Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórunn Egilsdóttir látin -„Ég held að það sé ekkert vont fyrir þann sem deyr“

Þórunn Egilsdóttir látin -„Ég held að það sé ekkert vont fyrir þann sem deyr“

Þór­unn Eg­ils­dótt­ir, þing­flokks­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er lát­in 56 ára að aldri. Hún lést í gær­kvöldi eft­ir lang­vinna bar­áttu við krabba­mein.

Þórunn var fyrr á árinu í ítar­legu við­tali við Mannlíf. Þar ræddi hún meðal ann­ars um sjúk­dóm­inn, bjart­sýn­ina, von­ina, lífið hinum megin, ást­ina og stjórn­málin.

Þórunn sagð­ist aldrei hafa verið hrædd við að deyja. „Ég held að það sé ekk­ert vont fyrir þann sem deyr. Það er verra fyrir hina. Ég hef þá frekar áhyggjur af fólk­inu mínu; þeim sem eru í kringum mig. En ekki af sjálfri mér. Við vitum hvað er að lifa en við vitum ekk­ert hvað hitt er. Það eina sem við vitum er hvernig er að vera á þess­ari jörð. Hitt vitum við bara ekk­ert um. Það getur vel verið að ein­hver viti það en ég veit það ekki.“

Hún sagði frá því að hún hefði greinst með brjóstakrabba­mein árið 2019 og gengið í gegnum stranga með­ferð.

Þórunn Egils­dóttir

„Ég greind­ist með brjóstakrabba­mein í febr­úar árið 2019 sem var á 3. stigi og hrað­vax­andi. Ég fór þá í mjög harða lyfja­með­ferð, sex skipti í æð. Í fram­hald­inu fór ég í fleig­skurð til öryggis og svo í geisla til að klára þetta ferli. Lyfin virt­ust þá alveg vinna á þessu og meinið hvarf algjör­lega. Þetta virt­ist vera stað­bundið. Ég hef tvisvar síðan farið í tékk og þá fannst ekk­ert þannig að ég var full bjart­sýni og trúði því að þetta væri bara farið, enda getur maður ekk­ert annað í þess­ari stöðu. Maður getur ekki alltaf lifað í ótta um að eitt­hvað gæti gerst. Þannig að ég tók þá afstöðu að þetta væri bara búið og mér tókst að gera það og halda líf­inu áfram,“ sagði Þórunn í við­tal­inu.

Í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sagð­ist Þórunn hafa farið að fá melt­ing­ar­trufl­anir og verið skrítin í kviðnum.

„Ég fór í tékk í lok nóv­em­ber og þá virt­ist allt vera í lagi. Það sást ekki neitt. Það komu þó fram vís­bend­ingar í blóðprufu um að það væri eitt­hvað óeðli­legt í lifr­ar­starf­sem­inni. Skömmu síðar hafði ég sam­band við spít­al­ann og sagði að mér væri ekk­ert að batna. Þá var farið að skoða mig betur og í ljós kom að ekki var allt í lagi. Lifrin starf­aði ekki sem skyldi en það leit ekki endi­lega út fyrir að vera krabba­mein. Ég fór síðan til Vopna­fjarðar í jóla­frí. Þar fór ég í blóðprufu og þá kom í ljós að eitt­hvað alvar­legt var að. Elsta dóttir mín keyrði mig til Akur­eyrar 22. des­em­ber og ég fór í nákvæma skoðun á sjúkra­hús­inu. Daginn eftir kom í ljós krabbi í lifr­inni. Það er í raun­inni bara smá hluti af henni sem virkar.“

Árið 2013 sett­ist Þórunn á þing fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og árin 2015 til 2016 og aftur árið 2018 gegndi hún for­mennsku flokks­ins.

Þá sat Þórunn sem 2. vara­for­seti þings­ins 2015 til 2016 og sem 1. vara­for­seti þings­ins árin 2016 til 2017.

Þórunn skilur eftir sig eig­in­mann og þrjú börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina