Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þórhildur átti erfitt að treysta og eignast vini:„Mikið um uppnefni, útilokun og líkamlegt ofbeldi“

Þórhildur átti erfitt að treysta og eignast vini:„Mikið um uppnefni, útilokun og líkamlegt ofbeldi“
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Mynd / Aldís Páls­dóttir.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, er höf­undur skýrslu um alvar­leg mann­rétt­inda­brot á Krím­skaga sem var nýlega sam­þykkt á Evr­ópu­ráðs­þing­inu og vill for­seti rúss­neska þings­ins nú banna Þórhildi Sunnu að koma til Rúss­lands vegna þessa. Frétta­blaðið greindi frá því að Vyacheslav Volodin, for­seti Dúmunnar, rúss­neska þjóð­þings­ins, hafi sagt að skýrsla sé byggð á fölskum upp­lýs­ingum.

„Eins og er eru þetta bara orð og ekki aðgerðir sem betur fer, enda ber Rússland laga­lega samn­ings­leg skylda til að hleypa mér inn í landið ef nefndin mín, laga- og mann­rétt­inda­nefnd Evr­ópu­ráðs­þings­ins, ákveður að senda mig þangað vegna vinnu minnar vegna skýrslu um póli­tíska fanga í Rúss­landi sem er önnur skýrsla heldur en sú sem þeir eru ósáttir við akkúrat núna,“ segir Þór­hildur Sunna í við­tali við Mannlíf. „Þannig að þetta er eins og er bara yfir­lýs­ing frá for­seta Dúmunnar sem vissu­lega ber að taka alvar­lega en er ekki ein­hver form­leg ákvörðun um hvort ég megi heim­sækja Rússland eða ekki. Þannig að ég er ennþá bjart­sýn á að ég geti farið þangað og sinnt mínum skyldu­störfum þar.“

Þór­hildur Sunna ásamt unnusta sínum, Rafal Orpel, og syn­inum, Antoni Erni Orpel.

Þór­hildur Sunna segir að sér finn­ist vera áhuga­vert að jafn­valda­mik­ill maður og for­seti rúss­nesku Dúmunnar sé að fetta fingur út í skýrslu sem hún skrif­aði.

„Ég held að það þýði bara að hann sé að hlusta og lýsi svo því að það sem ég geri veki eft­ir­tekt. Á maður þess vegna ekki bara að taka þessu sem hrósi?“

Ófætt barnið uppnefnt

Alþing­is­menn eru oft gagn­rýndir á ýmsan hátt, hvort sem það eru hátt­settir, erlendir emb­ætt­is­menn eða íslenskum almenn­ingur, og þeir þurfa að hafa harðan skráp. Þór­hildur Sunna segir að það fari alveg eftir því hvers eðlis gagn­rýnin er hverju sinni hvernig hún taki slíku.

„Stundum bein­ist gagn­rýnin að hlutum sem ég hef gert eða ein­hverju sem ég hef sagt og virkar þá mál­efna­leg og upp­byggj­andi. Ég þarf að vera opin fyrir því að það sem ég segi og geri sé gagn­rýnt og læri af því og reyni að gera betur. Svo er annað þegar fólk er að ráð­ast á mig sem per­sónu eða fjöl­skyldu mína og jafn­vel ófætt barn mitt á sínum tíma; þá tek ég því ekki jafn­vel. Ég reyni bara að hugsa að fólk sem gerir slíkt hefur ekk­ert mál­stað sínum til fram­dráttar eða að það sýni hversu veikur mál­staður þeirra er.“

Sonur Þór­hildar Sunnu, Antoni Örn, er fjög­urra og hálfs mán­aða og hún segir að áður en hann fædd­ist hafi hún lesið upp­nefni um hann á komennta­kerf­inu.

„Mér finnst það vera einum of langt gengið; fólk má vera svo­lítið veikt í hausnum til þess að ráð­ast á ófædd börn.“

Það breytti nátt­úr­lega miklu þegar frum­burð­ur­inn kom í heim­inn.

Þór­hildur Sunna með stall­systur sinni frá Lett­landi, Krista Baumane.

„Það breytti svo­lítið for­gangs­röð­un­inni. Vinnan mín hefur alltaf verið númer eitt, tvö og þrjú og núna er vinnan mín númer tvö, þrjú, fjögur og fimm. Strák­ur­inn er númer eitt. Það hefur verið svo­lítil áskorun að vera í fullri vinnu og með hann á brjósti en við hjálp­umst öll að í fjöl­skyld­unni minni. Ég og unnusti minn, Rafal Orpel, hjálp­umst að; við erum með kerfi þar sem ég get gefið syni mínum brjóst og verið í fullu starfi sem þing­maður og líka sem full­trúi Íslands á erlendri grunu. Við Antoni Örn vorum einmitt að koma heim úr stór­merki­legri ferð þar sem þessi skýrsla var einmitt sam­þykkt á Evr­ópu­ráðs­þing­inu. Þar var ekki mikið gert ráð fyrir unga­börnum get ég sagt þér; Alþingi er tölu­vert fjöl­skyldu­vænna heldur en Evr­ópu­ráðs­þingið. En það var samt frá­bært að taka Antoni Örn með og fá þessa skýrslu sam­þykkta sem Rússar eru ósáttir við núna eða að minnsta kosti for­seti rúss­neska þings­ins. Antoni Örn er orð­inn víð­för­ull fylgd­ar­maður mömmu sinnar í póli­tískri bar­áttu. Hann hefur verið móður sinni mjög hjálp­legur hvað það varðar að geta verið pólítíkus á leið­inni í kosn­inga­bar­áttu með unga­barn á kant­inum; það er ekki hvaða barn sem er sem myndi láta bjóða sér það en hann er bara mjög ligeglad strákur. Og góður og sætur.“

Antoni Örn er dug­legur strákur og segir mamma hans að hann sé núna að fatta hvernig eigi að grípa hluti og stinga þeim upp í sig.

Falleg fjöl­skyldu­mynd þar sem þýski fjár­hund­ur­inn Freyja er með en hún verður 1 árs eftir 3 vikur.

„Hann er ótrú­lega frá­bært barn. Ég er mjög heppin með hann. Hann sefur vel, drekkur vel og dafnar vel og er bara almennt frá­bær gaur.“

Unnusti Þór­hildar Sunnu, Rafal, er pólskur og hefur búið á Íslandi í þrjú og hálft ár. Hann er nú í fæð­ing­ar­or­lofi en hefur unnið sem bygg­inga­verka­maður.

„Hann var búinn að búa á Íslandi í hálft ár þegar við hitt­umst. Við kynnt­umst á dans­gólf­inu á ónefndum bar í Reykja­vík. Hann er algjör sjar­mör og rosa­lega góður dans­ari. Hann heill­aði mig upp úr skónum um leið og við hitt­umst. Það var ekk­ert aftur snúið eftir það. Hann er afskap­lega góður maður og er ástin í lífi mínu; þetta var ást við fyrstu sýn. Við ætl­uðum að gifta okkur í fyrra en Covid-19 setti strik í reikn­ing­inn og gerir svo sem enn en fjöl­skylda Rafal er ekki öll bólu­sett. Við erum búin að ákveða að fresta brúð­kaup­inu eða all­vega veisl­unni um eitt ár í við­bót.“

Einelti

Lífið virð­ist núna vera dans á rósum í til­felli Þór­hildar Sunnu – hún er ham­ingju­söm, nýbökuð móðir og yfir sig ást­fangin. Lífs­leiðin hefur hins vegar stundum verið þyrnum stráð.

Þór­hildur Sunna með son­inn unga á Evr­ópu­ráðs­þing­inu.

„Ég var lögð í mikið ein­elti sem barn og það var mjög erfitt tíma­bil í lífi mínu. Ég var mikið ein og þar sem ég er mikil félags­vera þá reynd­ist það mér mjög erfitt. Ætli það hafi ekki verið mesta áskor­unin í lífi mínu og líka mest gef­andi að vinna mig út úr því og ná að koma mér út úr þeim skaða sem það getur valdið að lenda í svona ein­elti. Ég er þess vegna mjög stolt af því hvernig mér hefur tek­ist að greiða úr því og verða frekar félags­lynd mann­eskja.“

Þór­hildur Sunna bjó og ólst upp fyrstu sjö ár ævinnnar í Þýska­landi. Síðan flutti fjöl­skyldan heim og hún byrj­aði í Mela­skóla. Þar leið henni vel og þar eign­að­ist hún vini. Hún segir þó að hún hafi strax upp­lifað að við­horf hennar til lífs­ins hafi verið annað heldur en íslenskra jafn­aldra sinna. Hún talar um aðra menn­ingu en þá sem hún þekkti í Þýska­landi.

„Svo fluttum við í Norð­ur­mýr­ina eftir eitt ár í Mela­skóla og ég fór í Waldorfskólann og þar var ég mikið skilin út undan. Mér var bara ekki leyft að vera hluti af hópnum. Ég var líka í Aust­ur­bæj­ar­skóla um tíma og þar átti ég vin­konur; þetta voru stelpur sem þótt­ust inn á milli vera vin­konur mínar og þær gerðu stundum lítið úr mér.

Eineltið var verst eftir að ég flutti í Mos­fellsbæ. Þar var mikið um upp­nefni, úti­lokun og lík­am­legt ofbeldi. Þetta var mjög nið­ur­lægj­andi fram­koma í minn garð í langan tíma. Mér fannst eins og kerfið eða skól­inn tæki þátt í því; ætli það hafi ekki verið það versta. Mér var alltaf sjálfri kennt um ofbeldið sem ég var beitt; það var eins og það væri eitt­hvað við mig sem þyrfti að laga en ekki krakk­ana sem lögðu mig í ein­elti.“

Eineltið hafði mikil áhrif á sjálfs­traust og sjálfs­mat Þór­hildar Sunnu og skoð­anir hennar sjálfrar hvað hana sjálfa varð­aði. Hún upp­lifði óör­yggi og segir hún að hún hafi orðið frekar hvöss í garð fólks; hún átti erfitt með að treysta þar sem hún hafði upp­lifað svo mikið van­traust þegar krakkar þótt­ust stundum vera vinir hennar og sner­ust svo gegn henni.

„Það var þess vegna erfitt fyrir mig að treysta og eign­ast vini.

Ég hafði það ágætt í mennta­skóla, MR. Ég var svo­lítið týnd og fann mig ekki. Ég kláraði svo stúd­ent­inn í FB. Ég flutti síðan til Þýska­lands og síðan til Hollands þar sem ég lærði alþjóða­lög­fræði- og mann­rétt­inda­lög­fræði.

Þá fékk ég að vera ég sjálf og finna sjálfa mig á mínum eigin for­sendum á stað þar sem eng­inn þekkti mig eða hafði ein­hverjar fyrir fram gefnar vænt­ingar um mig. Ég eign­að­ist þar vini sem hjálp­uðu mér að vinna úr þeim félags­legu afleið­ingum sem ein­eltið hafði; það er að segja mína félags­legu hæfni. Fólkið sem ég kynnt­ist úti bættu hana mikið. Ég var heppin en úti eign­að­ist ég góða vini sem hjálp­uðu mér að kom­ast í gegnum þetta og verða félags­lega miklu hæf­ari ein­stak­lingur heldur en ég var.“

Þór­hildur Sunna segir að reynsla sín af ein­elti hafi gefið sér ákveðið tæki­færi til þess að vita hvernig það er að lenda í svona hrotta­legu ein­elti og að hún muni aldrei verða mann­eskja sem muni leggja í ein­elti.

„Fólk áttar sig ekki alltaf á því hvaða skaða ein­elti getur haft í för með sér fyrir aðra mann­eskju þannig að ég er með­vituð um hvernig fram­koma getur haft áhrif á fólk og hversu mik­il­vægt það er að koma fram við alla af virð­ingu og að koma fram við alla sem jafn­ingja vegna þess að það er lyk­il­at­riði. Það er ákveðin sam­kennd sem þessu fylgir. Þessi reynsla hefur sýnt mér að ég þarf að stóla á sjálfa mig og að álit ann­arra á mér á ekki að fá að stýra því hvernig mér líður. Ég þurfti að taka þá ákvörðun á sínum tíma að öðru fólki myndi líka vel við mig þó ég hefði reynslu af hinu gagn­stæða í upp­vext­inum í lengri tíma. Öðruvísi myndi ég búa til víta­hring ef ég væri nei­kvæð gagn­vart því fólki sem ég hitti. Nei­kvæðnin kæmi til baka ef ég væri alltaf óör­ugg og hrædd. Maður þarf að nálg­ast heim­inn með jákvæðum augum til þess að fá það sama til baka frá heim­inum.“

Nið­ur­stöður könn­unar á starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menn­ingu Alþingis með sér­stakri áherslu á ein­elti, kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni voru kynntar þing­mönnum og starfs­fólki skrif­stofu Alþingis í fyrra­vor. Í ljós kom meðal ann­ars að alls hafi 37,7% þing­manna orðið fyrir ein­elti.

„Það er gríð­ar­lega vond menn­ing á Alþingi þegar kemur að sam­skiptum og heið­ar­leika; einmitt svona virð­ingu í sam­skiptum. Það er oft sem maður upp­lifir svip­aða takta og maður upp­lifði í skól­anum forðum. En núna er ég nátt­úr­lega full­orðin kona og ég læt þessa karla ekki ná ein­hverjum tökum á mér. Þessi hegðun er ótrú­lega van­þroskuð og það er mikil vit­leysa að beita svona bola­brögðum. Það er annað sem ein­eltið hefur kennt mér; það er að þekkja hvenær er verið að beita þessum brögðum og vita alveg hvernig maður á að brynja sig gegn þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una