Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásthildur bæjarstjóri: „Akureyri er lítil borg með risastórt hjarta“

Ásthildur bæjarstjóri: „Akureyri er lítil borg með risastórt hjarta“
Ást­hildur Sturlu­dóttir bæj­ar­stjóri Akur­eyr­inga. Mynd: Róbert Reynisson.

„Það var ynd­is­legt að alast upp í fögru umhverfi Snæ­fells­ness og frjáls­ræðið mikið í því nota­lega bæj­ar­fé­lagi sem Stykk­is­hólmur er,“ segir Ást­hildur Sturlu­dóttir, bæj­ar­stjóri á Akureyri, aðspurð um æskuár sín í Stykk­is­hólmi. Ást­hildur er þaul­reynd sem bæj­ar­stjóri eftir að hafa um ára­bil starfað sem slíkur í Vest­ur­byggð. Við spyrjum hvernig henni hafi verið tekið á Akureyri sem bæj­ar­stjóra að vestan? 

Einarður talsmaður sameiningar

„Mér hefur verið tekið ljóm­andi vel og er þakk­lát fyrir það. Hér býr opið og skemmti­legt fólk sem tekur öllum opnum örmum. Og þar fyrir utan nýt ég auð­vitað góðs af því að starfa í umboði frá­bærrar bæj­ar­stjórnar“. 

Er ólíkt að vera bæj­ar­stjóri á Akureyri og í Vest­ur­byggð?

„Það er mjög mik­ill munur á því að vera bæj­ar­stjóri í Vest­ur­byggð og á Akureyri. Stjórn­sýslan er auð­vitað öll minni í litlu sam­fé­lagi en þar eru boð­leið­irnar styttri og hlutir geta gerst hraðar. Stærri stjórn­sýslu­ein­ingar eru hins vegar skyn­sam­legri og fela í sér umtals­vert hag­ræði og sparnað á skatt­pen­ingum. Ég er því mik­ill og ein­arður tals­maður sam­ein­ingar sveit­ar­fé­laga“.

Börnin helsta áhugamálið

Hvernig eru fjöl­skyldu­hagir þínir og hver eru helstu sam­eig­in­legu áhuga­mál fjöl­skyld­unnar? 

„Ég er gift Hafþóri Jónssyni skip­stjóra og útgerð­ar­manni. Við eigum saman eina dóttur sem er fjög­urra ára og stjúp­sonur minn er nítján. Við erum öll mjög náin og finnst gott að verja sem mestum tíma saman. Við ferð­umst, skíðum, veiðum og förum á sjó“.

En hver eru helstu áhuga­mál þín?

„Ég stunda skíði og flugu­veiði. Svo hef ég mjög gaman af handa­vinnu og að vera í garð­inum og elda mat. Annars eru börnin mín tvö helsta áhuga­málið“.

Nærðu að kúpla þig frá starf­inu þegar þú átt frí, og ef svo er, þá hvernig?

„Það er nán­ast óger­legt að kúpla sig frá bæj­ar­stjór­anum. Það er helst að mér tak­ist það með því að gleyma mér við að róta í mold í garð­inum eða leggja flugu fyrir fisk ein­hvers staðar úti í óspilltri nátt­úr­unni, allra helst fyrir vestan“.

Alltaf gott veður á Akureyri

Munurinn í hnot­skurn á Akureyri og Vest­fjörðum – menn­ing, stað­ar­hættir og stjórn­sýsla?  

„Þetta eru tveir ólíkir heimar. Það er ákveðin heið­ríkja yfir Eyja­firði en lands­lagið er hins vegar dramat­ískara fyrir vestan og veð­ur­farið allt annað. Og svo er auð­vitað alltaf gott veður á Akureyri. Það er erfitt að búa við ein­angrun og erf­iðar sam­göngur eins og fyrir vestan en það er mjög lær­dóms­ríkt. Á Akureyri er meira um að vera; leik­hús, tón­leikar og frá­bær þjón­usta á öllum sviðum. Ég er Snæ­fell­ingur en mað­ur­inn minn er Vest­firð­ingur og ég bjó á Pat­reks­firði í átta ár. Ég hef mjög sterkar taugar vestur og mér þykir óskap­lega vænt um vestrið. Við fjöl­skyldan verjum venju­lega sum­ar­leyfi okkar á Pat­reks­firði“.  

Blómlegur staður að búa á

Hefur Akureyri margt umfram aðra bæi á Íslandi? Ef svo er, þá hvað?

„Það tæki of langan tíma að telja það allt upp. Sumir segja að allt sé best á Akureyri og að hér sé alltaf gott veður. Kost­irnir sem ég man eftir í augna­blik­inu eru fólkið, veðrið, feg­urð fjarð­ar­ins, stuttar vega­lengdir, frá­bær þjón­usta, blóm­leg menn­ingin, góð aðstaða til íþrótta­iðk­unar og barn­vænt umhverfi“. 

Myndirðu segja að Akur­eyr­ingar væru öðru­vísi en annað fólk á Íslandi? Eru þeir með ákveðin sér­kenni?

„Þeir eru ósköp líkir Hólmurum. Mér finnst ég vera heima hjá mér. Við erum blátt áfram og víð­sýn en á sama tíma íhalds­söm og vana­föst“. 

Vilji er allt sem þarf

Framtíð Akur­eyrar, verður Akureyri borg og hvernig breytir maður bæ í borg? 

„Akureyri er lítil borg með risa­stórt hjarta. Bæir þró­ast í að verða borgir en þá er líka mik­il­vægt að ríkið feli þeim ákveð­inn hluta opin­berrar stjórn­sýslu, ákveðið hlut­verk, leggi til fjár­magn og horfi með vel­þóknun til upp­bygg­ingar víðar en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Akur­eyr­ingar vilja axla þá ábyrgð og sinna vel því hlut­verki sem felst í að vera hin borgin á Íslandi. Þetta er eins og svo oft áður allt spurn­ing um vilja – vilji er allt sem þarf“.

Innihaldsríkt líf

Telur þú að fólks­fjölgun muni verða mikil á Akureyri á næstu árum og ef svo er, hverjar eru helstu for­send­urnar fyrir því?

„Já, án efa. Helstu for­send­urnar eru nægt fram­boð lóða og blóm­legt atvinnu­líf. Fólk vill búa á Akureyri. Hér líður því vel. Ég hef varla tölu á öllu því fólki sem hefur sagt mér að það langi að flytja til Akur­eyrar. Það myndi einnig flýta mjög fyrir upp­bygg­ing­unni hér og stækkun bæj­ar­ins ef sveit­ar­fé­lög við fjörð­inn væru sam­einuð og ef ríkið myndi skil­greina og stað­festa borg­ar­hlut­verk Akur­eyrar í sam­ráði við fólkið sem hér býr“.

Hvað hefur Akureyri upp á að bjóða fyrir fólk sem er að skoða þann val­kost að flytj­ast þangað?

„Fram­úr­skar­andi þjón­ustu við fjöl­skyldu­fólk. Frábært veð­ur­far. Inni­halds­ríkt líf í frið­sælu umhverfi. Blómlegt íþrótta­starf, öfl­ugt menn­ing­ar­líf, trausta heil­brigð­is­þjón­ustu, nefndu það!“.

Ekki leitt hugann að þingi

Þú hefur verið virk í bæj­ar­stjórn­ar­málum. Stefn­irðu á þing í fram­tíð­inni?

„Ég hef varla leitt hug­ann að því, sann­ast sagna. Áhuginn hefur því a.m.k. ekki enn vaknað“.

Hverjar eru helstu fyr­ir­myndir þínar í líf­inu?

For­eldrar mínir og systk­ini, mað­ur­inn minn, Edda og Magnús Gúst­afs­son sem ég bjó hjá á náms­árum mínum í Band­ríkj­unum. Og svo auð­vitað Vigdís Finn­boga­dóttir“.

Skemmti­leg­asta lífs­reynslan?

„Að róa frá Hesteyri að Hlöðuvík á Horn­ströndum á kajak. Það var magnað“.

Stærsta stund lífs­ins?

„Að eign­ast dóttur mína“.

Sárasta lífs­reynslan?

„Að missa fólk sem mér er kært“.

Mestu von­brigðin?

„Að eiga ekki fleiri ynd­is­leg börn til við­bótar við dóttur mína og stjúp­son“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil