Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þingmenn börðust hart gegn litasjónvarpinu: „Veldur börnum og viðkvæmum konum sálrænan skaða“

Þingmenn börðust hart gegn litasjónvarpinu: „Veldur börnum og viðkvæmum konum sálrænan skaða“

„Ég hef átt þess kost að horfa á lita­sjón­varp erlendis. Venju­lega hafa lit­irnir verið svo bjag­aðir og svo afskræmdir og svo fjarri öllum eðli­legum litum að hefur verið til stórra leið­inda á að horfa — og reyndar átak­an­legt stundum. Einu sinni sá ég sjálfan Banda­ríkja­for­seta með heið­gul eyru og grænt nef“. Svo mælt­ist Jónasi Árnasyni þing­manni í ræðu á Alþingi árið 1976 .

Sálrænn skaði rauðs blóðs

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan sem vakti þessar sterku til­finn­ingar og skoð­ana­skipti meðal þing­manna voru um hvort leyfa ætti lita­sjón­varp á Íslandi. Fræg var umræðan um að ef blóð sæist rautt myndi það valda „börnum og við­kvæmum konum sál­rænum skaða”.

„Margur er hégóm­inn, sem ríður húsum hjá þess­ari bjóð. og mörg for­dildin, sem íslend­ingar ana eftir öðrum þjóðum. Skelfi­leg er sú árátta þeirra að þurfa endi­lega að kalla yfir sig hverja þá plágu for­dild­ar­innar sem þjakar aðrar þjóðir. Sjónvarp er mikil plága með ýmsum þjóðum. Til eru lönd þar sem vís­inda­menn rekja marga verstu sál­arkvilla fólks til þess­arar plágu,” sagði Jónas í sömu ræðu.

Ljóst er að Jónas var ekki mik­ill áhuga­maður um sjón­varps­á­horf. Og allra síst í lit.

Þjóðarmorð á íslenskri tungu

Saga íslensks sjón­varps er lituð tak­mörk­unum sem fáir geta skilið í dag. Rík­is­sjón­varpið hóf útsend­ingar árið 1966 eftir nokk­urra ára und­ir­bún­ing sem lit­aður var basli. Við vorum ára­tug á eftir hinum Norð­ur­landa­þjóð­unum. Reyndar voru flestir lands­menn orðnir nokkuð vanir að geta horft á hið svo­nefnda Kana­sjón­varp en það voru útsend­ingar frá her­stöð­inni á Kefla­vík­ur­flug­velli. Hlutverk stöðv­ar­innar var að senda út skemmti­efni til upp­lyft­ingar her­mönnum og starfs­fólki hers­ins og byggði fyrst og fremst á vin­sælu efni frá Banda­ríkj­unum.

Á þessum árum er talið að um fjórða hvert heim­ili hefði átt sjón­varps­tæki til þess að ná varn­ar­liðs­út­send­ing­unum en þær náð­ust á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu og reyndar út um allt Faxa­flóa­svæðið. Það voru þó miklar deilur um ágæti þess að þjóðin fengi aðgengi að amer­ísku efni og héldu sumir fram að væri verið að fremja þjóð­ar­morð á íslenskri tungu og menn­ingu.

Það er hefur reyndar tölu­vert skemmt­ana­gildi fyrir Netflix not­endur nútím­ans að lesa þær umræður sem áttu sér stað á þessum árum um sjón­varps­notkun land­ans. For­sjár­hyggjan var alls­ráð­andi.

Deilan um Kanasjónvarpið

Í aðsendir grein til Alþýðu­blaðs­ins ári 1967 heldur höf­undur fram  að hlut­verk varn­ar­liðs­ins sé að halda uppi her­vörnum en það sé af og frá að það megi skemmta land­anum með sjón­varps­efni frekar en að fram­leiða brauð eða taka upp far­þega­flug. „Varn­ar­liðið er ekki hingað komið til að halda upp neins konar starfs­semi fyrir Íslend­inga. Þetta hlýtur að eiga við um sjón­varp engu síður en brauð og flug”.

Deilan vatt upp á sig eftir þetta og 13. mars árið 1964 birtu sex­tíu þekktir Íslend­ingar grein þar sem skorað var á íslensk stjórn­völd að tak­marka útsend­ingar stöðv­ar­innar. And­stæð­ingar stöðv­ar­innar höfðu meðal ann­ars áhyggjur af því að íslensk ung­menni myndu verða fyrir „óæski­legum“ menn­ing­ar­á­hrifum og jafn­vel glata íslensk­unni. Ýmsir urðu þó til að koma Kefla­vík­ur­sjón­varp­inu til varnar og yfir 14.000 manns skrif­uðu undir und­ir­skrifta­lista þar sem þess var óskað að stöðin fengi áfram að senda út á Íslandi.

Smám saman var þrengt að Kana­sjón­varp­inu svo­kall­aða, útsend­ingar voru tak­mark­aðar við Suð­ur­nesin og því lokað fyrir íslenskan almenn­ing árið 1974.

Þjóð á vonarvöl

Í upp­hafi voru útsend­ingar Rík­is­sjón­varps­ins tvisvar í viku, fóru upp síðan upp í þrjá daga á end­anum upp í sex daga. Sjón­varps­lausir fimmtu­dagar, ætl­aðir til sam­veru­stunda fjöl­skyldu­með­lima, héld­ust allt til 1985, svo og mán­að­frí í júlí hvert ár til 1987. Útlend­ingum var skemmt yfir þessar sér­visku Íslend­inga sem þótti á pari við bann við hunda­haldi og bjór.

Nágranna­þjóðir okkar hófu beinar útsend­ingar árið 1964 en það var ekki fyrr en 1981 að Íslend­ingar fengu sína fyrstu beinu útsend­ingu.

Ef aftur að lita­sjón­varpi. Árið 1976 greip um sig æði meðal land­ans að sjá efni í lit og seld­ist hvert ein­asta sjón­varps­tæki sem hafði hafði þá tækni til að bera, upp. Greip þá um sig mikil hræðsla meðal stjórn­valda um að ásóknin í lita­sjón­varp myndi éta upp all­ann gjald­eyr­is­forða þjóð­ar­innar og koma henni hrein­lega á von­ar­völ. Voru slík tæki í kjöl­farið bönnuð.

Stjórnvöld gefast upp

Upp hófst gróð­væn­legt smygl þar sem hverjum gámnum á fætur öðrum af sjón­vörpum var smyglað til lands­ins og tækin seld á svarta mark­aðnum. Eft­ir­spurnin var gríð­ar­leg. Svo fór að stjórn­völd gáfu sig árið 1977, inn­flutn­ingur var leyfður, og börn og við­kvæmar konur gátu séð rautt blóð.

Með tím­anum fóru kröfur almenn­ings um fjöl­breytt­ara efni að verða hávær­ari og svo fór sem fór að ein­okun Rík­is­sjó­varpss­ins var aflögð árið 1985 og ári síðar hóf Stöð 2 hóf útsend­ingar.

Allir þekkja fram­haldið en það er erfitt fyrir Neflix, Amazon og Hulu kyn­slóð nútím­ans að skilja hvað ráða­mönnum gekk til á sínum tíma. Eðlilega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina