Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Vantar bakhjarla: „Frumkvæði okkar er fáheyrt og það er kominn tími til að taka upp hanskann“

Vantar bakhjarla: „Frumkvæði okkar er fáheyrt og það er kominn tími til að taka upp hanskann“

Frum­kvæði þeirra Eddu Guð­munds­dóttur hönn­uðar og Auðar Elísa­betar Valdi­mars­dóttur marg­miðl­un­ar­hönn­uðar er ákaf­lega fal­legt og ein­stakt. Þær  hafa hug á að standa fyrir nýjum nám­skeiðum fyrir fatl­aða og öryrkja, bæði börn og full­orðna. Nám­skeiðin verða undir nafn­inu SamVera. Hjá SamVeru eru heims­mark­miðin, sam­fé­lags­á­byrgð, umhverfi og  virð­ing í aðal­hlut­verki.

Edda Guð­munds­dóttir, hönn­uður
Auður Elísabet, marg­miðl­un­ar­hönn­uður ásamt fjöl­skyldu sinni

Þær Edda og Auður, kalla sig sam­fé­lags­lega með­vitað hönn­un­arteymi sem nýtir þekk­ingu sína og drif­kraft­inn sem þær búa yfir til þess að sam­eina og efla sköp­un­ar­kraft og umhverf­is­með­vit­und fólks. Þær reka saman Vera Coworking sem er vinnu­stofu­rými fyrir konur sem vilja vinna að  sköpun sinni og deila þar krafti og þekk­ingu í gef­andi og fal­legu umhverfi. Nú hafa þær stofnað SamVeru og kalla eftir stuðn­ingi bæði frá almenn­ingi og fyr­ir­tækjum til þess að koma til móts við mjög tak­mark­aða greiðslu­getu og fram­boði á nið­ur­greiðslu sem er lítil sem engin fyrir þessa  hópa.

SamVera er sköp­un­ar­verk þeirra Eddu og Auðar

Hvað varð til þess að ykkur datt í hug að stofna SamVeru ?

„SamVera varð til þegar við fórum að ræða um hversu lítið er í boði fyrir fatlað og lang­veikt fólk til afþrey­ingar og sköp­unar. Auður er móðir fatl­aðs drengs og þekkir hún því umhverfið og þarfir fatl­aðra frá fyrstu hendi. Hönn­un­ar­verk okkar und­an­farin miss­eri hafa snú­ist um að hanna nytja­hluti úr end­ur­nýt­an­legum efnum frá fyr­ir­tækjum og heim­ilum sem að öllu jafna væri fargað. Með þekk­ingu, sköpun, þörf og vilja hafa þær sam­einað þessi hjart­ans mál undir nafn­inu SamVera“.

Það verður ýmis­legt skemmti­legt í boði á nám­skeið­unum
End­ur­nýt­ing er í hávegum höfð hjá SamVeru

Segið aðeins frá þessu verkefni ykkar, SamVeru

„SamVera eru nýtt hönn­un­ar­nám­skeið fyrir fatlað og lang­veikt fólk og börn þar sem þeim er kennt að nýta eigin sköp­un­ar­kraft til að hanna og útfæra sína eigin nytja­hluti úr end­ur­nýt­an­legum efnum. Lagt er upp með að kenna á hverju nám­skeiði hvernig nýta skal áhuga sinn og inn­blástur í hönnun sem talar frá hjarta hvers og eins þátt­tak­anda. Nám­skeiðin eru 7,5 – 10 kennslu­stundir og fara fram í aðgengi­legu og vel upp settu rými í Faxafeni 10 þar sem allir eiga að geta unnið að  hönnun sinni, á sínum hraða, undir fag­legri hand­leiðslu og per­sónu­legri nálgun“.

Sum­ar­nám­skeið sem fyr­ir­huguð eru

Hver eru markmið SamVeru ?

 „Markmið SamVeru er að þátt­tak­endur á nám­skeið­inu öðlist þekk­ingu og færni til að halda áfram að vinna með og þróa sína eigin hönnun úr end­ur­nýt­an­legum efnum og þar með haldið kostn­aði í lág­marki, sköpun í hámark og umhverf­is­mál í for­gangi. Útkoman eru praktískir og skemmti­legir nytja­hlutir sem nýt­ast í dag­legu lífi fólks“.

Í boði verður að gera skart­gripi
Fallegur órói

Leita eftir bakhjörlum og styrktaraðilum

„Það er mikil þörf á því að þessir hópar hafi aðgang að nám­skeiðum sem þessum og afþr­ey­ingu
almennt. Það sem hins vegar er alltaf flösku­háls er kostn­að­ur­inn fyrir þessa aðila sem ekki hafa
mikið til skipt­anna af örorku­bótum sínum. Aðgangur að styrkjum til nám­skeiða sem okkar er afar
tak­mark­aður fyrir þennan hóp. Okkar heitasta ósk er að geta boðið upp á þessi nám­skeið
gjald­frjálst fyrir fatl­aða, lamaða, lang­veika og öryrkja. Þess vegna sendum við ákall til
ein­stak­linga og fyr­ir­tækja um aðstoð við verk­efnið.

Sú aðstoð getur falist í tvennu:
Við erum að leita að bak­hjörlum til að styrkja verk­efnið til fram­kvæmdar. Kostn­aður á ekki að standa í veg fyrir fram­kvæmd og þátt­töku í sam­fé­lags-og umhverf­is­með­vit­uðum verk­efnum sem þessu það er okkar mark­mið! Hjá SamVeru eru heims­mark­miðin, sam­fé­lags­á­byrgð og umhverfi virð­ing í for­ystu­hlut­verki. Við köllum sér­stak­lega til fyr­ir­tækja sem hafa sam­fé­lags­á­byrgð að leið­ar­ljósi í sínum rekstri.

Við erum í leit að fyr­ir­tækjum eða ein­stak­lingum sem eru með efni sem er reglu­lega fargað sem hægt væri að nýta í hönnun á nytja­vöru. Hérna er sér­stakt tæki­færi til að taka ábyrgð og koma þessum efnum í end­ur­nýt­ingu hjá okkur undir góðum mál­stað.

Allir bak­hjarlar fá stað á heima­síðu okkar og í allri mark­aðs­setn­ingu hjá SamVeru en við teljum það göf­ugt að ganga til stuðn­ings við verk­efnið eins og okkar.
Við erum að leit­ast við að koma boð­skapnum út! Kíkið við á heima­síð­una okkar og við hvetjum alla sem eru áhuga­samir til að skrá sig á póst­list­ann okkar og fylgj­ast með ferl­inu“.

Það er nauð­syn­legt fyrir fatl­aða og öryrkja að hafa greiðan aðgang að nám­skeiðum sem þessum
Sköpun er mjög gef­andi fyrir alla

Hér má sjá heima­síðu SamVeru og skoða nám­skeiðin og fleira.

Hér er Facebook – síða SamVeru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina