Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fimmtíu börn misstu foreldri í áætlunarflugi frá Vestmannaeyjum -„Veit ekki hvernig þetta verður“

Fimmtíu börn misstu foreldri í áætlunarflugi frá Vestmannaeyjum -„Veit ekki hvernig þetta verður“

„Við erum komnir niður í 700 fet, statikkin er byrjuð. Ég veit ekki hvernig þetta verður.“

Svo hljóm­uðu síð­ustu skila­boð frá Glitfaxa, Dakota flug­vél Flug­fé­lags Íslands þann 31. jan­úar 1951. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar.

Vafasamt veður

Glitfaxi hafði lagt af stað síð­degis í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur í hríð­ar­bil. Hafði þá ekk­ert flug verið til og frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs og var vélin þétt setin. Fljót­lega eftir að hún tók sig á loft bár­ust fréttir úr flug­turni Reykja­vík­ur­flug­vallar að veður væri vafa­samt og álitu sumir að völl­ur­inn myndi þurfa að loka. Glitfaxi hélt þó áfram leið sinni en ákvað flug­stjóri í sam­ráði við flug­turn að hætta við lend­ingu í Reykja­vík, enda hafði veðrið versnað hratt.

„Það var suð­austan kaldi, strekk­ingur – kannski fimm eða sex vind­stig. Það var ekk­ert óveður, en moksnjó­koma og ekk­ert sjón­flugs­skyggni,“ sagði Snorri Snorra­son, starfs­maður á Reykja­vík­ur­flug­velli, síðar.

Glitfaxi horfinn

Laust fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á Álfta­nesi. Ólafi Jóhanns­syni, flug­stjóra, var gefin heim­ild til að lækka flugið og stefna í átt að flug­braut­inni í sjón­flugi. Þegar Glitfaxi nálg­að­ist var flug­brautin hvergi sjá­an­leg. Ólafur stýrði vél­inni aftur upp sam­kvæmt ráðum flug­turns­ins og flaug hring út á Faxaflóa. Flugturn til­kynnti þá Ólafi að að veður væri að lyfta til og hyggi­legt að reyna að gera aðra til­raun til aðflugs. Ólafur og Garðar Gíslason, flug­maður, lækk­uðu flugið og settu vél­ina á stefnu en skyndi­lega rofn­aði allt sam­band í aðflug­inu.

Glitfaxi var horf­inn.

Sængurföt fimm mánaða barns

Strax var leitað leiða til að ná sam­bandi við vél­ina en án árang­urs. Fyr­ir­spurnir voru gerðar um nær­sveitir Reykja­víkur, skip beðin um að svip­ast eftir vél­inni og leit hafin í svart­nætti jan­ú­ar­kvölds. Bar hún engan árangur. Daginn eftir hófst víð­tæk leit á landi, sjó og úr lofti. Leit­ar­flokk­arnir voru tíu auk sveit átján skáta og lög­reglu­manna frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Sjúkra­bif­reiðar og sjúkra­tæki voru til staða er með þyrfti. Ekki  leið á löngu þar til Jóhannes Snorra­son, flu­stjóri, kom auga á tvo stóra fleka út gólfi vél­ar­inna á svæð­inu út af Straums­vík svo og björg­un­ar­vesti við Vatns­leysu­strönd.

Varð þá mönnum ljóst að úti­lokað væri að ein­hver hefði lifað slysið af. Um var að ræða eitt mann­skæð­asta flug­slys Íslands­sög­unnar.

Skip héldu áfram leit og slæddu meðal ann­ars sjáv­ar­botn með botn­vörpu. Viku síðar fannst poki af sæng­ur­fötum fannst en hann til­heyrði yngsta far­þeg­anum, fimm mán­aða gam­als drengs. Heyrn­ar­tól úr Glitfaxa og annar fleki úr vél­inni, fund­ust í byrjun mars­mán­aðar við bæinn Hvol á Sel­tjarn­ar­nesi. Árið 1982 rak á fjör­una á Álfta­nesi hluta af far­ang­urs­geymslu flug­vélar og stað­festi Jón Pálsson, yfir­skoð­un­ar­maður Flug­fé­lags Íslands, að þar væri um að ræða brot úr Glitfaxa.

Talið er að vélin hafi verið átak­an­lega stutt frá Reykja­vík þegar hún fórst og steypst í sjó­inn við Álfta­nesið

Flakið né lík­ams­leifar far­þeg­anna hafa aldrei fund­ist á þeim sjö­tíu árum sem liðin eru.

Fimmtíu börn misstu foreldri

Með flug­vél­inni fór­ust tvær konur, önnur þeirra flug­freyja vél­ar­innar, og 18 karl­menn, þar af einn drengur á fyrsta ári. Um fimm­tíu börn og ung­menni misstu föður sinn í slys­inu. Meira en helm­ingur far­þega var frá Vest­manna­eyjum.

Alls misstu því fimm­tíu börn for­eldar sitt og var barn­flesta heim­ilið í Þing­holti í Vest­manna­eyjum. Þar misstu tólf börn föður sinn og fyr­ir­vinnu, Pál Jónsson skip­stjóra.

Þjóð­ar­sorg var á Íslandi við slysið og lýsti Alþingi yfir sorg og sam­úðar­óskum til aðstand­enda. Í leið­ara Morg­un­blaðs­ins hinn 2. febr­úar 1951 var skrifað: „Glitfaxi er horf­inn – Jelinu ljettir, en skuggi kvíða, og síðan sorgar og sakn­aðar leggst yfir heim­ili þess fólks sem átti vini og vensla­menn með hinni týndu flug­vjel.“

Við hlið Foss­vogs­kirkju er minn­is­merkið Glitfaxi eftir Einar Jónsson mynd­höggv­ara og var það reist til minn­ingar um slysið og jafn­framt alla þá sem farist hafa í flug­slysum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina