit­inga­stöðum.

Lík­ams­rækt­ar­stöðvum og sund­stöðum er heim­ilt að taka við leyfi­leg­um há­marks­fjölda en þar gild­ir eins metra regl­an og lík­ams­rækt­ar­stöðvar þurfa að halda skrá yfir gesti.

300 manna há­mark gild­ir enn í hvert sótt­varna­hólf á sitj­andi við­burðum eins og íþrótta­leikj­um, sviðs­list­ar­sýn­ing­um, ráð­stefn­um, fyr­ir­lestr­um og öðrum slíku. Þar mun grímu­skylda einnig áfram gilda en eng­in krafa gerð um nánd­ar­mörk.

Sótt­varn­ar­læknir þakkar árang­ur­inn góðum árangri bólu­setn­inga auk ein­stak­lings­bund­inna sótt­varna. Hann ít­rek­ar þó að veir­an fyr­ir­finn­ist í sam­fé­lag­inu sem og hið ytra og því þurfi að fara var­lega í all­ar til­slak­an­ir.

Reglu­gerðin tekur hvorki til alþjóða­flug­valla og -hafna, né til loft­fara og skipa í milli­landa­ferðum og skipa sem stunda fisk­veiðar. Einnig tekur reglu­gerðin ekki til heil­brigð­is­stofn­ana, hjúkr­un­ar­heim­ila og ann­arra sam­bæri­legra stofn­ana, en þær skulu setja sér­reglur um sótt­varnir.

Fjölda­tak­mörkun og nálægð­ar­mörk eiga ekki við um börn sem fædd eru 2015 eða síðar og umm skóla­starf gildir sama reglu­gerð.

215 þús­und manns hafa verið bólu­settir

Fjöldi, nálægðarmörk, grímunotkun – nánar

Hámarks­fjöldi

  • Hámarks­fjöldi ein­stak­linga í sama rými eru 300 með ákveðnum tak­mörk­unum, bæði í opin­beru rými og í einka­rými.
  • Fjölda­tak­mörkun og nálægð­ar­mörk taka ekki til barna sem fædd eru 2015 eða síðar. Grímu­skylda á ekki við um börn sem fædd eru 2005 og síðar.
  • Fjölda­tak­mörk­unin gildir ekki um almenn­ingsam­göngur, hóp­bif­reiðar, inn­an­lands­flug, far­þega­ferjur og störf við­bragðs­að­ila (s.s. lög­reglu, slökkvi­liðs, hjálp­ar­liðs almanna­varna og heil­brigð­is­starfs­fólks). Einnig gildir hún ekki um störf rík­is­stjórnar, rík­is­ráðs, Alþingis, þjóðar­ör­ygg­is­ráðs og þegar dóm­stólar fara með dóms­vald sitt.

Nálægð­ar­mörk

  • Á öllum vinnu­stöðum og í annarri starf­semi þarf að tryggja 1 met­ers nálægð­ar­mörkin á milli fólks sem er ekki í nánum tengslum.

Grímunotkun

  • Grímu­skylda er þar sem ekki er unnt að tryggja 1 met­ers nálægð­ar­mörk milli ein­stak­linga sem ekki eru í nánum tengslum. Grímu­skylda á ekki við um börn fædd 2005 eða síðar.
  • And­lits­grímur skal nota þar sem hús­næði er illa loft­ræst og þar sem ekki er unnt að tryggja 1 met­ers nálægð­ar­tak­mörkun. Það á við um heil­brigð­is­þjón­ustu, inn­an­lands­flug og -ferjur, almenn­ings­sam­göngur, leigu­bif­reiðar og hóp­bif­reiðar, í verk­legu öku­námi og flug­námi, starf­semi hár­greiðslu­stofa, snyrti­stofa, nudd­stofa, húð­flúr­stofa, hunda­snyrti­stofa, sól­baðs­stofa og annarri sam­bæri­legri starf­semi. And­lits­gríma skal hylja nef og munn.
  • Und­an­þegnir grímu­skyldu eru þeir ein­stak­lingar sem fengið hafa Covid-19 og lokið ein­angrun. Jafn­framt eru þeir und­an­þegnir grímu­skyldu sem hafa ekki skiln­ing eða þroska til að nota and­lits­grímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsu­fars.

Starfsemi sem felur í sér sérstaka smithættu

Við­burðir þar sem gestir sitja:

  • Heimilt er að falla frá nálægð­ar­mörkum að því gefnu að allir gestir beri and­lits­grimu. Börn fædd 2005 og síðar eru und­an­þegin grímu­skyldu. Þátttaka allra gesta skal skráð á núm­eruð sæti þar sem fram kemur nafn, kennitala og síma­númer. Varð­veita skal skrán­ing­una í tvær vikur. Koma skal í veg fyrir blöndun milli hólfa, m.a. fyrir og að loknum við­burði.
  • Lyfja- og mat­vöru­versl­anir og aðrar versl­anir mega taka á móti fimm manns á hverja 10 m² og tryggja skal að minnsta kosti 1 meter á milli þeirra sem eru ekki í nánum tengslum.
  • Sviðs­listir, bíó­sýn­ingar og aðrir menn­ing­ar­við­burðir hafa heim­ild til að hafa allt að 150 manns á sviði, þ.e. á æfingum og sýn­ingum. Heimilt er að taka á móti allt að 300 sitj­andi gestum án nálægð­ar­tak­mark­ana og er þeim skylt að nota and­lits­grímu. Sæti skulu núm­eruð og skráð á nafn. Heimilt er að selja eða bjóða veit­ingar í hléi. Börn fædd 2015 og síðar eru ekki talin með.
  • Veit­inga­staðir þar sem heim­il­aðar eru áfeng­is­veit­ingar mega hafa opið til kl. 24 alla daga vik­unnar með að hámarki 150 gesti í rými og 1 met­ers nálægð­ar­mörkum. Allir gestir skulu skráðir á nafn, kenni­tölu og síma­númer. Vín­veit­ingar skal bera til sitj­andi við­skipta­vina. Allir gestir þurfa að hafa yfir­gefið stað­inn kl. 1.
  • Skemmti­staðir og krár mega hafa opið til kl. 24 alla daga vik­unnar með að hámarki 150 gesti í rými. Vín­veit­ingar skal bera til sitj­andi við­skipta­vina. Allir gestir skulu skráðir með nafni, kenni­tölu og síma­núm­eri. Allir gestir þurfa að hafa yfir­gefið stað­inn kl. 1.
  • Spila­kassar og spila­salir mega hafa opið til kl. 24 alla daga vik­unnar með að hámarki 150 gesti í rými. Vín­veit­ingar skal bera til sitj­andi við­skipta­vina. Allir gestir þurfa að hafa yfir­gefið stað­inn kl. 1.
  • Sund­staðir eru opnir fyrir leyfi­legan hámarks­fjölda.
  • Heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvar eru opnar fyrir leyfi­legan hámarks­fjölda gesta, en þó mega ekki vera fleiri en 300 manns í hverju rými og 1 met­ers nálægð­ar­mörk virt. Við­skipta­vinir skulu skráðir fyr­ir­fram og sótt­hreinsa skal búnað á milli not­enda.
  • Tjald­stæðum er heim­ilt að taka á móti leyfi­legum hámarks­fjölda. Gætt verði að 1 met­ers nánd­ar­reglu og grímu­skylda ef ekki verður hægt að tryggja hana. Um veit­inga­sölu á tjald­svæðum gilda sömu reglur og um veit­inga­sölu almennt.

Íþrótta­starf á vegum ÍSÍ

  • Íþróttir inni og úti, jafnt barna og full­orð­inna, eru heim­ilar. Gætt skal að sótt­vörnum og sam­eig­in­leg áhöld sótt­hreinsuð eftir notkun og þess gætt að loft­ræst­ing sé í lagi og loftað út reglu­lega.
  • Íþrótta­keppnir barna og full­orð­inna eru heim­ilar og leyfi­legt að taka á móti allt að 300 sitj­andi gestum og er þeim skylt að nota and­lits­grímu. Sæti skulu núm­eruð og skráð á nafn, kenni­tölu og síma­númer.
  • Í íþróttum sem ekki til­heyra Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bandi Íslands skal setja leið­bein­ingar eða fylgja sömu leið­bein­ingum og sam­bæri­legar íþróttir innan sam­bands­ins.
  • Vinnu­staðir, opin­berar bygg­ingar og þjón­usta
  • Tryggja þarf 1 met­ers nálægð­ar­mörk milli ein­stak­linga í sama rými og við­eig­andi hámarks­fjölda. Enginn sam­gangur má vera á milli rýma.

Sótt­varnir

  • Þrífa og sótt­hreinsa yfir­borðs­fleti eins oft og hægt er, sér­stak­lega algenga snertifleti eins hurð­ar­húna og hand­rið.
  • Tryggja þarf aðgang að hand­sótt­hreinsi við inn­ganga og í grennd við algenga snertifleti, s.s. snert­iskjái, inn­kaupa­kerrur og afgreiðslu­kassa.
  • Minna almenn­ing og starfs­menn á ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir með merk­ingum og skiltum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina