Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þegar Susan fór í bað og Lísa var berrössuð í Grímsey

Þegar Susan fór í bað og Lísa var berrössuð í Grímsey

Árið 1994 er almennt talið vera upp­hafs­árs þess sem sumir vildu kalla klám­væð­ingar land­ans en aðrir kyn­frelsi. Þá opn­aði fyrsta íslenski nekta­stað­ur­inn, Bóhem, við Vitastíg í Reykja­vík, Bleikt og blátt var lesið í öreindir og það var stunið gegn rífegu gjaldi í gegnum Rauðu lín­una.

Susan fer í bað og Lisa til Grímseyjar

Þó má rekja stripp á Íslandi tölu­vert lengra aftur. Til að mynda hafði það verið alþekkt trikk hjá hljóm­sveitum að aug­lýsa hálf­naktar stúlkur á tón­leikum til að trekkja að gesti. Til að mynda varð hin danska Susan, sem vann það sér það helst til frægðar að fara í bað í oggu­litlum bala á sviði, býsna vin­sæl á Íslandi. Hún kom meðal ann­ars fram með Magnúsi Kjart­ans­syni og hljóm­sveit­inni Fresh í félags­heim­il­inu Festi í Grinda­vík.

En það má fara aftar í tíma til að finna berrass­aðar dömur skemmta land­anum.

Dr Gunni tók saman hluta af íslenskri stripp­sögu og skráði að alls­konar hljóm­sveitir hafi brugðið á það ráð að draga með sér útlendar stelpur sem döns­uðu naktar í pásum. „Hingað voru dans­meyj­arnar komnar á vegum íslenskra umboðs­manna eins og Ámunda. Hér er plag­gat frá 1967 með lítt þekktu bítla­bandi, Nesmönnum (Jóhann Helgason, Magnús Þór og fleiri góðir), sem hafði með sér dans­mey“.

Fleiri dömur skemmtu land­anum eins og hin sænska Ulla Bella í Lídó árið ásamt sextett Ólafs Gauks árið 1966 og hæfi­leika­konan Trixie Kent ásamt hljóm­sveit­inni Roof Tops.

Nöktu stúlk­urnar virð­ast fyrst og fremst fylgt hljóm­sveitum á þessum árum og kippti nekt­ar­dans­mær­inni Lisu með sér til að sýna listir sýnar í félags­heim­il­inu í Grímsey. Myndin sem hér fylgir og þar er tekin segir allt sem segja þar um það gigg.

Ekki virð­ast þessar sýn­ingar sært sóma­kennd land­ans svo nokkru nemi, sé leitað í les­anda­bréfum dag­blaða þess tíma.

Hjálpartæki ástarlífsins reka á land

Það var síðan árið 1985 að hinn umtal­aði Pan-hópur kemur fram á sjón­ar­sviðið. Hópur af fal­legu ungu fólki sem sýndu nær­fatnað og kynntu hjálp­ar­tæki ást­ar­lífs­ins jafnt á skemmti­stöðum og í einka­sam­kvæmum.

Það var fyrrum versl­un­ar­stjóri í kjöt­verslun, Haukur Har­alds­son, sem stofn­aði hóp­inn eftir að hafa fengið hug­mynd­ina í Bret­landi en þaðan flutti hann notuð sjón­varps­tæki. Þar rakst hann á hjálp­ar­tæki ást­ar­lífs­ins, voru með öllu ófá­an­leg hér á landi á þessum tíma. Hann hóf póst­verslun og ruku víbratorar sem báru nöfn eins og Jón Langi og Stobbi fjöl­hrað­all, og upp­blásnar dúkkur eins og Ástríður og Cheryl, út eins og vind­ur­inn.

Frá sýn­ingu Pan-hóps­ins.

Fannst Hauki þá til­valið að fá fyr­ir­sætur til að sýna varn­ing­inn, fyrst stúlkur en síðar var strákum bætt við, og úr varð Pan-hóp­ur­inn.

Úr strippinu í Biblíuskóla

Sigmar, vert í Sig­tún­inu sál­uga, bauð Pan-hópnum að koma og sýna og vakti sú sýn­ing svo mikla athygli að eig­andi skemmti­stað­ar­ins Upp og niður, sem þá var á von­ar­völ, bauð Pan-hópnum að vera með reglu­legar sýn­ingar. Fjár­hagur stað­ar­ins batn­aði til muna þar sem fullt var á allar sýn­ingar. Það sem áður voru vöru­kynn­ingar voru orðnar hrein­rækt­aðar stríp­i­sýn­ingar ung­menna á aldr­inum 16 til 20 ára.

Sýn­ing­arnar urðu sífellt djarfari, leðju­slagur og blaut­bola­keppnir bætt­ust í dag­skrána og miklar sögur spunn­ust um eit­ur­lyfja­notkun, hóp­kyn­líf og vændi meðal með­lima. Hvort svo var raunin er erfitt um að segja en aðeins átján mán­uðum eftir stofnun hóps­ins leyst­ist hann upp eftir að Haukur frels­að­ist og fór í Bibl­íu­skóla.

„Svartur blettur á okkar góða bæjarlífi“

Tæpum ára­tug síðar opn­aði Bóhem og fljót­lega spruttu upp nekt­ar­dans­staðir upp um borg og bý. Fyrst í stað voru þeir mann­aðir íslenskum stúlkum en fljót­lega var farið að bjóða upp erlent hold, þá einna helst frá Austur-Evrópu og Tælandi. Stúlk­urnar voru verk­takar sem höfðu tekjur sínar af þjórfé, einka­dansi og þjón­ustu í einka­sam­kvæmum. Á hæla Bóhem kom síðan Óðal í Aust­ur­stræti og Vegast við Frakka­stíg auk þess sem hinum forn­fræga skemmti­stað Þórscafé var breytt í stripp­stað.  Árið 1999 opn­aði staður á Suð­ur­nesjum auk þriggja á Akureyri.

Þor­steinn Pét­urs­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður, starf­aði hjá sýslu­mann­inum á Akureyri á þessum tíma við að hafa eft­ir­lit með vín­veit­inga­stöðum. Hann sagði í við­tali við Landann að sér hafi alltaf þótt erfitt að fara inn á nekt­ar­stað­ina og horfa upp á stúlk­urnar sem þar unnu.

„Einhvern veg­inn skynj­aði ég það að þessar stúlkur sem seldu lík­ama sinn svona, þær væru ekki frjálsar að því,“ sagði Þor­steinn. Hann sagði þetta tíma­bil í sögu bæj­ar­ins, þegar hægt var að kaupa sér einka­dans jafnt á Ráð­hús­torg­inu sem í versl­ana­mið­stöð­inni Sunnu­hlíð alveg mega falla í gleymsku. „Þetta er svartur blettur á okkar góða bæj­ar­lífi að þetta skuli hafa þrif­ist hérna.“

Vændi, mansal, fjárkúgun og eiturlyf

Morg­un­blaðið sagði í frétt árið 1997 að Ísland væri vin­sæll áfanga­staðir kvenna sem hefðu atvinnu af að taka af sér lepp­ana, íslenskir karl­menn væri rausn­a­legir, og gæti dans­ari auð­veld­lega unnið sér inn milljón á mán­uði. Að sjálf­sögðu var mikið pískrað um hvaða þjón­usta væri ekki aug­lýst, en veitt ef eftir því væri sóst. Tekjur sjálfra stað­anna af inn­gangs­eyri og áfeng­is­sölu munu hafa velt hund­ruðum millj­óna.

Bransinn var harka­legur og ásak­anir um hót­anir og lík­ams­meið­ingar gengu á milli stjórn­enda stað­anna. Yfirvöld fylgd­ust líka grannt með, jafnt vegna gruna um skatta­laga­brot svo og sagna um vændi, man­sal, fjár­kúgun og eit­ur­lyfja­sölu.

Almenn­ingur var búinn að fá nóg og svo fór að einka­dans var bann­aður í Reykja­vík og Akureyri árið 2002 sem í raun kippti rekstr­ar­grund­vell­inum undan stöð­unum þótt að sjálfur „dans­inn” væri leyfður. Senni­lega fræg­ast stripp­kóngur Íslands, Geiri, almennt kenndur við stað sinn Gold­finger, brá þá á það ráð að flytja starf­sem­ina í Kópavog sem var þol­in­móð­ari gagn­vart stripp­inu og var sá staður lands­frægur lengi vel. Geiri var líka skemmti­leg týpa, naut þess að koma fram í fjöl­miðlum og var hreyk­inn af staðnum. Geiri lést árið 2012.

Geiri á Gold­finger ásamt konu sinni.

En áhugi og þol­in­mæði lands­manna var upp­ur­inn og áherslur breyttar í sam­fé­lag­inu með þeim afleið­ingum að frum­varp Kol­brúnar Hall­dórs­dóttur, þing­manns VG, um bann við rekstri nekt­ar­staða var sam­þykkt án mót­at­kvæða árið 2010.

Því má við bæta að Brynjar Níelsson þing­maður hefur ítrekað lýst óánægju sinni með bann við nekt­ar­klúbbum í gegnum árin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina