Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brotnaði saman á skrifstofu Tryggingastofnunar: „Sorglegt og óendanlega erfitt“

Brotnaði saman á skrifstofu Tryggingastofnunar: „Sorglegt og óendanlega erfitt“
Myndin teng­ist efni grein­ar­innar ekki beint.

„Ég hef alltaf staðið við allar mínar skuld­bind­ingar og aldrei skuldað neinum neitt. En núna er ég í þeirri stöðu að brotna saman á skrif­stofu Trygg­ing­ar­stofn­unar og þurfa að grát­biðja um hjálp.  Ég upp­lifi ekk­ert nema höfnun frá kerf­inu og finnst eins og barnið mitt sé ekki vel­komið inn í þetta sam­fé­lag,“ segir tveggja barna móðir í við­tali við Mannlíf.

Hrædd við kerfið

Kvölvið­tal Mannlífs er með nokkuð öðru sniði þar sem við­mæl­andi kemur ekki fram undir nafni. Upp­haf­lega ætlað konan að koma fram undir nafni en ótt­að­ist mjög nei­kvæðar afleið­ingar, við að „kerfið” myndi refsa henni á ein­hvern hátt fyrir að segja sínu sögu. Hún sagði blaða­manni rétt fyrir birt­ingu við­tals­ins að hún væri hrædd og upp­lifði sig varn­ar­lausa gagn­vart kerf­inu. Hún þorði ekki að fara á móti því með birt­ingu við­tals.

Sama kerfi og hefur fram­tíð hennar í höndum sér.

Konan var miður sín og sagði sér afar erfitt að opin­bera mál sín, ekki síst fjöl­skyldu sinnar vegna en féllst þó á að koma fram nafn­laust. „Það er kom­inn tími til að ræða þetta“.

„Eitt veit ég og það er að það sem ég hef þurft að díla við og græja er aldeilis ekki að hjálpa mér á vinnu­mark­að­inn aftur, fjær honum ef eitt­hvað er. Það er búið að vera sorg­legt og óend­an­lega erfitt að eiga við þetta kerfi. Ég lendi á vegg hvert sem ég er send. Ég fæ sting í hjartað við að tala um það.

Barnið ekki velkomið

Forsaga máls­ins er að konan var búin að vera í end­ur­hæf­ingu frá 2018 vegna stoð­kerf­is­verkja, kvíða og áfallastreiturösk­unar. Hún varð svo ófrísk árið 2020. „Öll með­gangan gekk  illa, ég fékk mikla grind­ar­gliðnun og var verkjuð alla með­göng­una. Þess utan var Covid í hámarki og mað­ur­inn minn missti vinn­una”.

Hún segir til­heyr­andi tekju­tap og kvíða hafa tekið mjög á sig. Hún eign­ast dreng­inn sinn í októ­ber 2020 og sama mánuð útskrif­aði VIRK hana úr end­ur­hæf­ingu með þeim orðum að ekk­ert gengi upp. „Það hellt­ist yfir mig sú til­finn­ing að barnið væri ekki vel­komið í heim­inn og það væri verið að refsa mér fyrir að eign­ast hann”.

VIRK gerir kröfu um um dag­gæslu­pláss sem konan segir vand­fundið sínu bæj­ar­fé­lagi auk þess sem það kosti 75 þús­und krónur á mán­uði.

Viðkvæm og varnarlaus

Hún fékk greiðslu end­ur­hæf­inga­líf­eyris frá Trygg­ing­ar­stofnun 1. októ­ber en var hafnað í nóv­em­ber á þeim for­sendum að það vant­aði meiri „félags­lega þætti“.

„Gott og vel en hvar átti ég að sækja um nám­skeið í miðju Covid ástandi? Það var allt lokað. En ég gerði það sem ég gat, stund­aði mína end­ur­hæf­ingu og fór í reglu­lega í við­töl til sál­fræð­ings og sund­leik­fimi sem ég greiddi sjálf að fullu“.

„Þetta var korter í jól, þarna var ég með nýfætt barn, í henglum eftir fæð­ing­una, mað­ur­inn minn atvinnu­laus og ég, tekju­laus, í því að hringja og senda enda­laus gögn út um allt. Ég var við­kvæm og varn­ar­laus, skamm­að­ist mín og vildi ekki tala um þetta við neinn, ekki einu sinni mann­inn minn. En ég hef þagað of lengi.

Ég veit til þess að það eru margir í þess­ari stöðu og örugg­lega ein­hverjir sem eru verr staddir en ég“.

Vill enga ölmusu

Konan hefur alltaf stefnt á að fara aftur á vinnu­mark­að­inn og unnið að því hörðum höndum. „Ég er ekki að kvarta eða biðja um ölm­usu, sem ég myndi aldrei þiggja. Ég er ein­fald­lega að segja að ég er í óvið­ráð­an­legri aðstöðu núna en fæ hvergi hjálp til að kom­ast úr henni”.

Í jan­úar á þessu ári óskaði hún eftir fæð­inga­styrk, sem er 80 þús­und krónur á mán­uði. Það var það eina sem hún hefði rétt á. Hún átti ekki rétt á fæð­ing­ar­or­lofi þar sem hún hafi verið á end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Þetta er því þriðji tekju­lausi mán­uð­ur­inn frá fæð­ingu barns­ins.

„Ég var í fullri vinnu þegar ég átti eldra barnið mitt og það gekk eins og draumur, ég fékk að vera með barn­inu mínu í 9 mán­uði á sex mán­aða fæð­ing­ar­or­lofi. En ef þú eign­ast barn á meðan þú ert í end­ur­hæf­ingu eru allar bjargir bann­aðar. Þetta er engin óska­staða”. Hún segir að eins og alla mæður hafi hún verið skimuð fyrir fæð­ing­ar­þung­lyndi. „Ég get ekki ímyndað mér að ég hafi skorað vel þar”.

Konan átti aðeins rétt á einum mán­uði aft­ur­virkt og fékk 160 þús­und krónur greiddar fyrir des­em­ber og jan­úar. „En ekki nóg með það. Það var tek­inn 100% skattur af þess­ari veg­legu upp­hæð svo ég fékk heilar 110 þús­und krónur”.

Of tekjuhá fyrir aðstoð

Hún leit­aði til síns bæj­ar­fé­lags sem hafn­aði beiðni um aðstoð á þeim for­sendum að fjöl­skyldan væri of tekjuhá. Þá voru einu tekjur fjöl­skyld­unnar atvinnu­leys­is­bætur manns­ins hennar, 230 þús­und krónur, sem voru ætl­aðar fjög­urra manna fjöl­skyldu.

Konan vildi þó ekki gef­ast upp og skráði sig í skóla sem kall­aði á að hún færi frá þriggja mán­aða barni sínu tvö kvöld í viku og annan hvern laug­ar­dag. Með því upp­fyllti hún meðal ann­ars kröfu Trygg­inga­stofn­unar um „félags­lega þætti“.  Hún segir það hins vegar hafa verið súra stöðu að þurfa að minnka brjósta­gjöf­ina til að geta sinnt nám­inu og svo fór að hún missti mjólk­ina. Hún telur að streita hafi einnig átt sinn þátt í því.

Núna þegar skól­anum er lokið veit hún ekki hvert skal leita. Hún leit­aði til VIRK sem ráð­lagði henni að fara á vinnu­markað. Sál­fræð­ingur mat það hins vegar svo að hún væri ekki vinnu­fær auk þess sem lækn­ir­inn hennar synj­aði henni um vinnu­hæfn­is­vott­orð á sömu for­sendum.

Veit ekki hvað tekur við

Konan segir vonda til­finn­ingu fylgja því að fá stöðugt hafn­anir og jafn­vel skammir frá kerf­inu. „Nú er ég aftur að sækja um end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og lækn­ir­inn minn gerði ítar­lega end­ur­hæf­ing­ar­á­ætlun. Það gleymd­ist aftur á móti að segja mér að lækn­ir­inn getur ekki sent þessi gögn raf­rænt til Trygg­ing­ar­stofn­unar, sem ég gerði ráð fyrir. Ég þurfti víst að sækja þau sjálf sem þýddi að mán­að­ar­mót voru liðin og þar missti ég heilan mánuð sem ég hefði getað nýtt. Það tekur ein­hverjar sex vikur að vinna úr gögn­unum, núna er allir dottnir í sum­ar­frí, og ég verð því tekju­laus þennan mán­uð­inn og hugs­an­lega þann næsta“.

Konan seg­ist hrein­lega ekki vita hvað taki við en þakki þó fyrir að mað­ur­inn hennar sé komin með vinnu eftir fjórtán mán­aða atvinnu­leysi. Hún er óvinnu­fær að mati lækna og sál­fræð­inga. Ef hún væri það heppin að kom­ast aftur að hjá VIRK er gerð krafa um dag­skrá sem kallar á dag­vist fyrir barnið og hún veit ekk­ert hvenær Trygg­ing­ar­stofnun ákvarðar um endu­hæf­inga­líf­eyri. ,,Þetta er óþægi­leg staða að vera í. Ég vil ekki þurfa að nýta barna­bæt­urnar í að lifa, börnin eiga rétt á því fé. Ég er að reyna af krafti að kom­ast aftur á vinnu­mark­að­inn og sinni end­ur­hæf­ing­unni á eigin kostnað en það er eng­inn til að grípa mann í þess­ari stöðu.

Þetta er ekki boð­legt og maður er enda­laust hissa yfir þessum hringjum sem maður er lát­inn hlaupa,“ segir móð­irin, sem kallar eftir breyt­ingu á við­horfi og verk­lagi innan kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una