Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Félagarnir í hrikalegum erfiðleikum á Everest-„Siggi er kominn með heila­bjúg“

Félagarnir í hrikalegum erfiðleikum á Everest-„Siggi er kominn með heila­bjúg“

„Ég hljóp út úr tjald­inu og kall­aði á leið­sögu­mann­inn: „Siggi er kom­inn með heila­bjúg.“ Þetta var hrika­legt. Þarna vorum við búnir að vera á ferða­lagi í um 60 daga. Ég man að ég stóð fyrir utan tjaldið og horfði á tind­inn, á meðan leið­sögu­mað­ur­inn setti súr­efnið í botn og reyndi að tala við Sigga, og ég hugs­aði: Þetta er búið,“ segir Heimir Fannar Hall­gríms­son sem er ásamt Sigurði Bjarna Sveins­syni í við­tali við Frétta­blaðið.

Þeir félaga gengu til styrktar Umhyggju – félagi lang­veikra barna.

Covid og heilabjúgur

Heimir og Siggi unnu það afrek að klífa hæsta tind ver­aldar að­fara­nótt mánu­dags­ins 24. maí, báðir með Covid-19 og Siggi með heila­bjúg. Þeir urðu þar með tíundi og ell­efti Ís­lend­ing­ur­inn til að sigra Everest-fjall.

Þeir lentu í mörgu á ferð sinni. Siggi hafði rifin lið­fþófa og slas­að­ist í þokka­bót illa á hné er þeir komu úr hæðar­að­lögun við ­Khumbu jökul­inn. Þurftu þeir að snúa við og man Siggi lítið eftir að hafa klifið ísvegg­ina að grunn­búð­unum og telur sig hafa lokað á það vegna sárs­auka. Ekki gekk að koma honum til heilsu og var hann sendur til Katmandu þar sem hann dvaldi í fimm daga.

Tjald­búðir þrjú voru þær ónýtar vegna hríðar. Ofan á það fara þeir að hósta. Þá grun­aði Covid, sem reynd­ist rétt, en heldu áfram, veikir, kaldir og þreyttir að tjald­búðum fjögur í 8.000 metra hæð. Einnig nefnt dauða­svæðið vegna súr­efn­is­skorts. Hóstinn versn­aði og tjöldin voru fokin.

Hvað heiti ég?

„Ég sat í tjald­inu með Sigga og sagði honum að Mingma, einn leið­sögu­mann­anna, væri kom­inn með auka súr­efn­iskút handa okkur. Þá horfði bara Siggi á mig, svo­lítið ringlaður á svip­inn, og sagði: Mingma? Ég er ekki alveg að kveikja.“ Ég var alveg stein­hissa en átt­aði mig fljót­lega á því að ekki væri allt með felldu svo ég spurði hann: Siggi, hvað heiti ég?“ og hann bara starði á mig og mundi ekki neitt.“

Var Siggi kom­inn þá með heila­bjúg vegna súr­efnis­skorts. Ein­hvern veg­inn hafði lok­ast fyrir súr­efnis­streymið í 8.000 metra hæð, þar sem súr­efnið er 20 pró­sent af því sem við erum vön að anda að okkur.

Man ekkert

Þetta var spurn­ing um 30 til 50 mín­útur. Hefði Siggi ekki náð að jafna sig hefðu þeir þurft að snúa við, að­eins 943 metrum frá toppnum. Að­spurður seg­ist Siggi muna eftir sam­tal­inu en ekki hafa tengt og skort í minni. Hann seg­ist hafa þekkt ein­kennin en ekki áttað sig fyrr en hann sá svip­inn á Heimi. Hann tók þá neyðar­lyf við heila­bjúg enda búinn að gleyma eigin nafni.

Hann náði að jafna sig og náðu þeir fínni hvíld, nær­ingu og sam­veru áður en þeir lögðu af stað á topp­inn.

Lík á lík ofan

Þeir hófu klifur á tind­inn klukkan 20.30 kvöldið 23. maí. Fljót­lega blasti við þeim lík. Það var göngu­maður sem hafði reynt að ná toppnum í ó­veðr­inu nokkrum dögum áður. „Það var skrítin til­finn­ing að ganga fram hjá látnum manni. Frosinn í blóð­rauðu tungl­inu. Til­finn­ing eins og að ryðj­ast inn á graf­reit.

Svo komu þeir að öðru líki. „Hann hafði lát­ist nokkrum dögum áður. Sama sagan en í þetta sinn var erfitt að af­hafna sig án þess að rekast á hann þar sem hann lá á klett­inum.

Stutt á milli lífs og dauða

Siggi og Heimir nálg­uð­ust topp Everest og gengu saman enda höfðu þeir staðið saman eins og klettur síð­ustu mán­uð­ina og vildu ná toppnum á sama tíma hlið við hlið.

Þeir segja að hugs­unin um hversu stutt sé á milli lífs og dauða á þessu fjalli hafi verið ríkj­andi á toppnum. „Ef eitt­hvað ger­ist í 8.848 metra hæð er eng­inn að fara að bjarga þér.“

Þeir félagar stóðu hlið við hlið á toppnum í korter. Svo hófst afar erfið nið­ur­leið

Úrvinda komust þeir á leiðar­enda eftir ell­efu daga ferð á fjall­inu og eftir 86 daga örlaga­ríka daga náðu þeir Heimir og Siggi sneru félag­arnir heim þann 11. júní. Everest-farar og hetjur.

Viðtalið má sjá í heild sinni í Frétta­blað­inu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina