Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

,,Erla mín, það fórust allir nema pabbi þinn“ – ,,Farðu nú út aftur að leika þér“

,,Erla mín, það fórust allir nema pabbi þinn“ – ,,Farðu nú út aftur að leika þér“
Svanborg Ingi­mund­ar­dóttir.

„Þegar ég fór í far­skól­ann var ég að fara að heiman í fyrsta skipti, ell­efu ára gömul. Ég var afskap­lega lítil og aum í mér þegar ég fór en aldrei óraði mig fyrir því þegar ég kvaddi móður mína þann dag að ég væri að kveðja hana í hinsta sinn,“ sagði Erla Jóhanns­dóttir frá Goðdal í Bjarn­ar­firði um aðdrag­and­ann að ægi­legum atburði sem átti eftir að marka allt hennar líf.

Hún sagði sögu sína í útvarps­þætt­inum Á milli mjalta og messu sem Anna Kristine Magn­ús­dóttir stýrði. Erla rifj­aði upp kveðju­stund­ina á aðvent­unni 1948.

„Mamma kvaddi mig með þeim orðum að hún von­aði að ég lærði aldrei að blóta og ég myndi haga mér vel. Ég hef staðið við það og sterkasta blóts­yrðið mitt er „ótæti“.

Þetta voru sein­ustu sam­skipti móður og dóttur í þessu jarð­neska lífi. Stúlkan hélt að heiman í skól­ann í Asparvík en óraði ekki fyrir því sem átti eftir að ger­ast á æsku­heim­ili hennar.

Þann 12 des­em­ber ætl­aði faðir Erlu að sækja hana í Asparvík. En hann kom ekki á til­settum tíma og Erla reyndi að hringja heim en eng­inn svar­aði.

„Þrátt fyrir að eng­inn á heim­il­inu svar­aði sím­hring­ingum mínum hvarfl­aði aldrei að mér að neitt alvar­legt væri að, enda var ég nú ekki nema ell­efu ára. Það var búið að vera ágætt veður, svona harð­fenni og svo snjó­aði ofan á harð­fennið og það hafði verið blind­bylur þessa daga, en svo birti upp þarna 16. des­em­ber. Ég taldi því að ástæðan fyrir því að pabbi kom ekki þann 12. væri sú að veðrið hefði ein­fald­lega verið of slæmt til ferða­laga,“ sagði Erla rúm­lega hálfri öld síðar.

Hinn grimmi veru­leiki var sá að snjó­flóð hafði fallið á bæinn í Goðdal og fjöl­skyldan lá grafin í snjó­flóð­inu. Þar lá faðir hennar í fjóra sól­ar­hringa. Konan hans Svanborg Ingi­mund­ar­dóttir, og dætur hennar tvær, Svan­hildur sjö ára og Ásdís tveggja ára fór­ust. Einnig lét­ust í slys­inu afa­systir Erlu, hennar dóttir og dótt­ur­sonur.

Vonlaus barátta

Anna Kristine fékk í hendur minn­ingar föður hennar, Jóhanns Krist­munds­sonar, sem lifði snjó­flóðið af og skrif­aði um þá skelfi­legu reynslu. Hann hlust­aði á konu sína og dætur deyja. Eftir hann liggur ótrú­leg frá­sögn af þeim harm­leik sem hann upp­lifði:

,,…Tíminn leið, stór­hríðin lamdi rúst­irnar. Inni í þeim var háð bar­átta við dauð­ann, von­laus að vísu, og nokkrir höfðu þegar fengið hvíld. Hvíld frá því lífi sem ekki hafði sýnt þeim sína björtu hlið svo nokkru næmi, hægur dauð­dagi var því kær­komin lausn. Aðrir háðu þar bar­áttu fyrir áfram­haldi ham­ingju­sams lífs. Þeir vissu að þeir voru börnum sínum, systk­inum og for­eldrum ómissandi leið­ar­ljós, en hinn grimmi örlaga­valdur, dauð­inn, spyr ekki að slíku. Frá bar­áttu þeirra vitum við ekki að segja. Við skulum vona, því við vitum ekki annað, að eldri kon­urnar tvær hafi fengið hægt and­lát. Um hin fjögur er vitað að þar var bar­áttan milli lífs og dauða háð sól­ar­hringum saman. Barátta eldri telpunnar, Svan­hildar mun eins­dæmi, því hún var með lífs­marki klukkan ell­efu á fimmtu­dags­kvöldi er hún var loks grafin úr rúst­unum en and­að­ist ekki fyrr en klukkan tvö árdegis á föstu­dag.“

Farðu svo út að leika

Þótt Erla væri áhyggju­full yfir því að pabbi hennar kæmi ekki og hún næði ekki sím­sam­bandi heim, hélt hún áfram að lifa lífi hins sak­lausa barns. En svo rann upp sú skelfi­lega stund þegar hún frétti af örlögum fjöl­skyldu sinnar. Fjórir höfðu látið lífið.

Erla Jóhann­es­dóttir

„Ég var úti að leika mér með hinum krökk­unum þegar Helgi, kenn­ari við skól­ann, kall­aði á mig inn á kenn­ara­stofu. Hann sagði við mig: ,,Erla mín, það varð slys heima hjá þér. Það fór­ust allir þar nema pabbi þinn og hann er hel­særður. Farðu nú út aftur að leika þér.“

Erla sagð­ist muna ósköp lítið frá þess­ari stund en mundi þó að hún fór og sett­ist á rúmið sitt og grét.

„Þá kom að mér sautján ára stúlka, Dúdda, sem síðar varð ljós­móðir, og hún sagði mér að ég hefði setið alveg stjörf. Síðan hefði ég farið inn á her­bergið mitt, lagst út af í rúm­inu og þá kom hús­móð­irin í skól­anum til mín. En það kemur aldrei neinn í stað móður, eng­inn. Það er ekki hægt“.

„Ég hróp­aði og bað, – bað Guð almátt­ugan að mis­kunna sig yfir fólkið mitt en láta þján­ing­arnar bitna á mér,“ skrifar Jóhann. „Ég bað þess að ef það ætti nú að deyja að gefa því rólegt and­lát, en yfir­færa heldur dauða­stríð þess á mig. Ég hróp­aði bæn­ina og róað­ist.“

Erla rifjar upp þján­ingar föður síns.

„Það var þessi hræði­lega upp­lifun hans að heyra í börn­unum sínum og geta ekki komið þeim til hjálpar. Það er nátt­úr­lega ekki hægt að hugsa sér að mað­ur­inn skyldi nokkurn tím­ann halda sönsum eftir þetta og mér finnst merki­legt að hann skyldi kom­ast þetta áfram eins og hann gerði í nokkur ár á eftir og fékk aldrei nokkra ein­ustu hjálp. Auðvitað hefðum við systk­inin og ekki síst pabbi þurft að fá áfalla­hjálp. Við fengum enga hjálp, varla frá okkar nán­ustu því þau voru svo hel­tekin af sorg að við gleymd­umst. Kannski var bara ekki litið á okkur börnin sem mann­verur sem myndu skilja hlut­ina. Ég hef oft hugsað um þetta: Hvers vegna tók okkur eng­inn í fangið? Pabbi var mikið kal­inn. Hann kól á báðum oln­bogum og báðum fótum og það þurfti að taka af honum annan fót­legg­inn. En það var minn­ingin um dauða dætra hans og eig­in­konu sem fór verst með hann eins og kemur fram í sam­tali hans við Jónas, sem lét lífið í þessu flóði:

„Við töl­uðum um líkur fyrir björgun, bjugg­umst við pósti norður yfir háls þann dag og fram eftir dag­inn eftir. Jónas sagði mér oft að Ásdís litla væri bæði þyrst og svöng og um kvöldið bað hann mig ákaft að reyna að koma til sín og taka hana, hún kalli grát­andi á mömmu sína – „nú kallar hún á pabba sinn, heyrir þú ekki til hennar?“ spyr Jónas. … Ég braust um af alefli, rak axlir og oln­boga út í klaka­hell­una sem kringum mig hafði mynd­ast. Ekkert lát var á neinu, ég fann sárt til í hægri oln­bog­anum og hætti þessum þýð­ing­ar­lausu umbrotum. Jafnvel neyð­aróp yngstu dóttur minnar og vonin um að ef ég gæti losað mig myndi ég máske getað bjargað dætrum mínum og konu, þeim þrem mann­eskjum sem mér hafði þótt vænst um í líf­inu, gat ekki veitt mér þann styrk sem þurfti til þess að losa þær viðjar er hið mis­kunn­ar­lausa snjó­flóð hafði nú bundið mig í. Ég bað Jónas að hlúa að Ásdísi og hugga eftir því sem hann gæti.“

Erla var í Asparvík um jólin.

„Það fór nú ósköp vel um mig þarna. Hús­móð­irin átti mörg börn og ég var bara eins og eitt þeirra þessi jól. Ég frétti mjög lítið af mínu fólki, bræður mínir, Bergþór, sem síðar varð grasa­fræð­ingur og lést árið 2006, og Haukur, verk­fræð­ingur, voru á Reykja­skóla í Hrúta­firði. Pabbi á Land­spít­al­anum, enda mikið slas­aður. Það ein­kenni­lega er að ég átti móð­ur­bræður og móð­ur­systur í firð­inum, en eng­inn bauð mér dvöl hjá sér né heim­sótti mig. Ég fékk ekki að hlusta á útvarp og mér var haldið í algjörri óvissu og ein­semd. Dagarnir eftir slysið og næstu vikur á eftir eru sem í þoku. Mér fannst pabbi rólegri eftir slysið en áður. Hann var svo­lítið strangur við okkur, en ég veit að hann komst aldrei nokkurn tím­ann yfir þetta.“

Þessi atburður snerti við allri þjóð­inni. Vísir sagði svo frá: „Alla íslend­inga mun hafa sett hljóða, er hin átak­an­lega fregn barst um landið, að snjó­flóð hefði grandað sex manns­lífum, og heim­ili bónd­ans í Goðdal lagt í rúst af völdum viltra og miskun­ar­lausra nút­t­úru­aifla, er snjó­skriðan örlaga­ríka féll á bæinn.“ Blaðið skor­aði á lands­menn að láta eitt­hvað að hendi rakna til fjöl­skyld­unnar. 

Bærinn fór í eyði í eftir að snjó­flóðið fell á hann úr Hóls­fjalli. Þeirra sex sem fór­ust í snjó­flóð­inu  var minnst 1998, þegar minn­is­varði var afhjúp­aður neðan Bjarn­ar­fjarð­ar­háls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina