Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Opið bréf Þórönnu til innbrotsþjófsins sem saurgaði heimili hennar: „Þú raufst minn griðastað“

Opið bréf Þórönnu til innbrotsþjófsins sem saurgaði heimili hennar: „Þú raufst minn griðastað“

„Ég geri ráð fyrir því miðað við útgang­inn sem þú skyldir heim­ilið mitt eftir í að þú sért því miður ekki á góðum stað í líf­inu; að öllum lík­indum bara alls ekki, lík­leg­ast eins langt frá því og hugs­ast getur,“ skrifar Þóranna Frið­geirs­dóttir í færslu á Facebook. Færslan er ætluð inn­brjóts­þjófi sem braust inn á heim­ili hennar.

Óð inn á skítugum skónum

„Þú óðst inn á mjög skítugum skóm sem skyldu eftir sig mikla drullu, blauta mold sem svo þorn­aði út um allt eld­hús þar sem hvert fót­spor fer ekki á milli mála. Ég sá að þú lést ekki duga að reyna að tæma aðeins neðri­skápana og upp­þvotta­vél­ina heldur nýttir þér fína ljós­bleika velúr-stól­inn minn einnig til að aðstoða þig við að ná upp í efri skápana. Það sést á skófar­inu í stólnum að þú ert ekki lít­ill maður, alla­veg­ana ekki lík­am­lega. Þú lést þér ekki nægja heldur að vaða um á skítugum skónum bara útum allt eld­hús því fal­legu ljós­bleiku mott­urnar mínar tvær inn í stofu og á gang­inum þurfa sér­staka hreinsun“.

Hún seg­ist velta fyrir sér hvort honum hafi ekki í alvöru þótt nægja til að taka nýja 65 tommu sjón­varpið hennar því svo virð­ist sem hann hafi einnig reynt að taka sjón­varps­hill­urnar niður.

„Ég skil þig alveg, þetta er mjög flott saman, enda er ég ný búin að kaupa þetta bæði og setja upp“

Rann bjórinn ljúft niður?

„Bjórinn sem þú fékkst þér rann lík­lega ljúft niður, hefðir raun­veru­lega alveg mátt fá þér sam­lok­una sem var til­búin inni ísskáp líka. En það var óþarfi að sulla bjórnum svo niður inn í barna­her­bergi litlu strák­anna minna þar sem að þú fórst með skítugar kruml­urnar þínar ofan í töskur, dót og föt vin­konu minnar sem var að gista hjá mér. Er tölvan hennar eitt­hvað að nýt­ast þér ? Eða snyrti­dótið hennar, fötin, skart­grip­irnir og skvísu­tösk­urnar ? Sé þig ekki fyrir mér sem klæð­skipt­ing, en hvað veit ég. Eða kannski áttu kær­ustu sem vant­aði fínt dót!! Því ég veit að það verður alla­veg­ana erfitt fyrir þig að selja not­aðar snyrti­vörur fyrir dökkt hör­und. En takk fyrir að láta skáp drengj­anna minna vera!“

Þóranna pælir í hvað inn­brots­þjóf­ur­inn hygg­ist gera við þau 50-70 naglalökk sem þjóf­ur­inn nýtti til að fylla skóla­tösku sonar hennar og stela. „Já eða snyrti­dótið? Hárt­eyj­urnar? Ég skil að þú getir selt eitt­hvað af skart­grip­unum mínum, en ólík­legt að það sé mark­aður fyrir notað snyrti­dót! En hvað veit ég svo sem“.

Fengum góða lýsingu

„Bless­un­ar­lega hefur hug­ar­á­stand þitt ekki vera með góðu móti því þér yfir­s­ást her­bergi dóttur minnar og allar hennar ger­semar voru látnar í friði, mikið er ég þakk­lát fyrir að hún hafi ekki verið heima og fyrir að ekk­ert var hreyft við hennar dóti. Þó við söknum raf­magns­hlaupa­hjóls­ins, sem hún notar mjög mikið“.

Þóranna spyr hann hvort hann hvort hann hafi ekki verið trufl­aður. „Svolítið scary þegar hringt er dyra­bjöll­unni eða þegar það var bankað á hurð­ina og kallað „Þóranna”? En hún sá þig, svo við fengum góða lýs­ingu á þér kæri þrjótur.

Þú gleymdir samt helm­ingnum af því sem þú ætl­aðir þér að taka í kjall­ar­anum og lyft­unni… eða ætl­aðir þú að koma aftur ?! Þar sem partur af því sem þú ætl­aðir þér að taka fannst. Þar á meðal sjón­varpið. Hvernig fórstu með sjón­varpið niður ? Varstu einn ? Það lítur alla­veg­ana út fyrir það miðað við kám, fingraför, brot og hnjask á sjón­varp­inu, þá var þetta smá bras er það ekki ? Ég skal samt við­ur­kenna að eins þakk­lát og ég er fyrir að partur af dót­inu hafi fund­ist, þá ertu samt eig­in­lega búin að skemma það allt fyrir mér, eins heim­ilið mitt“.

„Allt í einu er það bara ekki eins huggu­leg til­hugsun og það var“

Þóranna segir hafa verið rótað í fata­skápum og öllum sund­fötum. „Varst að ferja allt með tepp­unum okkar sem við notum til þess að kúra með upp í sófa?. Allt í einu er það bara ekki eins huggu­leg til­hugsun og það var.

„Ég er sterk“

„Þú raufst minn griða­stað og saurg­aðir heim­ilið mitt, réðst inn á mína frið­helgi og braust. Burt séð frá öllu dót­inu sem þú tókst og skemmdir þá tókstu frá mér öryggi sem engar trygg­ingar munu geta dekkað.

 Þóranna er ofsa­lega þakk­lát öllum lög­reglu­mönn­unum sem komu að mál­inu og aðstoð­uðu hana í geðs­hrær­ing­unni.  „Ég óska þess að þeir finni þig, ekki til þess að „skamma” og refsa… heldur til þess að þú fair hjálp. Ég vona svo inni­lega að þú fáir og þyggir þá aðstoð sem þú þarft og komir þér á beina braut. Því þetta er ekki staður sem neinn vill vera á, Ekki einu sinni þú.

„Gerðu rétt, láttu sjá þig og fáðu aðstoð. Ég skal fyr­ir­gefa þér, en fáðu hjálp“

Þú missir ást­vin, missir vinn­una, verður gjald­þrota. Þú ert mis­not­aður and­lega eða lík­am­lega. Ástvinur eða fjöl­skylda særa þig eða þú hrein­lega bara slasar þig. Þú verður fyrir ein­hvers­konar áfalli.

Þú ferð heim, hrjúfrar þig í faðm fjöl­skyldu þinnar og finnur fyrir huggun. Þú leggst upp í þitt rúm með þín rúm­föt og finnur fyrir hlýju. Þú læsir úti­dyra­hurð­inni og þú finnur fyrir öryggi. Þú ert komin heim og þar líður þér best.

 Hún spyrt hvert skuli fara í áfall­inu til að finna fyrir öryggi. Sumir hafa for­eldra­hús eða maka til að passa upp á öryggið sitt, en ef það er ekki til staðar, hvað gerir þú þá ?

„Ég er sterk, ein sú sterkasta sem ég veit um og ég veit að ég verð eins snögg og hægt er að byggja upp allt sem þú tókst frá mér, hvort sem um ræðir hluti eða ekki“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina