Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sigurlaug hefur áhyggjur af þremur blindum sonum sínum: „Þeim eru í raun allar bjargir bannaðar“

Sigurlaug hefur áhyggjur af þremur blindum sonum sínum: „Þeim eru í raun allar bjargir bannaðar“
Sig­ur­laug Hauks­dóttir í verslun sinni.

„Ég fædd­ist og ólst upp að mestu leyti í Skaga­firði en einnig í Garðabæ en hef lengst af búið austur á Héraði en ég er fyrrum bóndi en núver­andi versl­un­ar­maður og kaffi­húsa­eig­andi á Blöndu­ósi,“ segir Sig­ur­laug Gísla­dóttir, odd­viti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokk­inn. 

Sig­ur­laug rekur ásamt eig­in­manni sínum, Reyni Sigurði Gunn­laugs­syni, Húnabúð við bakka Blöndu. Hún var í þrjú ár rétt­inda­maður fatl­aðs fólks á Aust­ur­landi en hún þekkir mál­efni fatl­aðra per­sónu­lega.

„Ég á fjögur börn og þar af þrjá syni sem allir eru lög­blindir; einn þeirra er reyndar líka með meiri fötlun. Þeir fædd­ust það sem kall­ast öryrkjar. Og kerfið er bara þannig að það er svaka­legt fyrir börn að fæð­ast inn í það“.

Sig­ur­laug er mikið fyrir blóm.

Sig­ur­laug segir að ekki sé vitað hvers vegna allir syn­irnir fædd­ust lög­blindir og að það hafi ekki átt að vera fræði­legur mögu­leiki. 

„Íslensk stjórn­völd virð­ast ekki vita að þessi hópur, fatl­aðir, sé til; það er sama hvaða flokkur hefur verið við stjórn. Efnd­irnar eru engar þrátt fyrir fögur lof­orð,“ segir Sig­ur­laug en ástæða þess að hún gefur nú kost á sér er mál­efni fatl­aðra og heil­brigð­is­kerfið og reynsla hennar að vera móðir þriggja fatl­aðra sona. 

„Þetta fyrst og fremst setur mann í bar­áttu­ham fyrir bættum lífs­gæðum þess­ara ein­stak­linga hvort sem það eru synir mínir eða aðrir í svip­uðum sporum.“

Hvers vegna Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn?

„Ein­fald­lega vegna þess að þar fékk ég tæki­færi. Ég er búin að sjá margt gott fólk fara fram fyrir aðra flokka og hélt í fávisku minni að ef maður gengi til liðs við aðra flokka þá væri hægt að breyta þessu innan frá en það var bara hroka­fullt af mér að halda það því flokka­kerfið virð­ist kæfa það. Við hjá Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokknum förum öll fram í raun­inni á okkar for­sendum. Ég ein­beiti mér að mínum mál­efnum og mun aldrei gefa það eftir. Og ég hefði ekki farið fram á hlið­ar­lín­unni. Það var fyrsta sætið eða ekk­ert“.

Áhrif á heilsuna

Sig­ur­laug segir að bar­áttan við kerfið vegna fötl­unar sona hennar hafi litað líf sitt. 

„Það er svo sem ekk­ert öðru­vísi að eiga þá frekar en önnur börn. Ég á dóttur sem er heil­brigð og synir mínir fengu sama upp­eldi en fyrir þessa ein­stak­linga að full­orðn­ast þá eru þeim í raun allar bjargir bann­aðar, kerfið vinnur á móti þeim. Það er nátt­úr­lega fárán­legt nema þá að við­kom­andi eigi því­líkt betra bak­land. Þetta hefur litað líf mitt. Það er bara þannig. Maður hefur auð­vitað lært að standa á eigin fótum og við höfum þurft að berj­ast fyrir því sem maður telur þess virði að berj­ast fyrir. Þá hefur þetta haft áhrif á heilsu mína í gegnum tíð­ina. Álagið hefur verið mikið. Ég hugsa ekki nógu mikið um sjálfa mig og þetta hefur fyrst og fremst haft áhrif á stoð­kerfið. Er ekki það nýjasta að gigt sé áunnin? Að ef álag er of mikið þá fái fólk vefja­gigt og alls konar gigt? Álag á and­lega heilsu kemur fram í lík­am­anum. Ég er and­lega sterk en lík­am­inn hefur aðeins látið undan“.

Falinn fjársjóður

Sig­ur­laug hefur búið á Blöndu­ósi í sjö ár og hún segir að bæj­ar­búar hafi tekið ótrú­lega vel á móti fjöl­skyld­unni.

„Blönduós er „heima“. Hér er ofboðs­lega mikil nátt­úru­feg­urð. Það er heilun að koma hingað. Þetta er svo ein­stakt svo sem að ganga með fram Blöndu. Blönduós hefur verið þekktur bær fyrir að fólk ekur þar í gegn en feg­urðin er svo­lítið falin frá þjóð­veg­inum; hún er samt alveg við þjóð­veg­inn. Það er til dæmis ein­stakt að ganga upp á Spá­konu­fellið við Skaga­strönd og göngu­leið­irnar hér allt um kring eru ein­stakar“.

Sig­ur­laug rekur eins og fyrr segir kaffi­húsið Húnabúð. 

„Mar­engstert­urnar eru mjög vin­sælar sem og brauðtert­urnar. Það er allt heima­bakað. Ég baka allt sjálf. Svo eru það kúm­en­kringl­urnar; það er upp­skriftin hennar mömmu. Ég nota að mestu upp­skriftir frá mömmu og tengda­mömmu. Svo er konur í bænum að læða að mér upp­skriftum sem ég nota líka. Hér er heim­il­is­legt and­rúms­loft,“ segir Sig­ur­laug en potta­blóm og afskorin blóm ein­kenna kaffi­húsið þar sem einnig hægt er að kaupa íslenskan lopa.

„Ef það er nóg af blómum þá er ég alsæl. Ég sel yfir­leitt sum­ar­blóm á vorin líka fyrir utan kaffi­húsið en ég gat það ekki í vor út af skorti á starfs­fólki“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una