Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Móðir svipt forsjá þrátt fyrir að barnsfaðir hafi játað kynferðisbrot: „Allt í einu er ég sek“

Móðir svipt forsjá þrátt fyrir að barnsfaðir hafi játað kynferðisbrot: „Allt í einu er ég sek“
Myndin teng­ist grein­inni ekki. Mynd: Gagnasafn.

„Ég er móð­irin sem fyrir nokkrum mán­uðum síðan var svipt for­sjá, fyrir það eitt að neita að sam­þykkja umgengni án eft­ir­lits við mann sem hefur brotið kyn­ferð­is­lega gegn barn­inu mínu, ásamt tveimur öðrum börnum,“ skrifar móðir barns sem fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni var dæmd for­sjá jafnt í Hér­að­dómi og fyrir Lands­rétti.

Honum var dæmd for­sjá þrátt fyrir að vera ásak­aður um að brjóta á kyn­ferð­is­lega á barn­inu og hefur sjálfur við­ur­kennt að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn hálf­systur sinni þegar hún var fimm ára og hann rétt að verða fjórtán ára.

Þá bar stjúp­systir manns­ins einnig vitni fyrir dómnum þar sem hún kvað hann hafa mis­boðið sér kyn­ferð­is­lega þegar hann var á sext­ánda ári en hún á barns­aldri. Vitn­is­burður kvenn­anna tveggja hafði ekki áhrif á nið­ur­stöðu dóms­ins.

Rannsókn á hendur föð­urnum var felld niður en í ljósi þeirra gagna sem hafði verið aflað þótti ekki ástæða til áfram­hald­andi rann­sóknar máls­ins. Það var gert þrátt fyrir að aldrei hefði farið fram lækn­is­rann­sókn á barn­inu og það ekki heldur verið tekið í við­tal eða með­ferð í Barna­húsi.

Stundin greindi frá nið­ur­stöðu dóms­ins og nú hefur móð­irin stigið fram og segir sögu sína á vef­síðu sam­tak­anna Líf án ofbeldis

„Þetta er ekki eðlilegt“

„Nú eru tvö ár síðan ég kærði fyrr­ver­andi sam­býl­is­mann og barns­föður minn fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barn­inu okkar.

Þegar ég tók fyrstu skrefin í að segja frá því sem ég hafði lengi verið hrædd um að væri að ger­ast, og sem dóttir mín var þá nýbúin að segja frá, hélt ég í fyllstu alvöru að ég myndi fá hjálp. Ég leit­aði til Stíga­móta, sem ráð­lögðu mér að leita til Barna­verndar, sem ég gerði, og stuttu síðar til lög­regl­unnar.

Lög­reglu­konan sem tók við kærunni er fyrsta mann­eskjan sem sagði skýrt við mig: „Móðir til móður – Þetta er ekki eðli­legt og ég myndi ekki treysta þessum manni fyrir barn­inu mínu“.

Þá fyrst fór ég að hætta að efast um að allt sem hann var búinn að telja mér trú um að væri eðli­legt, væri í raun ofbeldi.

En það er ekk­ert eðli­legt við það að menn séu dag­lega að fá stand­pínu þegar þeir eru að sinna barn­inu sínu. Það er heldur ekk­ert eðli­legt að þegar það ger­ist, að taka barnið inn í annað her­bergi og til­kynna að „við ætlum aðeins að kúra“.

Það er ekk­ert eðli­legt að blása á kyn­færi barns­ins“.

„Pabba skegg kitlar“

Og SAMA HVER hvötin á bak­við svona hegðun er, þá er ekk­ert eðli­legt að þvinga barn að alast upp í slíkum aðstæðum.

Það er ekk­ert eðli­legt koma að mann­inum þar sem buxur hans eru ógirtar, og bleyja barns­ins toguð niður að framan. Það er ekk­ert eðli­legt að ég sé þá sökuð um að ímynda mér hluti og að „ég ætti ekki að vera komin heim svona snemma“.

Það er ekk­ert eðli­legt að barnið mitt biður mig um að „nota ekki marga putta“ þegar ég er að fara að skipta á því.

Það er heldur ekk­ert eðli­legt að barnið mitt seg­ist vera illt í klof­inu, því „pabba skegg kitlar“.

Og það er ekk­ert eðli­legt að eftir allt þetta er mér sagt að treysta þessum manni fyrir barn­inu mínu, því sam­kvæmt kerf­inu; dóm­urum, sál­fræð­ingum og sýslu­manns­full­trúum, á ég ekki að hafa áhyggjur. Heldur þarf ég að finna leiðir til að treysta honum“.

Fellt niður vegna skorts á sönnunargögnum

Við förum í Barnahús og þar er barnið mitt svo hrætt að ekki er hægt að skoða það. En það er ekki horft á það sem vís­bend­ingu um að eitt­hvað gæti mögu­lega verið að. Ekki er reynt að tala við barnið. Okkur er ekki boðin frek­ari aðstoð. Í stað­inn er málið fellt niður „vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum“.

Á meðan á lög­reglu­rann­sókn stendur leggur faðir inn beiðni um að fá fulla for­sjá og að ég fái umgengni aðra hverja helgi, á þeim grund­velli að ég sé að tálma.

Þrátt fyrir að ég bjóði honum í sátta­með­ferð og að við gerum samn­ing um umgengni.

Þrátt fyrir að ég, á þeim tíma, sé sam­kvæmt kerf­inu ekki að tálma heldur að sinna skyldum mínum og stoppa umgengni til þess að tryggja öryggi barns­ins míns.

Eftir þetta stígur systir hans fram og lýsir mjög grófu kyn­ferð­is­broti af hans hálfu gegn henni þegar hún var barn­ung.

Skylda mín að tryggja vernd barnsins

Stuttu seinna kveður dóm­ari upp bráða­birgða­úrs­urð um aukna umgengni við föður– án þess að talað væri við mig, barnið mitt, eða systur hans. Ein­fald­lega er litið á frá­sögn mína, barns­ins míns og systur hans sem „ein­hliða gagna­öflun móður“. Ógilt bara.

Ég fæ ekk­ert annað um að velja en; að annað hvort halda áfram að bjóða umgengni undir eft­ir­liti, og þá fara gegn úrskurði, eða að láta þvinga mig til þess að setja barnið mitt í aðstæður þar sem ég veit að hefur áður verið brotið á því.

Allt í einu breyt­ist skylda mín að tryggja vernd barns­ins gegn ofbeldi í brota­hegðun!

Og af því að þessi úrskurður um umgengni var kveð­inn upp geta fað­ir­inn og dóms­kerfið núna sagt mig tálma, og eftir þetta er komið fram við mig eins og ÉG sé sak­born­ingur.

Allt í einu er ég „sek“ um að fylgja ekki dóms­úr­skurði.

Enginn býður mér aðra leið til að tryggja öryggi barns­ins. Enginn sýnir vilja til þess að tryggja öryggi barns­ins“.

Þarf vitni að heimilisofbeldi?

„Ég býð sátta­fund með dóm­urum og sál­fræð­ingi og þar er HLEGIÐ að hug­mynd minni um umgengni undir eft­ir­liti fag­að­ila. Eins og það sé frá­leit hug­mynd að vilja örugga umgengni. Og að trúa því að það gæti verið í boði. Ég er í stað­inn hvött til að finna leið til að treysta honum. Öll ábyrgðin lögð á mig.

Sama við­horf ríkir í dóms­sal. Ég er ásökuð og þarf að svara fyrir það, hvers vegna ég tel mig eiga rétt á að fara gegn úrskurði. Ofbeldið sem hann hefur beitt er ekki lengur inni í mynd­inni og þegar ég bið um orðið til að minn­ast á ástæð­una fyrir því að við séum hér yfir höfuð er „sussað“ á mig.

Fyrir dómi vitna tvær konur um brot hans gegn þeim þegar þær voru barns­ungar en það fær ekk­ert vægi. Allt vægi lagt í hans vog­ar­skálar þar sem „ fólkið hans“ seg­ist aldrei hafa séð neitt. Og þá bara gerð­ist ekk­ert?

Gerist heim­il­is­of­beldi ekki nema ein­hver annar sjái til?

Brjóta kyn­ferð­is­brota­menn gegn börnum fyrir framan fjöl­skyldu og vini sína?

Þegar ég seg­ist aftur ekki geta treyst honum til að gæta öryggi barns­ins, er for­sjáin tekin af mér“.

Eftirlitslaust umgengni við barnaníðing

„Forsjáin er tekin af mér – móður sem er full­hæf til að ann­ast barnið sitt, móður sem hlýtur traust ann­arra for­eldra að sinna börn­unum þeirra – fyrir það eitt að gera það sem KERFIÐ HEFÐI ÁTT AÐ GERA – vernda barnið mitt. Það er eina „gilda“ ástæðan sem er gefin upp. Ég er talin ólík­leg til að stuðla að eðli­legum sam­skiptum og umgengni.

Það er ekk­ert sem fyrir barni heitir eðli­leg sam­skipti við mann sem hefur brotið gegn því.

Í stað­inn fyrir að að túlka vilja­leysi mitt til að láta barnið mitt í eft­ir­lits­lausa umgengni við barn­a­níð­ing sem ábyrgð, sem ég er að sýna sem for­eldri þess, og að ég set hags­muni og vel­ferð barns­ins okkar í fyrsta sæti, er það túlkað sem óhlýðni.

Afhverju myndi ég vilja fara gegn úrskurði ef ég teldi það ekki vera beint gegn hags­munum barns­ins að fara eftir honum? Þau rök vantar alveg og þau rök virð­ast ekki skipta neinu máli.

Ofbeldið skiptir engu máli í kerf­inu.

Líðan barns­ins skiptir engu máli.

„Óhlýðni“ mín skiptir öllu máli, og fyrir það er barni refsað!“

Hafði trú á að fá hjálp

„Hvernig getur verið, að dóms­vald fyrst og fremst taki ákvörðun um að skikka barn í umgengni við mann þar sem liggja fyrir frá­sagnir og lýs­ingar á kyn­ferð­is­broti hans – þá sér­stak­lega án þess að hafa heyrt orð í okkur þolend­unum eða athugað afstöðu, vilja og líðan barns­ins.

Þar var tek­inn af mér rétt­ur­inn til að halda áfram að vernda barnið mitt. Tekinn af barn­inu mínu réttur til verndar – öllu snúið við og allt í einu er ég ofbeld­is­mann­eskjan sem er sek um að „tálma“.

Hvernig getur verið að það sé rétt­læt­an­legt að taka for­sjá af móður, sem sér enga aðra leið til að vernda barnið sitt gegn frekara ofbeldi en að stoppa umgengni, því hún hrein­lega fær ekki hjálp­ina sem hún er að biðja um. Hjálp sem kerfið lofar okkur öllum! Hjálp sem ég virki­lega hafði trú á að væri til staðar.

Hvað hefði ég getað gert öðru­vísi?

Hvar er val­mögu­leik­inn um umgengni þar sem vel­ferð barns­ins er sett í fyrsta sæti?

Þar sem vilji afbrota­manns­ins hefur minnst vægi?

Þar sem ég þarf ekki að ger­ast „brot­leg“ til þess að koma í veg fyrir að barnið mitt verði fyrir frek­ari skaða?

Hverju tapar kerfið á því að hlusta og trúa? Engu.

Hverju tapar barnið mitt á að vera hrifsað frá móður sinni og þvingað inn í aðstæður þar sem það hefur áður orðið fyrir ofbeldi? ÖLLU“.

Hafðu hátt!

Eins og þetta væri ekki nóg en nú liggur fyrir hótun um aðför. Faðir óskar þess að lög­reglan komi og taki barnið úr umsjá móður sinnar sem er eina öryggið sem barnið þekkir, með valdi, og sam­kvæmt fram­göngu og nið­ur­stöðu sátt­ar­fundar er það eina sem getur stoppað þetta er ég – með því að bakka og leyfa eft­ir­lits­lausa umgengni.

Þetta eru ómann­eskju­legar kröfur. Og ÖLL ábyrgðin er sett á mig. Ég er látin bera ábyrgð á því hvort aðförin verði fram­kvæmd, því önnur leið til að stoppa hana er ekki til?

Það eru ómann­úð­legt að vilja það að hún sé fram­kvæmd.

Það er ómann­úð­legt að sam­þykkja það!

Það er mann­rétt­inda­brot af hálfu kerf­is­ins að tryggja ekki vernd barns­ins!

Það væri mann­rétt­inda­brot af hálfu dóms­stóla og lög­reglu að beita valdi til að kom­ast inn á heim­ilið okkar og trámat­ísera barnið.

Það yrði áfall og hefði í för með sér óaft­ur­kræfar afleið­ingar sem myndi lita líf barns­ins míns.

Það er EKKI BARNINU FYRIR BESTU að láta taka það með valdi úr því örugga umhverfi þar sem því líður vel og er að blómstra í – ein­ungis í þeim til­gangi að koma því í umsjá til ein­hvers þar sem er tví­mæla­laus hætta er á áfram­hald­andi ofbeldi.

Önnur leið verður að vera til – það getur ekki verið að þetta sé það sem er talið það besta fyrir börn.

Ég vil biðla til ykkar allra sem hafa lesið þetta að vera ekki sama.

Ef þú hefur tök á því bið ég þig um að hafa hátt um þetta.

Ef þú hefur vald til þess að stoppa þetta – gerðu það!

For­svars­konur félaga­sam­tak­anna Líf án ofbeldis hafa lesið dóm­inn og önnur gögn sem fylgja mál­inu og stað­festa rétt­mæti frá­sagnar móður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina