Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Barningur á Bessastöðum – kynferðisáreiti starfsmanns – Greip í klofið og hélt utan um kynfærin

Barningur á Bessastöðum – kynferðisáreiti starfsmanns – Greip í klofið og hélt utan um kynfærin
Erfitt ástand á Bessa­stöðum vegna kyn­ferð­is­áreitis.

For­seta­bú­stað­ur­inn á Bessa­stöðum er heim­ili for­seta, eig­in­konu hans og barna þeirra ásamt tveimur starfs­mönnum emb­ætt­is­ins. Óhætt er að segja að sam­búðin hefur verið erfið þar á bæ síðan einn íbú­inn áreitti nágranna sína í starfs­manna­ferð emb­ætt­is­ins til höf­uð­borgar Frakk­lands, Parísar.

Þetta kemur fram á stundin.is.

Und­an­farna mán­uði hafa tveir starfs­menn for­seta­emb­ætt­is­ins verið í veik­inda­leyfi sem má rekja til kyn­ferð­is­legrar áreitni af hálfu sam­starfs­manns þeirra og þriðji ein­stak­ling­ur­inn, sem er búsettur á Bessa­stöðum, hefur líka orðið fyrir áreitni af hálfu sama manns.

Eini mað­ur­inn – sem teng­ist mál­inu – hefur verið að störfum nær óslitið á tíma­bil­inu er ger­and­inn.

Sá maður hefur geng­ist við að hafa áreitt sam­starfs­menn sína og nágranna. Hann vék þó aðeins tíma­bundið frá störfum sínum að skipan for­seta Íslands; sem hélt því rang­lega fram í yfir­lýs­ingu í októ­ber árið 2019 að málið hefði verið leyst í sátt og sam­lyndi við þolendur.

Annar starfs­mann­anna taldi bestu lausn­ina að láta af störfum hjá for­seta­emb­ætt­inu og hinn ein­stak­ling­ur­inn hefur sagt við fólk í kringum sig að hann sé óviss hvort honum muni nokkurn tím­ann verða vært í starfi sínu hjá emb­ætt­inu á meðan málið er enn óleyst. Sá býr ásamt fjöl­skyldu sinni á Bessa­stöðum – á móti ger­and­anum – en fjöl­skyldur þeirra eru tvær af þeim þremur sem búsettar eru á staðnum.

Þriðja fjöl­skyldan eru for­seta­hjónin Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti og Eliza Reid eig­in­kona hans og börn þeirra.

Óhætt er að segja að sam­búðin hafi gengið brös­ug­lega frá því að atvikið kom upp, en þol­and­inn hefur verið í veik­inda­leyfi síð­ustu tólf mán­uði. Hann kom til baka úr leyfi um síð­ustu mán­aða­mót, þegar nýr for­seta­rit­ari hafði tekið form­lega við af Örnólfi Thors­syni, sem gegnt hafði emb­ætt­inu í sextán ár.

Þau voru fjögur atvikin sem til­kynnt voru af starfs­mönn­unum tveimur og áttu sér stað á tveggja ára tíma­bil.

Fyrsta atvikið gerð­ist í veislu á Bessa­stöðum sem haldin var í til­efni starfs­loka bíl­stjóra for­set­ans fyrir þremur árum. Atvikinu er lýst þannig að mað­ur­inn hafi komið að sam­starfs­manni sínum og gripið í klofið á honum; haldið utan um kyn­færi hans. Þol­and­inn brást eðli­lega mjög illa við þessu en upp­skar ein­ungis hæðni af hálfu ger­and­ans.

Þetta alvar­lega atvik hafði þó ekki nein eft­ir­mál önnur en óþæg­indi í sam­skiptum á milli sam­starfs­mann­anna tveggja, en ári síðar fóru starfs­menn emb­ætt­is­ins í náms­ferð til Parísar; í sept­em­ber árið 2019; meðal ann­ars til að heim­sækja Élysée-höll­ina þar í borg.

Ferðast var um borg­ina með lestum og leigu­bílum og í einni slíkri ferð greip ger­and­inn upp undir sam­starfs­mann sinn og hélt utan um kyn­færi hans, alveg eins og í starfs­manna­gleð­inni ári áður.

Í þess­ari ferð snæddi hóp­ur­inn saman kvöld­verði þar sem áfengi var haft um hönd og í einum slíkum kvöld­verði áreitti starfs­maður emb­ætt­is­ins sam­starfs­konu sína kyn­ferð­is­lega; við­hafði óvið­eig­andi orð­ræðu um lík­ams­vöxt kon­unnar; Þetta gerði hann fyrir framan annað starfs­fólk emb­ætt­is­ins.

Sama kvöld og mað­ur­inn áreitti sam­starfs­konu sína og greip upp undir sam­starfs­mann sinn á lest­ar­stöð – varð eig­in­kona þess síð­ar­nefnda fyrir ger­and­anum; réð­ist mað­ur­inn á kon­una þar sem þau þrjú voru saman í lyftu á hót­el­inu sem hóp­ur­inn gisti á. Hann kleip í lík­ama hennar; rass og læri; með mik­illi ákveðni. Konan marð­ist og eig­in­maður hennar reif ger­and­ann af henni og henti út úr lyft­unni sem þá hafði stöðvast á hæð­inni þar sem þau gistu öll.

Eftir að heim var komið úr þess­ari örlaga­ríku ferð höfðu nær allir starfs­menn emb­ætt­is­ins heyrt frá­sagnir af atvik­unum í ferð­inni.

Konan sem hafði orðið fyrir kyn­ferð­is­áreitni í kvöld­verð­ar­boði hóps­ins, til­kynnti atvikið til Örnólfs Thors­sonar sem þá var enn for­seta­rit­ari – í sömu viku og ferð­inni lauk. Síðan til­kynnti mað­ur­inn atvikið er varð­aði sig sjálfan og eig­in­konu sína til Örnólfs.

Margt bendir til þess að Örnólfur hafi haldið þessum upp­lýs­ingum frá for­seta­hjón­unum og nefnt við starfs­fólk emb­ætt­is­ins að ekki hafi staðið til að upp­lýsa for­set­ann um ásak­an­irnar. Guðni for­seti var þó ekki löngu síðar upp­lýstur um málið; hann kall­aði máls­að­ila á fundi; einn í einu.

Svo virð­ist sem Guðni hafi beðið þolendur máls­ins að taka afstöðu til þess hvernig þau vildu að hann myndi tækla málið; hvort það væri þeirra ósk að ger­and­anum yrði rek­inn.

Eftir heim­kom­una frá París varð and­rúms­loftið hjá starfs­fólki emb­ætt­is­ins afar erfitt enda höfðu við­brögð for­seta­rit­ara við mál­inu valdið þeim afar miklum von­brigðum.

Í kjöl­farið fór annar starfs­mann­anna sem fyrir áreitnu varð í veik­inda­leyfi eftir að hafa fundið fyrir van­líðan í starfi sínu; hinn starfs­mað­ur­inn fór einnig í veik­inda­leyfi en þriðji þol­and­inn í mál­inu – eig­in­kona síð­ar­nefnda starfs­manns­ins – hefur ekki farið í leyfi frá störfum; enda ekki starfs­maður.

Hitt ber að nefna að návist hennar við ger­and­ann í mál­inu er mikil en ástæðan fyrir því er sú að hún er búsett ásamt manni sínum á Bessa­stöðum – ekki nema í innan við átta­tíu metra fjar­lægð frá húsi ger­and­ans. Hefur þessi mikla nálægð eðli­lega valdið henni og manni hennar mik­illi van­líðan.

Guðni for­seti sá sig knú­inn til að senda frá sér yfir­lýs­ingu þar sem sagði að emb­ættið hefði gripið „til við­eig­andi aðgerða, meðal ann­ars með hlið­sjón af stefnu og áætlun Stjórn­ar­ráðs­ins gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni, ofbeldi og annarri ótil­hlýði­legri hátt­semi. Um leið og ég varð áskynja um það ólíð­andi athæfi sem við­haft var afl­aði ég mér allra mögu­legra upp­lýs­inga, meðal ann­ars með við­tölum við alla þá sem málið varð­aði. Starfs­mað­ur­inn fór í leyfi og for­seta­rit­ari veitti honum skrif­lega áminn­ingu. Auk þess var starfs­mann­inum gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt sam­starfs­fólk mitt ‒ hafa í öllu ferl­inu verið upp­lýstir um stöðu og þróun mála og hafa fall­ist á þær ákvarð­anir sem teknar hafa verið, án þess auð­vitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli máls­ins er þannig lokið með sam­þykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfs­manni var heim­ilað að snúa aftur til starfa að upp­fylltum til­teknum skil­yrðum.“

Það sem helst hefur verið gagn­rýnt varð­andi yfir­lýs­ingu Guðna er að ekki hafi neinar aðgerðir fylgt og ger­and­anum boðið að snúa aftur til starfa; hann hefur starfað síðan á meðan afleið­ingar áreitni hans hafi átt mik­inn þátt í að þolend­urnir hafi ekki getað starfað við hlið hans.

Sif Gunn­ars­dóttir er núver­andi for­seta­rit­ari og hefur látið hafa þetta eftir sér um málið: „Embætti for­seta Íslands má ekki leggja á það mat opin­ber­lega né ræða ólíkar ástæður þess að starfs­fólk fer í veik­inda­leyfi eða lætur af störfum. For­seta­emb­ættið leggur ríka áherslu á að vinna með vönd­uðum og ábyrgum hætti að mannauðs­málum með umbætur að leið­ar­ljósi.“

Í yfir­lýs­ingu for­seta Íslands þann fjórða októ­ber árið 2019, sem lesa má á heima­síðu emb­ætt­is­ins, er frá því greint að ferð starfs­manna emb­ættis for­seta Íslands til Frakk­lands í sept­em­ber 2019 hafi einn starfs­maður emb­ætt­is­ins gerst sekur um óþol­andi athæfi gagn­vart tveimur í ferða­hópnum; kyn­ferð­is­lega áreitni og annað hátta­lag sem aldrei verður fall­ist á að afsaka megi. Stuttu eftir heim­kom­una fór starfs­mað­ur­inn/ger­and­inn í tíma­bundið leyfi; var veitt skrif­leg áminn­ing og honum auk þess gert að leita sér aðstoðar – sem hann gerði og hafa engin slík mál komið upp síðan.

For­seta­emb­ættið hefur ekki heim­ild til að leggja á málið mat opin­ber­lega né ræða ólíkar ástæður fyrir því að starfs­fólk fer í veik­inda­leyfi eða lætur af störfum. Embættið hefur ein­sett sér að leggja mikla áherslu á að vinna með vönd­uðum og ábyrgum hætti að mannauðs­málum þar sem umbætur séu hafðar að leið­ar­ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina