Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rjúpnabrekku-Blakkur sem fer á uppboð var í eigu Viking squad – Ræktandi vill ekki tjá sig

Rjúpnabrekku-Blakkur sem fer á uppboð var í eigu Viking squad – Ræktandi vill ekki tjá sig
Rjúpna­brekku Blakkur

Uppboð sýslu­manns­ins í Reykja­vík á hund­inum Rjúpna­brekku Blakk sem verður haldið næst kom­andi þriðju­dag, hefur vakið gríð­ar­lega athygli og margir eru reiðir og hrein­lega í upp­námi vegna upp­boðs­ins á dýr­inu. Sömu lög gilda um sölu dýra og hluta á Íslandi sem af mörgum er talin tíma­skekkja sem verði að laga með vel­ferð lif­andi vera í huga. Lögin sem ná til atviks sem þessa eru lög lausa­fjár­kaup. Mannlíf kaf­aði ofan í málið og leit­aði auk þess álits hjá Hunda­rækt­ar­fé­lagi Íslands og Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands.

Ólafur Ragn­ars­son, rækt­andi Rjúpna­brekku Blakks/Black. Mynd af Facebook
Hér má sjá Rjúpna­brekku Blakk/Black

Fyrrum eigendur

Mannlíf komst að því eig­endur Rjúpna­brekku Blakks eru/voru Viking Squad en hann virð­ist hafa heitið Rjúpna­brekku Black en ekki Blakkur. Ræktandi hunds­ins er Ólafur Ragn­ars­son. Mannlíf hafði sam­band við Ólaf  sem vildi ekki tjá sig um málið. Ekki er ljóst á þess­ari stundu hverjir standa á bak við Viking Squad sem skráðir eru eig­endur hunds­ins en ljóst er að búið er að eyða út og reyna að afmá allar teng­ingar við Viking Squad sem og virð­ist sem rækt­and­inn sé einnig búin að eyða út færslum á sam­fé­lags­miðlum er tengj­ast hund­inum. Mannlíf náði þó að rekja slóð­ina í þeim til­gangi að finna út hvar hund­ur­inn væri niður komin um þessar mundir.

Á aug­lýs­ingu frá sýslu­manni má sjá númmer hunds­ins sem fer á upp­boð en það er sama númer og sést á skjölum á með­fylgj­andi myndum
Á skjal­inu sést að um sama hund er að ræða og fer á upp­boð á þriðju­dag­inn. Mynd af Facebook
Sama númer er á hund­inum sem fer á upp­boð hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á þriðju­dag­inn. Mynd af Facebook

Mannlíf setti sig í sam­band við Hunda­rækt­ar­fé­lag Ísland, Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands og Sýslu­mann­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem vildi ekki láta hafa neitt eftir sér þegar Mannlíf reyndi að kom­ast að því hvar hund­ur­inn væri nið­ur­kom­inn, fram að upp­boði.

Hundaræktarfélag Íslands

Í sam­tali við Mannlíf sagði Guðný Rut Isaksen fram­kvæmd­ar­stýra Hunda­rækt­ar­fé­lags Íslands,  að um tíma­skekkju væri að ræða varð­andi það að sömu lög skuli gilda um sölu hunda og lif­andi vera og dauðra hluta eins og bif­reiða. Í raun­inni vitum við ekki aðstæð­urnar í kringum þetta mál. Hestar eru boðnir upp en þetta hef ég ekki rek­ist á áður. Við höfum ekki tekið beina  afstöðu til máls­ins enda hefur ekki komið fram hvað liggur þarna að baki svo það reyn­ist erfitt að taka afstöðu í mál­inu miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar. Þetta mál hefur ekki komið inn á borð til okkar. Það sem ég get sagt er að það er skekkja að lögin skuli ekki taka til­lit til að þarna er um dýr að ræða. Það er tölu­verður munur á hundi og bíl, manni þykir öðru­vísi vænt um bíl­inn sinn enn hund­inn sinn og allt önnur tengsl sem þarna mynd­ast. Það þyrfti vissu­lega að end­ur­skoða lög­gjöf­ina þarna. Tíma­skekkja og eitt­hvað sem þarf að laga skoða nánar. Við höfum verið með­vituð um það hvað lög gilda og okkur finnst þetta ekki alveg í lagi.

Guðný Rut Isaksen, fram­kvæmd­ar­stýra Hunda­rækt­ar­fé­lags Íslands

Mannlíf tal­aði við Hall­gerði Hauks­dóttur for­mann Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands og hún hafði þetta um málið að segja:

Við hjá Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands  höfum ekki tekið form­lega afstöðu en ég get gefið mitt álit á mál­inu sem for­maður félags­ins. Það sem er álita­mál er það að hund­ur­inn er lif­andi vera og gagn­vart vel­ferð hunds­ins eru nokkur atriði sem mér finnst skipta máli. Hvar er hund­ur­inn fram að upp­boð­inu? Er hann í vörslu hins opin­bera eða er hann hjá ein­hverjum sem hann þekkir? Þetta skiptir hund­inn í sjálfu sér ekki máli ef hann er hjá ein­hverjum sem hann þekkir og honum líður vel. Lagalegt umhverfi, eigum við að koma svona fram við lif­andi veru?  Þá er það orðin spurn­ing hversu mikið er hund­ur­inn per­sónu­gerður. Við erum að mann­gera hund­inn fyrir hans hönd, ef að það er allt í lagi með hann og  hann er þar sem hann á heima og á stað þar sem honum líður vel  og verður þar áfram ef sá aðili til dæmis kaupir hann, þá skiptir það hann engu máli í raun og veru. Spurn­ingin er þá í raun hvernig viljum við búa að dýrum sem að hugs­an­lega lenda í þess­ari stöðu. Þetta getur til dæmis gerst með stóð­hesta og önnur rækt­un­ar­dýr sem eru mjög verð­mæt og eru í sam­eign. Það er þá spurn­ing hvort við sem sam­fé­lag þurfum ekki að finna leið til þess að tryggja öryggi þess­arra dýra. Þetta eru dýra­vernd­ar­sjón­ar­miðið en það er ekki endi­lega dýra­vernd­ar­sjón­ar­mið að það sé rangt að skera úr um hvar hundur eigi að eiga heima að lokum. Það er heldur ekki dýra­vernd­ar­sjón­ar­mið að það sé rangt að skera úr um það með aðstoð sýslu­manns sem er í raun loka- og neyð­ar­úr­ræði. Málið er fyrst og fremst hvað er gert við dýrið meðan á ferl­inu stendur. Ef dýrið er tekið af stað sem það þekkir vel til vörslu og vistað á ókunn­ugum stað er það alvar­legt í okkar augum, við horfum á þetta ein­göngu út frá dýr­inu. Það þarf að tryggja það að dýrið sé á góðum og öruggum stað fram að upp­boði.

Annað sem mig langar að taka fram er það að ef fólki er umhugað um verndun dýra þá ætti það ef til vill að ein­beita sér frekar að aðbún­aði ali­fugla, loð­dýra, svína, hvernig er farið með fiska í fisk­eldi og því hvernig minkum er drekkt sem lög­legri veiði­að­ferð á þeim. Það telst dýra­níð á öllum öðrum dýra­teg­undum nema minknum.

Hall­gerður Hauks­dóttir, for­maður Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands
Hér má sjá upp­lýs­ingar um eig­endur, rækt­anda og fleira. Mynd af Facebook
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við