Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kolbrún borgaði 16.530 krónur fyrir 50 gramma lykil frá Íslandi – Sjáðu svar DHL

Kolbrún borgaði 16.530 krónur fyrir 50 gramma lykil frá Íslandi – Sjáðu svar DHL

Neytenda var veru­lega brugðið er hún var rukkuð um 16.530 krónur fyrir 50 gramma bréf sem hún sendi með DHL á dög­unum.

Um var að ræða stakan lykil sem sendur var í umslagi og því sendur sem bréf, frá Íslandi til Slóvakíu. Ekki var um neina auka­þjón­ustu að ræða né hrað­send­ingu. Neyt­and­inn, Kolbrún nokkur, sagði frá þessu inni á fjöl­mennum Facebook-hópi á dög­unum. „Finnst ekk­ert eðli­legt við það að borga hátt í 20.000 fyrir bréf sem er ekki einu sinni í hrað­flutn­ingi eða neitt auka“ segir Kolbrún.

Rósa nokkur segir frá því undir færslu Kol­brúnar að hún hafi sent debet­kort með DHL fyrir stuttu síðan frá Íslandi til Frakk­lands og kost­aði það hana tæpar 9.000 krónur. „Þannig að ég gæti vel trúað að þetta sé rétt þó þetta sé algjör­lega sið­laust“ segir Rósa að lokum um málið.

Á reikn­ingi sem má sjá hér neðst, sést að inn­heimt er elds­neyt­is­gjald að upp­hæð 2.510 krónur að auki við send­ing­ar­kostn­að­inn sjálfan sem er 14.020 krónur. Verður það að telj­ast nokkuð sér­stakt. Einnig rak blaða­maður augun í það að rukkað er fyrir ein­ing­una 0, 5 á reikn­ingnum og DHL inn­heimtir eftir því hve mörg kíló fólk er að senda svo það lítur út fyrir það að verið sé að  inn­heimta gjald fyrir 500 grömm ekki 50 grömm.

Fleiri tjá sig

Kolbrún leit­aði svara við þess­ari háu upp­hæð sem henni bar að greiða, hjá starfs­manni DHL því hún hélt að um mis­tök hlyti að vera að ræða. Starfs­maður DHL tjáði henni að svona væri þetta bara.

Fleiri tjá sig um send­ing­ar­kostnað DHL undir færsl­unni og segir Eygló nokkur frá því að hún hafi sent tölvu­kassa til Ítalíu í við­gerð með DHL og greitt fyrir það um það bil 38.000 krónur með tölu­verðum afslætti. Þegar borgað var undir pakk­ann frá Ítalíu til Íslands nam kostn­að­ur­inn ein­ungis 18.000 krónum. Því þurfti að greiða  111 pró­sent lægra verð frá Ítalíu til Íslands en frá Íslandi til Ítalíu.

Auður seg­ist hafa sent með DHL, 10 kílóa pakka um jólin frá Íslandi til Spánar og greitt fyrir það um það bil 13.000 krónur og segir að henni þykir verðið sem Kolbrún var rukkuð um hel­víti vel í lagt.

Svar DHL

Mannlíf hafði sam­band við DHL og grennsl­að­ist fyrir um þessi him­in­háu verð sem greint er frá hér að ofan sem og ástæðu þess að sér­stak­lega er inn­heimt elds­neyt­is­gjald. Svar frá sölu­deild hljóm­aði svona :

„Reikn­ing­ur­inn sem um ræðir er stað­greiðslu­reikn­ingur fyrir hrað­send­ingu á pakka, ekki skjala­send­ingu.  DHL Express á Íslandi býður ein­göngu upp á hrað­send­ingar fyrr minni pakka og skjöl, ekki svo­kall­aðar „economy send­ingar“ eða venju­legar póst­send­ingar.  Verð hrað­send­inga er vissu­lega hærra en verð póst­send­inga en á móti kemur að þjón­ustan er á engan hátt sam­bæri­leg.  Í kringum hátíðar, þegar margir þurfa að senda til vina og ætt­ingja erlendis, býður DHL Express hrað­send­ingar á sér­stökum verðum.

1)      Þessi send­ing átti að inni­halda lykil en ekki ein­göngu skjöl.  Þar með er okkur óheim­ilt að senda þetta sem skjala­send­ingu.  Það gilda önnur lög­mál um pakka­send­ingar en skjala­send­ingar, þær þurfa að fara í gegnum toll­af­greiðslu og með­höndlun þeirra er á margan hátt kostn­að­ar­sam­ari.  Skjala­send­ing (Express Envelope) hefði kostað minna.

2)      Byrj­un­ar­þyngd í alþjóð­legri gjald­skrá í pakka­send­ingum (Express Worldwide) er 0,5 kg.  Allar hrað­send­ingar undir 0,5 kg eru því rukk­aðar eftir þeirri byrj­un­ar­þyngd.  Í raun hefði því verið hægt að senda fleiri lykla í við­kom­andi send­ingu án þess að verð hennar hefði hækkað.  Gjald­skráin er upp­byggð á þennan hátt þar sem allar hrað­send­ingar þurfa vissa með­höndlun burt­séð frá þyngd sem er kostn­að­ar­söm.

3)      Elds­neyt­is­gjaldið er aðlagað í sam­ræmi við breyt­ingar á elds­neyt­is­verði á heims­mark­aði. Þar sem elds­neyt­is­gjaldið er háð breyt­ingum í byrjun hvers mán­aðar er nauð­syn­legt að það sé sýni­legt á reikn­ingum til að gæta gegn­sæis.

4)      Það þekk­ist að verð geti verið breyti­legt fyrir sömu þyngdir og stærðir.  Ástæður fyrir því geta verið marg­vís­legar.  Það er til að mynda mjög algengt þegar send­ingum er skilað til stórra fyr­ir­tækja erlendis að þau greiði lægra flutn­ings­verð þegar varan er send til baka.  Fyr­ir­tæki sem mögu­lega senda hund­ruð hrað­send­inga frá sér dag­lega geta samið við flutn­ings­fyr­ir­tæki í krafti þess flutn­ings­magns og senda frá sér sam­kvæmt þeim flutn­ings­samn­ingum“.

DHL hefur þá komið því á hreint að ekki var um mis­tök að ræða og útskýrt hvernig í mál­unum liggur. Það má svo alltaf deila um það hvað er sann­gjarnt og hvað er dýrt og fer Mannlíf alls ekki ofan af því að 16.530 krónur fyrir 50 gramma send­ingu sé rán­dýrt. Neyt­endur geta að minnsta kosti tekið upp­lýsta ákvörðun áður en ákvarðað er um það við hvaða fyr­ir­tæki þeir ætla að skipta við, að minnsta kosti þegar um svo léttar send­ingar er að ræða. Eflaust væri ódýr­ara að fara til Póstsins og kaupa hrað­send­ingu hjá þeim undir lykil, sem dæmi. Þetta sýnir enn og aftur hvað það er mik­il­vægt að skoða alla mögu­leika og verð á þjón­ustu áður en hún er keypt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina