Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þórunn glímir við krabbamein í annað sinn: „Held að það sé ekkert vont fyrir þann sem deyr“

Þórunn glímir við krabbamein í annað sinn: „Held að það sé ekkert vont fyrir þann sem deyr“
Þórunn Egils­dóttir. „Daginn eftir kom í ljós krabbi í lifr­inni. Það er í raun­inni bara smá hluti af henni sem virkar.“ Mynd: Auðunn Níelsson

Þórunn Egils­dóttir, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, greind­ist nýlega með krabba­mein í lifur en hún greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2019 og gekk þá í gegnum stranga með­ferð. Þórunn er bjart­sýn og talar hér meðal ann­ars um sjúk­dóm­inn, bjart­sýn­ina, von­ina, lífið hinum megin, ást­ina og stjórn­málin.

Andlit Þórunnar Egils­dóttur, þing­flokks­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, birt­ist á skjánum. Gluggi fyrir aftan hana. Hún segir að ætt­ingjar á Akureyri hafi gengið úr íbúð sinni til að hún og fjöl­skylda hennar geti dvalið þar en hún er nú í krabba­meins­með­ferð á sjúkra­hús­inu í bænum. Þórunn býr ásamt eig­in­manni sínum og yngsta barni þeirra á bænum Hauks­stöðum í Vopna­firði. „Við höfum náð að vera hérna öll saman, fjöl­skyldan, og það er alger­lega ómet­an­legt að geta staðið saman í þessu því að ég á ein­staka fjöl­skyldu. Ég er ótrú­lega lánsöm kona.“

„Ég ætla að leyfa mér að segja að ég er sig­ur­viss; ég fer í þetta svo­leiðis.“

Þetta er í annað skipti sem Þórunn grein­ist með krabba­mein.

„Ég greind­ist með brjóstakrabba­mein í febr­úar árið 2019 sem var á 3. stigi og hrað­vax­andi. Ég fór þá í mjög harða lyfja­með­ferð, sex skipti í æð. Í fram­hald­inu fór ég í fleig­skurð til öryggis og svo í geisla til að klára þetta ferli. Lyfin virt­ust þá alveg vinna á þessu og meinið hvarf algjör­lega. Þetta virt­ist vera stað­bundið. Ég hef tvisvar síðan farið í tékk og þá fannst ekk­ert þannig að ég var full bjart­sýni og trúði því að þetta væri bara farið, enda getur maður ekk­ert annað í þess­ari stöðu. Maður getur ekki alltaf lifað í ótta um að eitt­hvað gæti gerst. Þannig að ég tók þá afstöðu að þetta væri bara búið og mér tókst að gera það og halda líf­inu áfram.“

Þórunn byrj­aði að vinna aftur í maí í fyrra. „Ég var öll að fyll­ast af orku í haust og mér fannst eitt­hvað gott vera að fara að ger­ast. Ég man að ég var einn dag­inn að keyra upp úr bíla­kjall­ar­anum í þing­inu og hugs­aði með mér að nú lang­aði mig til að fara að gera eitt­hvað meira. Ég hefði orku í eitt­hvað meira.“

Þórunn seg­ist aldrei hafa verið hrædd við að deyja. „Ég held að það sé ekk­ert vont fyrir þann sem deyr. Það er verra fyrir hina.“

Veikindi taka sig upp að nýju

Þórunn segir að hún hafi farið að fá melt­ing­ar­trufl­anir í lok nóv­em­ber og verið eitt­hvað skrýtin í kviðnum. „Ég fór í tékk í lok nóv­em­ber og þá virt­ist allt vera í lagi. Það sást ekki neitt. Það komu þó fram vís­bend­ingar í blóðprufu um að það væri eitt­hvað óeðli­legt í lifr­ar­starf­sem­inni. Skömmu síðar hafði ég sam­band við spít­al­ann og sagði að mér væri ekk­ert að batna. Þá var farið að skoða mig betur og í ljós kom að ekki var allt í lagi. Lifrin starf­aði ekki sem skyldi en það leit ekki endi­lega út fyrir að vera krabba­mein. Ég fór síðan til Vopna­fjarðar í jóla­frí. Þar fór ég í blóðprufu og þá kom í ljós að eitt­hvað alvar­legt var að. Elsta dóttir mín keyrði mig til Akur­eyrar 22. des­em­ber og ég fór í nákvæma skoðun á sjúkra­hús­inu. Daginn eftir kom í ljós krabbi í lifr­inni. Það er í raun­inni bara smá hluti af henni sem virkar.“

Þórunn var sett á stera til að ná niður bólgum í lifr­inni og lyfja­með­ferð hófst á annan í jólum. „Öll þjón­ustan sem ég hef fengið hérna hefur verið fram­úr­skar­andi og allt sem hefur verið gert fyrir mig.“

Viðtalið var tekið á mið­viku­degi. Á þrett­ánd­anum. „Fyrsti dagur í við­snú­in­ingi var á sunnu­dag­inn,“ segir Þórunn. „Þetta leit ekk­ert vel út. Það er ekk­ert öruggt í þessu.“ Þögn. „Það er bara þannig. Það var ekki víst að það tæk­ist að snúa mér til baka.“

„Ég leit upp einn dag­inn þegar ég var þar í vinnu og sá Hauk. Ég hugs­aði með mér að þarna væri mað­ur­inn minn.“

Heimahjúkrun

Þórunn segir að einn dagur sé tek­inn í einu. „Það er verið að stilla mig af frá degi til dags. Krabbalyfin ganga nærri mér og það þarf að halda bóð­flög­unum í lagi vegna þess að ónæm­is­kerfið má ekki veikj­ast um of. Þetta er still­ing­ar­at­riði.“

Hún segir að læknar geti ekk­ert sagt til um horf­urnar. „Það verður bara að koma í ljós. En við erum bjart­sýn núna. Það er þannig. Ég ætla að leyfa mér að segja að ég er sig­ur­viss; ég fer í þetta svo­leiðis. Svo kemur bara í ljós hvað ger­ist.“

Starfs­fólk heima­hjúkr­unar kemur á hverjum degi og einn þeirra hringir í Þórunni á meðan á við­tal­inu stendur. „Heima­hlynn­ingin. Þær eru svo ynd­is­legar. Þær koma hingað og hringja í mig. Við tökum þetta bara dag frá degi og ég er bara bjart­sýn í dag eins og ég er reyndar alltaf.“

Maður verður alltaf að horfa fram og alltaf upp. Og maður má aldrei missa von­ina. Aldrei.
„Þetta leit ekk­ert vel út. Það er ekk­ert öruggt í þessu.“ Þögn. „Það er bara þannig. Það var ekki víst að það tæk­ist að snúa mér til baka.“

Að glata ekki gleðinni

Brjóstakrabba­mein 2019. Krabba­mein í lifur núna.

„Ég held að sálin mín sé að verða svo­lítið sjóuð í að takast á við áföll. Ég hef aldrei brotnað alveg niður. Ég hef mínar leiðir til þess. Það er alltaf þannig að maður getur aldrei sagt neinum hvernig á að takast á við svona. Það verður hver að finna sína leið og ég fer mína leið eins og aðrir fara sína leið. Og það að ég hafi ekki brotnað niður segir ekk­ert um það að aðrir geri það ekki eða það sé ekki best fyrir þá.

Mér hefur ein­hvern veg­inn tek­ist að skrúfa haus­inn rétt á mig; ég tala alltaf um að skrúfa haus­inn rétt. Maður verður alltaf að horfa fram og alltaf upp. Og maður má aldrei missa von­ina. Aldrei. Maður á alltaf að vera von­góður og bjart­sýnn. Svo er mottó sem ég til­eink­aði mér fyrir löngu síðan í líf­inu og það er að glata ekki gleð­inni. Af því að í hverri stöðu eru alltaf tæki­færi. Það er eitt­hvað gott við allt; það er sama í hverju fólk lendir. Það er alltaf ein­hver lær­dómur og alltaf eitt­hvað gott í öllu. Það er alltaf hægt að vera þakk­látur fyrir eitt­hvað og ef maður nær að vera í þakk­læt­inu og auð­mýkt­inni þá held ég að maður kom­ist svo­lítið langt.“

Heimurinn að handan

Þórunn seg­ist aldrei hafa verið hrædd við að deyja. „Ég held að það sé ekk­ert vont fyrir þann sem deyr. Það er verra fyrir hina. Ég hef þá frekar áhyggjur af fólk­inu mínu; þeim sem eru í kringum mig. En ekki af sjálfri mér. Við vitum hvað er að lifa en við vitum ekk­ert hvað hitt er. Það eina sem við vitum er hvernig er að vera á þess­ari jörð. Hitt vitum við bara ekk­ert um. Það getur vel verið að ein­hver viti það en ég veit það ekki.“

Þórunn er spurð hvar hún fái þennan styrk. „Ég get ekk­ert útskýrt það. Ég hef alltaf haft þá trú að ég er langt frá því að vera það merki­leg­asta sem er á þess­ari jörðu. Og það er eng­inn merki­legri en annar. Við erum öll mik­il­væg. Svo veit ég að ég get sett áhyggjur mínar og vanda­mál mín til ein­hvers mér æðri. Ég trúi því. Og ég fæ hjálp­ina. Ég hef alltaf fengið hjálp.“

Hún er trúuð og leitar í trúna. Hún segir að það hljóti eitt­hvað að taka við eftir þetta líf. „Það væri voða skrýtið ef það væri bara þetta hér, bara þessi heimur. En ég veit ekk­ert endi­lega hvað það er sem tekur við. Amma mín sagði mér að það væri svo dásam­legt í himna­ríki af því að þar væru allir alltaf í sömu föt­unum og það þyrfti aldrei að strauja.“ Hún hlær. „Það getur vel verið að það sé þannig. Alla­veg­ana fyrir ein­hverja. En er það ekki aðal­lega ljós og kær­leikur? Ég held að það taki við. Við þurfum ekk­ert endi­lega að fara þangað til að upp­lifa það. Við getum alveg upp­lifað það líka hérna af því að það er gott fólk alls staðar í kringum okkur og það er eitt­hvað gott alls staðar. Við þurfum bara að muna eftir að koma auga á það, veita því athygli og næra það góða sem er í kringum okkur en ekki ein­blína alltaf á þetta nei­kvæða eða velta okkur upp úr ein­hverju sem er nei­kvætt eða leið­in­legt. Við getum alveg fundið okkar para­dís hér. Og hún er hér. Ef við förum alltaf eftir hjart­anu þá held ég að við séum bara í góðum málum.“

„Ég held að það sé ekk­ert vont fyrir þann sem deyr. Það er verra fyrir hina.“

Hún seg­ist vera næm á fólk og umhverfi. „Ég á mjög auð­velt með að tala við ýmsa í kringum mig. Ég er í reglu­legu sam­bandi við ömmur mínar sem eru látnar. Ég tala við þær. Það er mér svo eðli­legt. Ég held að flestir séu að gera þetta en að þeir átti sig ekki á því.“

Hún segir að þessi vit­neskja styrki þá trú hennar að eitt­hvað taki við að þessu lífi loknu.

„Svo er líka afskap­lega margt við­ræðu­gott og gef­andi fólk sem ég er rík af í lífi mínu á þess­ari jörð.“

„Það er mjög auð­velt að finna ham­ingj­una þar sem ég er núna af því að ég lít á mig sem lánsama konu. Mjög lánsama.“

Augun heilluðu

Þórunn fædd­ist í Reykja­vík og er dóttir Sigríðar Lúth­ers­dóttur og Egils Ásgríms­sonar bólstr­ara. „Draum­ur­inn var að verða bólstr­ari eða bóndi; svo fann ég bara Hauk minn austur á Vopna­firði.“ Og Haukur er bóndi.

Hún útskrif­að­ist frá Versl­un­ar­skóla Íslands árið 1984 og ákvað að eftir útskrift að kenna í einn vetur á Vopna­firði. Þá kom kenn­ara­verk­fall og fór hún að vinna í slát­ur­hús­inu í bænum. „Ég leit upp einn dag­inn þegar ég var þar í vinnu og sá Hauk,“ segir hún og á þá við eig­in­mann sinn, Frið­björn Hauk Guð­munds­son. „Ég hugs­aði með mér að þarna væri mað­ur­inn minn. Svo hristi ég haus­inn og hugs­aði með mér að þetta væri vit­leysa; ég væri rétt tví­tug og þetta væri kall uppi í sveit.“ Haukur er 18 árum eldri en hún. „En það varð þannig. Hann varð mað­ur­inn minn. Ég sá það bara strax. Augun í honum heill­uðu mig og hann er svo fal­legur að innan og utan. Hann er góð mann­eskja. Ég fór svo um vet­ur­inn að spyrja hvar hægt væri að kom­ast að sem kaupa­kona sum­arið eftir og þá var mér bent á hann. Ég fór til hans í Hauks­staði og þá fórum við að vera saman.“ Þetta var sum­arið 1985. Þau trú­lof­uðu sig ári síðar og giftu sig árið 1987.“

Jafnréttismál

Hjónin eru sauð­fjár- og skóg­ar­bændur í Vopna­firði. „Þetta var sér­stakt fyrstu árin af því að for­eldrar Hauks, bróðir og föð­ur­bróðir bjuggu líka á bænum sem var mjög afskekktur en bær­inn er sá innsti í Vest­ur­ár­dal.

Ég fékk mér kú og ég bjó allt til heima; ég bjó til skyr, smjör og súr­mjólk. Og ég bak­aði allt sem þurfti. Ég tók þetta alla leið. Svo vorum við með fullt af krökkum í sveit. Ég tók það alla leið að vera bóndi og hús­móðir.“

Hún hóf síðar fjar­nám við Kenn­ara­skóla Íslands og fékk kenn­ara­rétt­indi árið 1999. Hún kenndi í tæpan ára­tug við grunn­skól­ann á Vopna­firði, eða á árunum 1999-2008, og fór síðan í stjórn­un­ar­stöður við skól­ann. Hún var verk­efna­stjóri hjá Þekk­ing­ar­neti Aust­ur­lands, sem í dag er starf­rækt innan Aust­ur­brúar, á árunum 2008-2013 og var í sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps 2010-2014 og odd­viti á árunum 2010-2013.

„Ég kynnt­ist skemmti­legum heimi þegar ég fór að vinna í stjórn­málum. Ég kynnt­ist fólki út um allt land sem er til­búið til að leggja eitt­hvað gott til sam­fé­lags­ins og er til­búið til að vinna mikið. Það eru for­rétt­indi að vinna með svo­leiðis fólki.“

Þórunn talar um verk­efnin. „Það er ýmis­legt sem við erum ekki komin nægi­legt langt með eins og til dæmis í jafn­rétt­is­málum en ég vil leggja áherslu á þau; jafn­rétti til búsetu, kynja­jafn­rétti og bara jafn­rétti í sem víðustum skiln­ingi. Við eigum öll að hafa sama rétt hvar sem við kjósum að búa og við þurfum að finna leið­irnar til þess að allir búi við sem jöfn­ust kjör. Það er mín sýn. Inn­við­irnir skipta öllu máli en ef við ætlum að hafa landið allt í byggð þá þarf vega­kerfið að vera í lagi sem og fjar­skipta­málin. Og umhverf­is­málin skipta miklu máli. Við höfum náð gríð­ar­lega miklum árangri í þessum málum að und­an­förnu og ég er mjög ánægð með það,“ segir Þórunn sem er for­maður Sam­göngu­ráðs. „Nú erum við loks­ins farin að geta talað um störf án stað­setn­ingar og jafn­rétti til búsetu og enn höldum við áfram því nú er haf­inn und­ir­bún­ingur að sam­göngu­á­ætlun til næstu fimm ára.“

Hún segir að Íslend­ingar eigi að læra af öllu því sem við erum búin að ganga í gegnum. „Það sem við höfum lært er að sam­vinnan skilar okkur miklu lengra og það höfum við Fram­sókn­ar­menn alltaf talað um. Núna finnst mér það hafa sannað sig. Við þurfum ekki annað en að horfa á lyfja­fram­leið­endur og hvernig við höfum lagst á eitt núna til að láta hlut­ina ganga og það gerum við saman með sam­vinnu og sam­tali. Það er alltaf sam­talið sem kemur okkur áfram.“

„Og við þurfum að verja íslenskan land­búnað. Það er eitt af mik­il­væg­ustu málum þjóð­ar­innar. Það eru ómet­an­leg for­rétt­indi að hafa aðgang að heil­næmri og hollri fæðu. Það búa ekki allar þjóðir við það.“

Full bjartsýni

Hún er spurð hvaða mál standi upp úr. „Á heild­ina litið er margt sem við getum verið gríð­ar­lega stolt af. Við höfum til dæmis náð góðum árangri í jafn­réttis- og sam­göngu­málum. Svo höfum við Fram­sókn­ar­menn unnið mikið í tengslum við nýt­ingu lands; hvernig við nýtum landið okkar og göngum um það. Ég hef verið með í málum varð­andi til dæmis rík­is­jarðir; hvernig við nýtum þær og við þurfum að skil­greina hvernig við ætlum að nota landið, hvað á að fara undir mat­væla­rækt og svo er það mat­væla­ör­yggið sem má aldrei gleyma. Við megum heldur aldrei gleyma því hvað það er mik­il­vægt að fram­leiða mat­inn okkar hérna hjá okkur í okkar landi. Og við þurfum að verja íslenskan land­búnað. Það er eitt af mik­il­væg­ustu málum þjóð­ar­innar. Það eru ómet­an­leg for­rétt­indi að hafa aðgang að heil­næmri og hollri fæðu. Það búa ekki allar þjóðir við það.“

Þórunn stendur upp og opnar glugg­ann. Snævi þakið fjall og grár him­inn blasa við.

„Ég er orðin svo­lítið þreytt, Svava,“ segir hún.

Þórunn er umfram allt bjart­sýn. Vongóð. Spurð um ham­ingj­una segir hún: „Ham­ingj­una finnur maður í hjart­anu. Ef við gerum allt út frá hjart­anu þá erum við á réttri leið. Og þegar hjartað nær sínu fram þá erum við sönn og trú og líður vel með okkur sjálfum og fólk­inu okkar. Ef við náum að gera allt úr frá hjart­anu og hlustum á það þá held ég að við séum á góðum stað.“

„Ég held að sálin mín sé að verða svo­lítið sjóuð í að takast á við áföll. Ég hef aldrei brotnað alveg niður.“

Þórunn er spurð hvort hægt sé að upp­lifa ham­ingj­una í þeim aðstæðum sem hún er í?

„Já. Það er mjög auð­velt að finna ham­ingj­una þar sem ég er núna af því að ég lít á mig sem lánsama konu. Mjög lánsama. Ég er full þakk­lætis fyrir allt sem ég fæ og full gleði.

Svo má maður ekki taka lífið of alvar­lega. Það verður bara leið­in­legt. Við vorum ekk­ert að fæð­ast á þessa jörð til að hafa leið­in­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ