Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Harpa var kefluð, byrluð efni og misnotuð: „Ég var skilin eftir, bundin og blóðlaus í höndum.“

Harpa var kefluð, byrluð efni og misnotuð: „Ég var skilin eftir, bundin og blóðlaus í höndum.“
Harpa Diego ásamt Tinnu Guðrúnu Bark­ar­dóttur hjá Það Er Von.

Þegar Harpa var aðeins 11 ára gömul lenti hún í nauðgun, fyrsta stóra áfall­inu sem breytti öllu í hennar lífi. „Þetta var leynd­ar­málið mitt og ég sagði engum frá,“ segir Harpa Diego sem er nýjasti við­mæl­andi hla­varps sam­tak­anna Það Er Von.

Fannst hún ógeðsleg

Harpa Diego er mögnuð kona sem gengið hefur hlykkj­óttan veg í gegnum lífið en alltaf stendur hún upp­rétt og setur upp bros. Líf Hörpu lík­ist að mörgu leyti kvik­mynda­hand­riti. Hún átti góða æsku og var mikil pabbastelpa, var mikið hjá föð­ur­ömmu sinni og fékk gam­al­dags upp­eldi og trú­ar­legt, eins og hún orðar það

Eftir árás­ina flutti Harpa til ömmu sinnar og leit­aði hugg­unar í mat. Hún seg­ist hafa orðið feit­asti ung­ling­ur­inn í skól­anum, fund­ist hún ógeðs­leg og ein­ungis viljað vera með ömmu sinni og eldra fólki sem var gest­kom­andi á heim­ili þeirra.

Frá fyrirmyndamömmu til Bakkusar

Harpa byrj­aði seint í neyslu hug­breyt­andi efna en áfeng­is­neysla hennar hófst um 28 ára aldur, en fram að því var hún fyr­ir­myndar hús­móðir með þrjú börn, gift æsku­ást­inni. „Hann var alkahólisti sem byrj­aði að drekka mikið eftir vinnu­slys og þá byrj­aði ofbeldi líka. Ég ákvað einn dag­inn að prófa að drekka með honum. Þá horfði ég í spegil í fyrsta skipti og hugs­aði með mér að ég væri kannski svo­lítið sæt,“ segir Harpa.

Eftir skilnað við mann sinn fór Harpa á einu ári úr því að vera þessi fyr­ir­myndar hús­móðir í það að missa börnin frá sér. „Bakkus var stóra ástin í lífi mínu“.

Harpa fór einu sinni á Vog en féll stuttu eftir. Eftir að hafa misst frá sér börnin reyndi Harpa nokkur sjálfs­víg en segir Guð vaka yfir sér. Hún rifjar upp að hafa farið með 23. Dav­íðs­sálm í hug­anum þegar hún var barin.

Leiðin lá beint niður á við, hún fór í harða neyslu, vændi, stund­aði eró­tískt nudd og lenti í hræði­legum áföllum.

Vaknaði þrisvar í öndunarvél

Harpa tók mikla með­virkni með sér út í lífið og kunni illa að setja fólki mörk. „Eftir eina með­ferð flutti ég á Dyngjuna og í fór í AA, þar sem ég varð ást­fangin”. Það leið ekki á löngu þar til hún flutti til manns­ins, þrátt fyrir and­stæðar ráð­legg­ingar for­stöðu­konu Dyngj­unnar og féllu þau í djúpa neyslu stuttu síðar. Harpa segir í við­tal­inu hvernig neyslan þróaðist eftir þetta: „Hann kom einn dag­inn með poka af sprautum úr apó­tek­inu og fór að sprauta sig, ég bað hann að sprauta mig líka. Þessi maður beitti mig miklu lík­am­legu ofbeldi og vakn­aði ég þrisvar í önd­un­ar­vél eftir árásir af hans hálfu og vart hugað líf. Í hvert skipti sat pabbi hjá mér“.

Harpa reyndi nokkrar með­ferðir á þessum árum en þær gengu brös­ug­lega. Í við­tal­inu segir hún frá ófáum augna­blikum, sem eru grát­bros­leg, en hún var ofur­seld hug­breyt­andi efnum og stopp­aði ekki þrátt fyrir að liggja fyrir dauð­anum.

Tjóðruð upp og misnotuð af mönnum í jakkafötum

Harpa segir frá atvikum þar sem hún bjó með manni á gististi­heim­ili í Reykja­vík. „Þarna var mér byrlað ólyfjan, ég fór að slefa og þá var ég tjóðruð upp. Ég sá hann svo taka við pen­ingum frá venju­legum mönnum í jakka­fötum. Þarna var mér mis­þyrmt, þeir gerðu við mig það sem þeim þókn­að­ist, var jafn­vel lamin. Stundum var einn, stundum tveir menn og einu sinni þrír. Ég var alltaf bundin. Ég var svo skilin eftir, bundin og blóð­laus í höndum. Ég þurfti að míga og skíta á mig, þetta var það langur tími, meðan hann fór að djamma fyrir pen­ing­inn“.

Líf Hörpu hefur ein­kennst af stórum áföllum en hún náði sjálf 11 ára edrú­mennsku en á þeim tíma bjó hún í 10 mán­uði með son sinn í Kvenna­at­hvarf­inu.

Hún féll eftir 11 ár. „Eftir tvær til þrjár helgar var ég komin í leigu­bíl í apó­tek að kaupa sprautur og komin á sama stað, þetta fall var í 14 mán­uði“.

Það má heyra alla sögu Hörpu og hvernig hún hefur helgað líf sitt að hjálpa öðrum sem þjást af fíkni­sjúk­dómi á hlað­varpi Það Er Von.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina