Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lögreglumenn ævareiðir vegna Ásmundarsalsmálsins og engin dagbók send út

Lögreglumenn ævareiðir vegna Ásmundarsalsmálsins og engin dagbók send út
Lög­reglan

Mikil og almenn reiði ríkir innan raða lög­regl­unnar út af refs­ingu lög­reglu­mann­ana tveggja sem voru í Ásmund­ar­sal og gáfu upp í dag­bók að hæst­virtur ráð­herra hefði verið á meðal hinna brot­legu. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru lög­reglu­menn ævareiðir út af þeim úrskurði eft­ir­lits­nefndar að áminna beri lög­reglu­menn­ina sem komu á vett­vang í Ásmund­ar­sal, þar sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra ásamt fjölda ann­arra braut sótt­varn­ar­reglur.

Ein afleið­ing af þessu er að dag­bók lög­regl­unnar var ekki send til fjöl­miðla klukkan hálf sjö í morgun eins og venja hefur verið. Lög­reglu­menn mun nú ráða ráðum sínum um það hvort upp­lýs­ing­arnar verði sendar út eins og venja hefur verið. Mikil sam­staða er með lög­reglu­mönn­unum sem hafa verið snupraðir vegna Ásmund­ar­sals­máls­ins.

Lög­reglu­menn­irnir hafa verið áminntir af Eft­ir­lits­nefnd með starfs­háttum lög­reglu og er vísað til ummæla úr búk­mynda­vélum þeirra varð­andi ráð­herr­ann og frama­konur í Sjálf­stæð­is­flokknum sem voru í hinum umdeilda gleð­skap. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru þó ekki öll kurl komin til grafar varð­andi fram­komu gesta við lög­reglu­menn­ina.  Nið­ur­staða Eft­ir­lits­nefndar var á þann veg að hátt­semi lög­reglu­þjóna á vett­vangi í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu geti talist ámæl­is­verð og að til­efni sé til að senda þann þátt máls­ins til með­ferðar hjá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þá telur nefndin að auk þess að rann­saka frekar þátt lög­reglu­mann­ana beri einnig að end­ur­skoða þær verk­lags­reglur sem snúa að sam­skiptum lög­reglu við fjöl­miðla, en í skýrslu kemur fram að „ekk­ert til­efni hafi verið til upp­lýs­inga­gjafar af þessu tagi“ þar sem sagt var frá aðkomu hæst­virts ráð­herra að sótt­varn­ar­brot­inu.

Valdir hljóð­bútar af upp­tökum hafa ratað í fjöl­miðla nú þegar, en dag­bók lög­regl­unnar var hins vegar ekki send út til fjöl­miðla nú í morgun eins og venja hefur verið. Heim­ildir Mannlífs herma að lög­reglu­menn treysti sér ekki til að senda út þessar upp­lýs­ingar að svo stöddu og að öllu óbreyttu, en lag­anna verðir muni hins vegar ræða sín mál inn­byrðis og meta hvort ástæða þyki til að senda fleiri dag­bók­ar­færslur til fjöl­miðla héðan í frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina