Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Magnús segir Áslaugu óörugga og kaldlynda: „Að biðjast afsökunar er virðingarverður eiginleiki“

Magnús segir Áslaugu óörugga og kaldlynda: „Að biðjast afsökunar er virðingarverður eiginleiki“
Áslaug Arna og Bjarni Ben á góðri stundu. Horfa fal­lega og með mann­kær­leika í augum á hvort annað.

Lög­fræð­ing­ur­inn Magnús D. Norðdahl er mjög ósáttur með hátt­semi Útlend­ing­ar­stofn­unnar og dóms­mála­ráð­herra, Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, varð­andi hæl­is­leit­endur hér á landi.

„Að kunna að biðj­ast afsök­unar er eig­in­leiki sem tal­inn er virð­ing­ar­verður í sið­mennt­uðu sam­fé­lagi. Fólk sem er öruggt í eigin skinni gengst iðu­lega við mis­tökum sínum og biður hlut­að­eig­andi aðila afsök­unar. Þetta er talið svo mik­il­vægt að reynt er að kenna börnum þessa hátt­semi strax á unga aldri,“ segir Magnús og heldur áfram:

„Skortur á afsök­un­ar­beiðni ber hins vegar vott um óör­yggi, kald­lyndi og sinnu­leysi gagn­vart þeim aðilum sem brotið var á.“

Magnús nefnir að „eins og flestum er kunn­ugt um vís­aði Útlend­inga­stofnun hæl­is­leit­endum á göt­una án hús­næðis og fæðis fyrr á þessu ári. Hæl­is­leit­endur eru einn við­kvæm­asti hópur okkar sam­fé­lags og hluti þeirra sem end­uðu á göt­unni áttu í engin hús að venda. Einn þess­ara aðila gisti á götum Reykja­vík­ur­borgar kalda frostnótt í mars síð­ast­liðnum áður en góð­hjart­aðir með­borg­arar komu honum til hjálpar.“

Magnús segir að tals­maður Útlend­inga­stofn­unar Þor­steinn Gunn­ars­son hafi komið fram í fjöl­miðlum og varið „hátt­erni stofn­un­ar­innar og sama gerði dóms­mála­ráð­herra Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir þegar hún var spurð um málið á Alþingi.“

Um þessa hátt­semi segir Magnús:

„Umrædd hátt­semi stofn­un­ar­innar hefur nú verið úrskurðuð ólög­mæt af kæru­nefnd útlend­inga­mála. Eftir sem áður hefur eng­inn þeirra sem tjáði sig um málið af hálfu stjórn­valda stigið fram og beðist afsök­unar; þögnin er vopn þeirra sem engar varnir hafa,“ segir Magnús og bætir við „að sú aðferða­fræði er alþekkt og gengur út á að almenn­ingur og fjöl­miðlar gleymi hratt og snúi sér að öðrum málum.“

Og bætir við:

„Á sama tíma og dóms­mála­ráð­herra þegir þunnu hljóði í þessu máli fannst henni við­eig­andi að krefja lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um afsök­un­ar­beiðni í tengslum við Ásmund­ar­sals­málið. Tví­skinn­ungur ráð­herra liggur í augum uppi.

Ég skora á Þorstein Gunn­ars­son tals­mann Útlend­inga­stofn­unar og dóms­mála­ráð­herra Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, sem fer fyrir mála­flokknum, að stíga fram og biðj­ast afsök­unar vegna þeirrar ólög­mætu og ómann­úð­legu hátt­semi sem hæl­is­leit­endum var sýnd,“ segir lög­fræð­ing­ur­inn Magnús. Og skorar „á okkur hin að halda þess­ari kröfu til streitu þar til þau gefa sig og haga sér í sam­ræmi við reglur og við­mið sið­mennt­aðs sam­fé­lags.“

Heimild: visir.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina