Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Farinn að trúa því að hann væri sjálfur djöfullinn“

„Farinn að trúa því að hann væri sjálfur djöfullinn“
Þessar myndir birt­ust í DV af tveimur hinna dæmdu.

Fjórir þekktir und­ir­heima­hrottar frá Akureyri voru dæmdir til fang­els­is­vistar fyrir hrotta­legar lík­ams­árásir og frels­is­svipt­ingu. Þeir eru Daniel Christensen, einnig þekktur sem Danni danski, Elmar Þór Svein­ars­son, Ísak Logi Bjarna­son og Sindri Snær Stef­áns­son, einnig þekktur sem Sindri sýra. Félagi þeirra frá Reykja­vík, Víðir Ernir Ómarsson, hlaut einnig dóm í sama máli.

Árás­irnar sem menn­irnir eru dæmdir fyrir eiga það allar sam­merkt að hafa verið hrotta­legar en þær voru framdar á árun 2017 og 2019. Ísak kastaði til að mynda hníf í bak brota­þola fyrir utan heim­ili ömmu hans og rak skæri upp í nefið á öðrum. Danni danski sló einn í höf­uðið með hamri og Sindri sýra brenndi annan með sígar­ettu á vinstra hand­ar­bak.

Danni danski var ákærður fyrir hrotta­legar lík­ams­árásir. Samkvæmt dómnu rudd­ist hann, í félagi við tvo aðra sem sýkn­aðir voru í mál­inu, tvisvar á einum degi inn á heim­ili tveggja aðila og börðu þá með klauf­hamri og hnefum. Lýs­ing­arnar eru hrotta­legar en lýs­ingu kváð­ust brota­þolar hafa verið „lamdir þó nokkuð oft með hamri“ og ótt­ast um líf sitt. Þá  Til­gangur árás­ar­innar var sá að fá brota­þola til að draga til baka eða breyta fram­burði sínum í öðru saka­máli gegn Danna.

Frelsissvipting og hnífaárás

Danni, Elmar Þór, Ísak Logi, Sindri Snær og Víðir Ernir voru allir dæmdir fyrir að hafa svipt ein­stak­ling frelsi í meira en fimm klukku­stundir vegna fíkni­efna­skuldar við Danna. Maðurinn ótt­að­ist um líf sitt í haldi mann­anna enda voru fingur hans afmynd­aðir með töng, skærum stungið upp í nef hans, hann sleg­inn með hamri og brenndur með sígar­ettum.

Ísak Logi og Sindri Snær voru einnig ákærðir fyrir til­raun til mann­dráps eftir stór­hættu­lega lík­ams­árás þar sem þeir stungu mann með hnífi í bring­una og bakið. Við illan leik náði mað­ur­inn að kom­ast inn til ömmu sinnar og sleppa undan tví­menn­ing­unum. Svona er árásinni lýst í dómnum:

„Af frá­sögn brota­þola er síðan fylgdi má ráða að Sindri Snær hafi stungið hann í brjóst­kassa, brota­þoli náð að bera hægri hönd sína fyrir hnífslagið og þá skorist á litla fingri, hann síðan sparkað í fætur Sindra Snæs, hlaupið í átt að húsi ömmu sinnar, ákærði Ísak Logi elt hann, kastað hnífi í bak hans er brota­þoli kom að hús­inu, brota­þoli náð að draga hníf­inn úr sár­inu, hent honum í garð nágrann­ans, síðan dottið í göt­una, ákærði þá stokkið á hann með þeim afleið­ingum að höfuð brota­þola dúndrað­ist í göt­una, ákærði því næst dregið fram kylfu og slegið henni í bak brota­þola. Brota­þoli hafi svo náð að sparka í pung ákærða, hann við það látið sig hverfa, brota­þoli bankað á glugga hjá ömmu sinni og hún hleypt honum inn.“

Sjáfur djöfullinn

Tví­menn­ing­arnir réð­ust einnig á tvo aðra menn inn á heim­ili ann­ars þeirra og rúst­uðu íbúð þeirra. Við yfir­heyrslu bar Sindri fyrir sig mik­illi vímu­efna­neyslu þar sem hann sagð­ist hafa trúað því að hann væri sjálfur djöf­ull­inn.

Danni var dæmdur í 22 mán­uði. Elmar dæmdur í 15 mán­aða fang­elsi. Ísak Logi í 18 mán­aða fang­elsi. Sindri Snær í 18 mán­aða fang­elsi. Víðir Örn 10 mán­aða fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina