Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Margrét nýorðin áttræð og gengur á fjöll þrisvar í viku: „Gefur mikið að vinna litla sigra“

Margrét nýorðin áttræð og gengur á fjöll þrisvar í viku: „Gefur mikið að vinna litla sigra“
Margrét S. Páls­dóttir

Margrét S. Páls­dóttir situr á steini uppi á Esju þegar blaða­maður hringir í hana sól­bjartan júlí­dag til að einmitt spyrja hana út í fjall­göng­urnar sem hún hefur stundað í þrjá ára­tugi.

„Ég var áður fyrr alltaf í leik­fimi hjá Báru sem var og er enn vin­sæl leik­fimi. Svo bjó ég í Ameríku í fimm ár. Þegar ég flutti heim var mig farið að langa mikið til að fara að stunda fjall­göngur. Ég gekk í bæði Útivist og Ferða­fé­lag Íslands. Útivist gaf þá út fjór­blöð­ung og rak dóttir mín augun í aug­lýs­ingu aftan á blað­inu þar sem strákur var að aug­lýsa eftir fólki sem væri til í að koma með sér til Nepal því hann lang­aði að fara þangað með hóp. Dóttir mín spurði mig hvort þetta væri ekki eitt­hvað fyrir mig af því að hún vissi að ég væri búin að fá þennan áhuga á göngum. Þarna var ég um fimm­tugt. Ég hóaði í systur mína og mág og við fórum á kynn­ing­ar­fund vegna fyr­ir­hug­aðrar ferðar.“

Margrét hélt svo til Nepal þar sem hún gekk í Himala­ja­fjöll­unum.

„Það má segja að það hafi verið mín fyrsta fjall­ganga af því að ég var ekki byrjuð á þessu ennþá. Þetta var frekar auð­velt fyrir utan hæð­ina; maður fékk svo­lítið í haus­inn. Hæð­ar­veiki. Þetta var ekki erfið ganga af því að það var gengið á stígum og allt borið fyrir mann. En þar með var ég byrjuð að ganga og svo fór ég að stunda þetta.“

Vesen og vergangur

Margrét fór svo að ganga hér heima og nefnir sér­stak­lega kraft­göng­una í Öskju­hlíð­inni á sínum tíma sem voru þær einu að hennar sögn sem boðið var upp á að vetri til.

„Ég vil hrósa henni og heitir hún Árný sem var með þær og voru þær allt árið. Það voru ansi góðar æfingar. Maður gekk upp og niður og út og suður um Öskju­hlíð­ina og það hélt manni gang­andi yfir vet­ur­inn. Hún er enn að.

Svo smám saman fóru að koma hópar eins og Vesen og ver­gangur sem er minn helsti göngu­hópur.

Þetta er orðið svo auð­velt vegna þess að hóp­arnir eru með Facebook-síður; maður kíkir bara á netið og sér hvort ein­hverjar göngur séu fram undan og þá ýtir maður á „mæti“.“

Margrét sagði að Vesen og ver­gangur væri sinn helsti göngu­hópur og nefnir hún stofn­anda hans, Einar Skúlason.

„Hann er minn gúrú í þessu öllu saman. Það er stundum slæmt veð­ur­út­lit og fólk að spá í hvort það verði nokkuð farið þá í göngur en þá segi ég alltaf að ef Einar fer þá fari ég líka því hann fer aldrei í neinar vit­leysur með mann. Einar hugsar fyrir öllu. Hann kenndi mér það til dæmis að hafa með mér í löngum göngum auka­sokka og skipta um á miðri göngu en það getur gert gæfumun­inn að kom­ast í þurra og góða sokka.“

Á Látra­bjargi. Margrét og Einar hjá Veseni og ver­gangi.

Vífilsfell og Kofri

Margrét hefur gengið á mörg fjöll bæði á Íslandi og erlendis.

„Ég fer oft á sömu fjöllin. Ég held mikið upp á Víf­ils­fell. Mér finnst vera svo gaman að ganga á það. Það er skemmti­legt og svo­lítið príl. Svo á ég annað upp­á­halds­fjall sem heitir Kofri og er við Súðavík. Það er voða­lega skemmti­legt að ganga þar. Vesen og ver­gangur verður með göngu­há­tíð í Súðavík um versl­un­ar­manna­helg­ina og er ég að hugsa um að fara.“

Á Kofra.

Margrét hefur síðan gengið á fjöll meðal ann­ars í Nepal eins og þegar hefur komið fram og á Spáni og Ítalíu.

„Ég er búin að skrá mig í göngu­ferð í Aust­ur­ríki í sept­em­ber.“

Svo eru það skíða­ferð­irnar.

„Við fjöl­skyldan fórum oft á skíði til útlanda á vet­urna og ég hef farið með Veseni og ver­gangi í skíða­ferð og er búin að bóka mig í skíða­ferð í Aust­ur­ríki í febr­úar á næsta ári á vegum Vesens og ver­gangs og Bænda­ferða.“

Afmælisganga

Margrét seg­ist fara í fjall­göngu að með­al­tali tvisvar til þrisvar í viku.

„Ég fer ekki oft ein.

Ég er mikil félags­vera og þess vegna finnst mér vera svo gott að hafa þessa göngu­hópa.

Ég er ekk­ert mjög dug­leg að drífa mig ein; það er svo­lítið sér­stakt núna að ég skuli vera að þvæl­ast ein í dag en það er vegna þess að ég fór hingað í gær og var alveg undr­andi á hvað tím­inn var hag­stæður svo ég ákvað að prófa aftur í dag,“ segir Margrét þar sem hún situr á steini uppi á Esju og svarar spurn­ingum blaða­manns í síma á björtum júlídeg­inum.

Hún segir að það gefi sér mikið að vera í göngum – bæði and­lega og lík­am­lega.

„Það er líka að vera að vinna pínu­litla sigra. Og það að vera með öðru fólki gefur mér ofboðs­lega mikið félags­lega.“

Margrét varð nýlega átt­ræð og hélt Einar hjá Veseni og ver­gangi sér­staka afmæl­is­göngu henni til heið­urs.

„Það mættu um 100 manns. Ég var óskap­lega hrærð og glöð og fannst mér þetta vera ynd­is­legt. Ég þekkti nán­ast alla sem komu og það segir mér hvað ég hef kynnst mörgum í göng­unum. Við gengum hring í Búr­fells­gjá og fann Einar svo skemmti­legan stað; það var stór flöt með klettum í kring. Það var sung­inn skemmti­legur söngur sem þau höfðu samið. Svo komu margir með eitt­hvað nammi. Þetta var heil­mikil veisla.“

Margrét varð nýlega átt­ræð og hélt Einar hjá Veseni og ver­gangi sér­staka afmæl­is­göngu henni til heið­urs í Búr­fells­gjá.

Margrét segir að draum­ur­inn sé að geta gengið eins lengi og hún lifir ef heilsan helst eins góð og hún er.

„Ég er ennþá í fullu fjöri og vona að ég verði það sem lengst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina