Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég hefði aldrei trúað því að þetta gæti haft svona rosaleg áhrif á allt í lífinu“

„Ég hefði aldrei trúað því að þetta gæti haft svona rosaleg áhrif á allt í lífinu“
Elísabet Guðrún. Mynd/ Róbert Reyn­is­son. Mynd: Róbert Reynisson

„Þetta er búið að vera hrika­lega erfitt. Maður getur ekki hitt fólk, ég fer ekki neitt því ég er alltaf svo þreytt. Mér finnst til dæmis mjög leið­in­legt að geta ekki verið með barna­börnin, ég bara hef ekki neitt í það.“

Elísabet Guðrún Nönnu­dóttir greind­ist með covid þann 3. októ­ber á síð­asta ári. Þegar Elísabet hélt hún væri að ná sér, fékk hún í tvígang lungna­bólgu og er óhætt að segja að líf hennar hafi ekki verið samt síðan. Hefur hún glímt við mikil eft­ir­köst eftir veik­indin og var sett í for­gang til að kom­ast inn á Reykja­lund. Í byrjun sum­ars fékk svo Elísabet boð um að hefja end­ur­hæf­ingu á Reykja­lundi.

„Ég bý í sum­ar­bú­stað með mann­inum mínum, við erum bara tvö og hann hugsar mjög vel um mig. En ég var búin að vera meira og minna veik þangað til ég kom hér inn. Ég man ekki hvaða mán­að­ar­dag það, ég er svo gleymin,“ segir Elísabet og dæsir.

„Ég var gleymin fyrir covid, en ennþá verri eftir covid. Ég man ekk­ert stund­inni lengur.“

Aðspurð hvort hún viti hvar hún hafi smit­ast seg­ist hún gera það.

„Það var þannig að dóttir mín var með afmæli og var búin að fresta því lengi vegna sam­komu­tak­markanna. Þetta var bara við fjöl­skyldan.“

Segir hún son sinn hafa verið í afmæl­inu, en hann reki fyr­ir­tæki og þurfti hann að ræða við
einn starfs­mann sinn fyrir afmælið.

„Um kvöldið eftir afmælið hringir starfs­mað­ur­inn í hann og segir: „Þú verður að fara í test ég er með covid.“ Við fórum öll í sótt­kví. Svo vorum við kölluð í sýna­töku og við vorum öll með covid; ég, mað­ur­inn minn, börnin mín, tengda­börn og tvö barna­börn.“

Segir Elísabet hóp­inn hafa verið mis veikan, en þau hjónin hafi verið veik­ust en barna­börnin varla orðið neitt veik.

Hver voru einkennin?

„Úff öll ein­kenni sem þú getur bara ímyndað þér; haus­verkur, upp­gangur, nið­ur­gangur, bein­verkir, ofboðs­leg þreyta, ég var bara alveg örmagna.“ Segir hún það hafa verið erfitt að fara í sturtu, hún hafi þurft hvíld eftir hana til að hafa orku til að klæða sig.

„Ég bara skreið fram úr rúm­inu, í stól, úr stól í sófa og svona gekk þetta dag­inn út og dag­inn inn. Svo fór ég inn í her­bergi að leggja mig. Og þessi þreyta ætl­aði aldrei að brá af mér. Ég er búin að ná tals­vert miklum árangri síðan ég kom hingað inn,“ segir Elísabet og á þá við inn á Reykja­lund.

„Þetta er mikil vinna, en alveg þess virði. Þegar ég kom hér, var ég mjög slæm og ég fékk ný lyf sem hjálp­uðu mér líka.“

Segir hún þó sum ein­kenni enn gera vart við sig. „Minnið er alveg bara, það bara fór í frí sko,“ segir hún og skellir upp úr. „Ég man ekki neitt stund­inni lengur, þegar ég er að tala við fólk þá finn ég oft ekki orðin sem ég ætla að segja.
Maðurinn minn var líka mikið veikur, svo bara kláraði hann þetta og hann finnur ekki fyrir neinu. Hann er ekki með nein eft­ir­köst, það finnst mér mjög skrítið.“

Elísabet er með lungna­sjúk­dóm og gigt­ar­sjúk­dóm, sem hún segir geta útskýrt að ein­hverju leyti hve veik hún varð. „Covid herjar nátt­úr­lega á mann þar sem maður er veikastur fyrir.“

Varðstu hrædd þegar þú greindist með covid?

„Ég hef aldrei verið hrædd við að veikj­ast. Ég var meira hrædd um mann­inn minn, mér fannst hann miklu veik­ari en ég. Hann fékk svo ofboðs­lega mik­inn hita, ekki ég.

Ég skil eig­in­lega ekki hvernig við fórum í gegnum þetta. Bara að fá okkur að borða og svona. Ég man ekki einu sinni hvernig þetta var þegar ég hugsa til baka.“ Segir hún systur sína hafa verslað fyrir þau hjónin og skilið eftir fyrir utan. „Ég er rosa­lega þakk­lát fyrir það.“

Hvernig hefur líf þitt breyst eftir að hafa fengið covid?

„Þetta er búið að vera hrika­lega erfitt. Maður getur ekki hitt fólk, ég fer ekki neitt því ég er alltaf svo þreytt. Mér finnst til dæmis mjög leið­in­legt að geta ekki verið með barna­börnin, ég bara hef ekki neitt í það. Ég á eina litla sem er bara níu mán­aða, ég get ekki einu sinni haldið á henni.“

Elísabet seg­ist orka það að setja í þvotta­vél heima hjá sér og hún geti hengt upp þvott­inn, þó með pásum. „Þetta er svo ofboðs­lega ólíkt mér, ég er vön að þrífa húsið og þvott­inn og allt saman á einum degi. Ekki séns að ég geti það núna, þetta lendir alveg á mann­inum mínum.“

Þetta hlýtur að hafa áhrif á andlegu hliðina?

„Já, maður verður rosa dapur. Þegar þú getur ekk­ert gert allan lið­langan dag­inn, en ert vanur því.  Allt í einu ertu bara algjör­lega óvirk í öllu, þá verður maður rosa þungur.“

Þá seg­ist hún ekki einu sinni geta horft á sjón­varpið. „Ég dett bara út af. Ég gerði margar til­raunir til að horfa á þætt­ina Alla leið, ég náði því aldrei, sofn­aði alltaf. Ég þurfti orðið að leggja mig til að geta horft á eitt­hvað,“ segir Elísabet og skellir upp úr.

„Þetta er rosa skrítið. Ég hefði aldrei trúað því að þetta gæti haft svona rosa­leg áhrif á allt í líf­inu.“

En er hún orðin varkárari eftir veikindin?

„Já algjör­lega. Ég er alltaf á varð­bergi. Hver segir að ég geti ekki smit­ast aftur? Það veit eng­inn neitt almenni­lega um þetta og ég býð ekki í það ef ég myndi smit­ast aftur. Ég fer helst ekk­ert í búð, ef ég mögu­lega kemst hjá því. Ég hef heldur ekki ork­una í það. Maðurinn minn gerir þetta allt, hann er svo hraustur.“

Léttir í því að heyra um aðra sem gengið hafa í gegnum það sama og hún

„Þegar ég heyri aðra sem hafa fengið covid tala um það sem ég er búin að glíma við þá verður mér létt, ég er ekki ein um þetta það eru fleiri. Því þú færð engar upp­lýs­ingar hvað covid gerir þér. Og þú veist ekki einu sinni um allt sem veiran getur haft áhrif á, fyrr en þú heyrir aðra tala um nákvæm­lega sama og þú ert að glíma við. Og það er léttir að því í sjálfu sér að maður er ekki einn að glíma við eitt­hvað sem maður veit bara ekk­ert hvað er.

Hárlos getur til dæmis verið einn af fylgi­kvillum covid. Ég skildi ekk­ert í þessu, ég missti svo rosa­lega mikið af hári, ég var alltaf öll í hárum og bara slóðin á eftir mér. Þegar ég er komin hingað þá spyr mig kona sem fékk covid: „Þú ert með svo mikið hár lentir þú ekk­ert í því að missa hár í veik­ind­unum?“ Þá kveikti ég, það er þess vegna. Þá var ég farin að taka inn kollagen, því ég var orðin hrædd um að fá skalla­bletti, þetta var orðið svo mikið. Ég þorði varla að greiða mér. En það er eig­in­lega alveg hætt núna.“

„Ég fann um leið og ég kom hingað inn hvað andinn er ofboðslega góður hér.“

Elísabet segir tím­ann á Reykja­lundi hafa verið dásam­legan, „fólkið hérna er svo ein­stak­lega gott. Það er sama hvort það sé stelpan á sím­anum, læknar, fólkið í mötu­neyt­inu, hjúkr­un­ar­fræð­ingar, það er alveg sama hvern þú hittir hérna, það eru allir svo ofboðs­lega jákvæðir, góðir og hug­ul­samir. Ég fann það um leið og ég kom hingað inn hvað and­inn er ofboðs­lega góður hér.“

Á Reykja­lundi seg­ist Elísabet fá þá hjálp sem hún þurfi á að halda. „Þér er sagt hvað og hvernig þú átt að gera hlut­ina. Svo bara vinnur þú þína vinnu og það er svo mik­il­vægt, því þegar maður er kom­inn á þann stað sem ég var, ekk­ert að gera og bara dottin í, má eig­in­lega næstum segja þung­lyndi, þá þarf maður hjálp til að kom­ast aftur í gang. Og hana fær maður hérna.“

Segir hún alveg sama við hvern er rætt sem hefur reynslu af Reykja­lundi, allir séu sam­mála um að það sé ein­stak­lega flott stofnun.

„Starfs­fólki hér á alveg því­líkt hrós skilið.“

Göngur eru hluti af end­ur­hæf­ingu Elísa­betar og segir hún þær léttar og lif­andi. „Það er labbað og stoppað og sögð saga af þessu og hinu hérna í nágrenn­inu. Heil­mikil vit­neskja. Þó það gleym­ist alveg eins og skot hjá mér reyndar,“ segir hún og hlær, „en kannski kemur það ein­hvern tím­ann til baka.“

Segir hún sama hvert verk­efnið sé, alltaf sé gleðin í fyr­ir­rúmi. „Það er alltaf gaman. Þó það sé erfitt þá er gaman.“

Elísabet hefur trú á því að hún nái sér að fullu, en það kosti þol­in­mæði. „Það bara tekur tíma og maður bara tekur því. Ég er alla­vega komin á lappir, fer í göngur og ég ætla halda áfram að virkja mig eins og er búið að kenna mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina