Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björn Þorláksson í mál við Umhverfisstofnun – Telur að uppsögnin hafi verið ákveðin fyrir löngu

Björn Þorláksson í mál við Umhverfisstofnun – Telur að uppsögnin hafi verið ákveðin fyrir löngu
Björn Þor­láks­son.

Hinn lands­þekkti fjöl­miðla­maður, Björn Þor­láks­son, hefur stefnt íslenska rík­inu fyrir það sem hann telur vera ólög­mæta nið­ur­lagn­ingu á starfi hans sem upp­lýs­inga­full­trúi hjá Umhverf­is­stofnun. Krefst Björn þess að ríkið verði dæmt til að greiða honum laun til tveggja ára sem og þrjár millj­ónir í miska­bætur; nemur upp­hæð þessi sam­tals tutt­ugu og þremur millj­ónum króna.

Björn hóf störf hjá Umhverf­is­stofnun í árs­byrjun 2017; starf hans var lagt af í byrjun þessa árs.

Í stefn­unni kemur fram að hann hafi verið kall­aður fyr­ir­vara­laust á fund for­stjóra Umhverf­is­stofn­unar og mannauðs­stjóra í nóv­em­ber í fyrra. Á þessum fundi var Birni afhent bréf þar sem honum var til­kynnt um miklar breyt­ingar á verk­efna­skipu­lagi og áherslum í starfi hans sem upp­lýs­inga­full­trúi Umhverf­is­stofn­unar.

Var Birni boðið að taka þátt í hæfn­is­mati og það boð þáði Björn með þeim fyr­ir­vara að matið væri lög­legt, en hann taldi leika veru­legan vafa á því.

Í áður­nefndri stefnu segir að í jan­úar hafi Birni verið til­kynnt að leggja ætti starf hans af, en mán­uði síðar hafi Umhverf­is­stofnun aug­lýst laust til umsóknar starf sér­fræð­ings í staf­rænni fræðslu, þróun og miðlun; í stefn­unni segir að verk­efna­lýs­ing nýja starfs­ins hafi að mestu leyti verið sú sama og þau verk­efni sem Björn sinnti fyrir Umhverf­is­stofnun.

Telur Björn að ákvörð­unin um að leggja ætti starf hans niður hafi verið fyr­ir­sláttur og að upp­sögnin hafi verið ákveðin löngu áður.

Björn segir að nið­ur­lagn­ing starfs hans hafi verið veru­lega íþyngj­andi fyrir hann og leitt til fjár­hags­legs tjóns og að það muni lík­lega reyn­ast honum erfitt að fá annað starf við hæfi; Björn sér fram á að þurfa að flytj­ast búferlum til þess að geta fengið starf við hæfi.

Enn fremur telur Björn að fram­ganga stofn­unar hafi valdið honum miklu and­legu tjóni og kastað rýrð á starfs­heiður sinn sem og álit ann­arra á honum; veru­leg óvissa sé nú um fram­tíð­ar­vinnu hans og tekju­lega afkomu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina