Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bryndís tæklar fátæka, fíkla og fanga í alls konar ástandi: „Mig langar til að hjálpa öllum“

Bryndís tæklar fátæka, fíkla og fanga í alls konar ástandi: „Mig langar til að hjálpa öllum“

Á heima­síðu Hjálp­ræð­is­hers­ins stendur: „Hjálp­ræð­is­her­inn er alþjóð­leg evang­el­ísk hreyf­ing, hluti af hinni almennu kristnu kirkju. Boð­skap­ur­inn grund­vall­ast á Bibl­í­unni. Þjón­ustan er knúin af kær­leika Guðs. Verk­efnið er að boða fagn­að­ar­er­indi Jesú Krists og í hans nafni mæta þörfum fólks án mis­mun­unar. (Alþjóð­leg yfir­lýs­ing Hjálp­ræð­is­hers­ins / The Salvation Army Mission Statem­ent).“

Bryndís Rut Ósk­ars­dóttir er félags­ráð­gjafa­nemi og stýrir í sumar leikja­nám­skeiði fyrir börn í Hjálp­ræð­is­hernum í Reykja­vík. Hún þekkir starf­semi Hjálp­ræð­is­hers­ins mjög vel og hefur má segja verið við­loð­andi hann frá blautu barns­beini þar sem ömmur hennar og afar í bæði móður- og föð­ur­ætt hafa starfað fyrir Hjálp­ræð­is­her­inn bæði á Íslandi og í Noregi en móðir hennar er norsk. Hún segir að for­eldrar sínir hafi ekki starfað þannig lagað hjá Hjálp­ræð­is­hernum en þau voru sem börn mikið á sam­komum. Faðir hennar, Óskar Ein­ars­son, er þekkt­astur í tengslum við gospeltón­list og hefur stjórnað kór Fíla­delfíu í mörg ár.

„Ég fór mikið á sam­komur á vegum Hjálp­ræð­is­hers­ins með ömmu og afa á Akureyri þar sem ég bjó í tvö ár á ung­lings­ár­unum en ég heim­sótti ömmu og afa öll sumur. Þegar ég fór til Noregs fór ég svo á sam­komur með ömmu og afa þar. Svo eru fleiri fjöl­skyldu­með­limir í báðum ættum tengdir Hjálp­ræð­is­hernum. Þetta er fjöl­skyldu­dæmi og hjarta mitt hefur verið hjá Hjálp­ræð­is­hernum. Þegar ég var 18 ára flutti ég til Noregs og fór í skóla á vegum Hjálp­ræð­is­hers­ins þar sem ég vann mikið sjálf­boða­liða­störf.

Ég vann til dæmis með fátæku fólki, fíklum og fór í fang­elsi og hóp­ur­inn sem ég var í sá um guðs­þjón­ustur fyrir fanga.

Það gerði það að verkum að ég sá að ég vildi vinna við svona starf. Ég vildi vinna með fólki og það ýtti mér svo­lítið út í að fara í nám í félags­ráð­gjöf. Ég hef þannig verið tengd Hjálp­ræð­is­hernum á ein­hvern hátt þótt ég hafi ekki sótt söfn­uð­inn sem slíkan öll þessi ár.“

80-85% útlendingar

Börnin sem sækja leikja­nám­skeiðið sem Bryndís Rut stýrir í sumar eru um 30 tals­ins og eru á aldr­inum sex til 12 ára.

„Þau fá morg­un­mat, hádeg­is­mat og hress­ingu um miðjan dag. Við höfum þetta eins ódýrt og hægt er til að sem flestir geti sótt um. Þeir sem hafa ekki tök á að borga geta sótt um í vel­ferð­ar­sjóði Hjálp­ræð­is­hers­ins og for­eldrar margra barn­anna hafa gert það. Börnin eru frá ýmsum löndum; það er fullt af íslenskum börnum og svo eru á nám­skeið­inu meðal ann­ars börn frá Póllandi, Spáni og Íran. Það er svo frá­bært að þau geta öll komið á sama stað og það eru allir eins; það er borin virð­ing fyrir öllum.“

Bryndís Rut segir að þeir for­eldrar sem hafa sótt um í vel­ferð­ar­sjóðnum hafi sumir fengið mat eða mat­ar­kort hjá Hjálp­ræð­is­hernum. Svo eru margir for­eldrar sem hafa ekki mikil eða nein tengsl við Hjálp­ræð­is­her­inn en sáu leikja­nám­skeiðið aug­lýst og vildu að börn sín færu á skemmti­legt nám­skeið yfir sum­arið.

Bryndís Rut nefndi for­eldra sem hafa fengið mat eða mat­ar­kort hjá Hjálp­ræð­is­hernum.

„Hjálp­ræð­is­her­inn er að gefa 150-200 manns mat á hverjum ein­asta degi og af þeim eru mun fleiri útlend­ingar en Íslend­ingar.“

Hún segir að það fari eftir dögum en að útlend­ingar séu almennt 80-85% þeirra sem þiggja ókeypis mat í mat­sal Hjálp­ræð­is­hers­ins og af þeim séu flestir frá Sýrlandi, Venezuela og Palest­ínu.

Daginn sem við­talið var tekið átti að bjóða upp á ham­borg­ara í hádeg­inu, lamba­kjötið er vin­sælt, stundum er grillað en Bryndís Rut segir að það sé aldrei boðið upp á svína­kjöt. Bæði sé verið að taka til­lit til múslíma sem sækja aðstoð til Hjálp­ræð­is­hers­ins og þiggja þar mat sem og að það sé fullt af fólki sem borði ekki svína­kjöt. „Það er til að auð­velda allt að bjóða ekki upp á svína­kjöt.“

Mann langar til að hjálpa öllum

Sem starfs­maður Hjálp­ræð­is­hers­ins þar sem sumir skjól­stæð­ingar hafa gengið hinn grýtta veg og eru jafn­vel í neyslu og heim­il­is­lausir þá segir Bryndís Rut að hún hafi þurft að læra að brynja sig og að setja fólki mörk. Hún segir það til dæmis hafa verið erfitt þegar hún vann með ung­lingum hjá Hjálp­ræð­is­hernum á Akureyri á sínum tíma þar sem krakkar leit­uðu til hennar og voru að opna sig varð­andi alls konar hluti. Hún bendir á að hún hafi þroskast síðan þá og viti hvernig hún eigi að bregð­ast við.

„Ég verð að passa að taka það ekki inn á mig.

Mann langar til að hjálpa öllum.

Og mig langar helst til að knúsa börn og taka þau með mér heim sem ég veit að eiga erfitt heima en maður verður að passa að setja þeim mörk og þau þurfa að setja mér mörk. Og ég þarf að passa að gera ekki upp á milli þeirra.

Það er alltaf erfitt að horfa upp á erf­iðar aðstæður og það sem mér hefur fund­ist vera erf­ið­ast er að sjá alls konar fólk koma í alls konar ástandi og þurfa að tækla það. Það gefur mér til dæmis mikið að fá 10 brotna ein­stak­linga ef einn af þeim fer síðan að blómstra. Það var til dæmis klappað mikið í gær og það var mikil gleði þegar maður sem hefur beðið lengi eftir íslenskum rík­is­borg­ara­rétti fékk hann loks­ins.“

Góð í að hlusta

Bryndís Rut segir að það gefi sér mikið að vinna hjá Hjálp­ræð­is­hernum og að sig hlakki alltaf til að mæta í vinn­una.

„Ég hlakka til að hitta krakk­ana mína og annað starfs­fólk; ég er að vinna með besta starfs­fólki sem hægt er að óska sér. Það er svo góður andi í hús­inu. Og það vinna allir saman. Ef mig vantar aðstoð við eitt­hvað þá er alltaf ein­hver sem getur hjálpað mér. Og það eru allir vilj­ugir til þess að rétta fram hjálp­ar­hönd og við erum öll að vinna að sama mark­miði.“

Spurð hvað hún hafi lært af því að vinna hjá Hjálp­ræð­is­hernum nefnir Bryndís Rut fag­mennsku.

„Mér finnst ég vera góð í að hlusta og tala við fólk sem er ekk­ert auð­velt fyrir alla. Og ég er farin að bera meiri virð­ingu fyrir fólki. Ég segi ekki að ég sé laus við for­dóma en ég er með­vit­aðri um for­dómana mína. Og maður er með­vit­aðri um að maður ætli ekki að bregð­ast við með for­dómum. Það er ekki mitt hlut­verk að dæma aðra. Ég hef lært að ég get rétt fram hjálp­ar­hönd og ég get veitt stuðn­ing og nú þegar segja má að Covid sé búið þá get ég gefið knús ef ein­hvern vantar knús.

Ég legg áherslu á að vera til staðar fyrir fólk sem vill að ég sé til staðar fyrir það.

Og svo er ég búin að öðl­ast mikla fag­þekk­ingu.“

Bryndís Rut er spurð hvort hún geri ráð fyrir að vinna sem félags­ráð­gjafi hjá Hjálp­ræð­is­hernum eftir útskrift.

„Ef það verður staða fyrir mig hérna þá myndi ég klár­lega vilja það. Bæði þekki ég húsið og starf­sem­ina þannig að ég mun klár­lega vera hérna alla­vega með annan fót­inn. Þau losna ekki svo auð­veld­lega við mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina