Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Anna Lilja glímir við mjög sjaldgæfan sjúkdóm: „Hún er lífsglöð og hugrökk og rosalegur karakter“

Anna Lilja glímir við mjög sjaldgæfan sjúkdóm: „Hún er lífsglöð og hugrökk og rosalegur karakter“
Mynd: Facebook Mynd: Facebook

Anna lilja er 10 ára stúlka sem er með heil­kenni sem nefn­ist CFC en það er mjög sjald­gæfur gena­galli sem ein­ungis 600 til 800 börn í öllum heim­inum þjást af. Móðir Önnu Lilju, Hrafn­hildur Smith segir frá lífi þess­arar ein­stöku stúlku og fjöl­skyld­unnar í Frétta­blað­inu.

Hrafn­hildur sem mennt­aði sig sem lyfja­tæknir hér á landi hélt út til London eftir námið og starf­aði þar á krabba­meins­sjúkra­hús­inu Royal Marsden. Þar fékk hún til sín 22 ára gamlan nema Ali Azough, sem hún leit á og hugs­aði strax „þetta er mað­ur­inn minn“ sem hann svo varð. Hrafn­hildur segir að Ali sem er frá Íran, en flutt­ist til Englands um sex ára ald­ur­inn, ekki hafa séð fyrir sér að hann myndi setj­ast að á litla Íslandi, enda vanur stór­borga­lífi. Sú varð þó raunin og fluttu þau til Íslands árið 2016 eftir 14 ára sam­búð í London. Í dag búa Þau í Kópavogi með tvö börn og hund.

Anna Lilja er fal­leg stúlka.

Fluttu til Íslands vegna Önnu Lilju

Hrafn­hildur segir að það hafi verið ástæða fyrir því að þau fluttu til Íslands, það var vegna dóttur þeirra hennar Önnu Lilju sem greinst hafði með CFC heil­kennið ein­ungir eins árs gömul. Anna Lilja er ein af þremur börnum sem greinst hafa með heil­kennið hér á landi enda heil­kennið afar sjald­gæft. Eldri dóttir þeirra Hrafn­hildar og Ali, Emma Soffía, fædd­ist árið 2006 en þegar Hrafn­hildur gekk með hana var hún í áhættu­með­göngu­eft­ir­liti vegna frá­vika sem sést höfðu við són­ar­skoðun. Þau frá­vikin voru þó ekki alvar­leg og segir Hrafn­hildur að þetta teng­ist alls ekki erfða­gall­anum sem yngri systir Emmu Soffíu hún anna Lilja er með.  Vegna frá­vika á fyrri með­göngu Hrafn­hildar var hún í áhættu­með­göngu­eft­ir­liti þegar hún svo gekk með Önnu Lilju.

Vandamál koma í ljós

„Í tólf vikna sónar mælist hnakka­þykktin of mikil. Ég er send í legvatns­á­s­tungu og sónar og þá kemur í ljós að hún er með litla holu í hjart­anu sem er ekki svo óal­gengt og lok­ast í mörgum til­fellum fyrir fæð­ingu.“ Annað kom ekki í ljós á þeim tíma­punkti og áhyggjur því litlar. Hrafn­hildur seg­ist hafa tekið eftir því að kúlan stækk­aði mjög hratt. Mér var mjög illt í húð­inni á mag­anum og ræddi það við heim­il­is­lækni minn. Hún mældi mig og sá þá að maginn hafði stækkað um 12 sentí­metra á sjö vikum sem er algjör klikkun“. Þessi gríð­ar­lega öra stækkun hringdi við­vör­un­ar­bjöllum og var hún send í frek­ari rann­sóknir. Nið­ur­staðan var að útlimir barns­ins voru óeðli­lega stuttir en höfuð og búkur þess í eðli­legri stærð. „Í fram­haldi fórum við í enda­laus tékk en einu svörin frá lækn­unum voru að þeir vissu að eitt­hvað amaði að henni en bara ekki hvað. Þetta er mjög sér­kenni­legt mál og erfða­fræð­ing­ur­inn á spít­al­anum í London notar það enn í kennslu. Þegar ég síðar les mér til um CFC heil­kennið skil ég ekki að þeir hafi ekki áttað sig fyrr enda er ég skóla­bók­ar­dæmi. Á 20 til 24 viku byrjar allt að fara úrskeiðis hjá mér eins og er almennt með þetta heil­kenni“.

Mægð­urnar Hrafn­hildur og anna Lilja.

Anna Lilja fæðist

Hrafn­hildur var mjög verkjuð það sem eftir lifði af með­göng­unni og móðir Ali flutti inn til þeirra til þess að sinna eldri stúlkunni. Þann 19. júlí kom Anna Lilja í heim­inn með fyr­ir­framá­kveðnum keis­ara­skurði sem 20 læknar voru við­staddir. „Hún var nokkuð eðli­leg í útliti þó hún hafi verið mikið bjúguð. Hún átti erfitt með að and­ar­drátt og var rokið með hana beint á vöku­deild þar sem hún fékk aðstoð með það. Ég rétt sá hana og fékk pínu sjokk, enda var hún svo bjúguð að ekki sást í háls hennar. Hún mæld­ist fjögur kíló við fæð­ingu en það hrundi af henni næstu daga enda um vökva­söfnun að ræða. Mér var kastað inn á sjúkra­stofu með mikla verki en í Bret­landi eru þau spar­söm á verkja­lyf í þessum aðstæðum, og Ali fór með henni á vöku­deild­ina“. Þær mæðgur voru útskrif­aðar eftir að tek­ist hafði loks að koma Önnu Lilju á brjóst en óvissan var mikil. for­eldr­arnir höfðu látið vita margoft að þau hefðu áhyggjur af því hvað stúlkan þyngd­ist lítið en hún drakk ein­ungis í nokkrar mín­útur í einu og sofn­aði svo.

Vandinn vindur upp á sig

Þegar anna Lilja var orðin sjö mán­aða tóku for­eldr­arnir eftir því að höfuð hennar var orðið skrítið í lag­inu og þá var farið með hana á sjúkra­hús í rann­sóknir. Þar var loks­ins tekið undir áhyggjur for­eldr­anna varð­andi það að stúlkan þyngd­ist lítið, hún fékk á end­anum nær­ing­arslöngu, fyrst ofan í maga  gegnum munn en síðar var hún tengd beint í mag­ann sem var ólíkt betra því Anna Lilja reif oft slöng­una úr sér þegar hún var þrædd ofan í mag­ann. Anna Lilja var loks­ins greind með CFC um eins árs ald­ur­inn.

Mikið lagt á lítin kropp

Það er mikið álag að eiga barn sem er ekki heil­brigt og mikið hefur mætt á Hrafn­hildi og fjöl­skyldu. Hrafn­hildur segir frá því hvernig CFC heil­kennið hefur áhrif á dóttur hennar: „Plöt­urnar í höfð­inu vaxa saman, Anna er með slæma sjón, þröng nef­göng og taka þarf nef­kirtl­ana aftur og aftur. Eyrun safna vökva svo hún fær sífelldar eyrna­sýk­ingar og fær því svokölluð T rör sem í eðli­legum til­vikum þarf að taka með skurð­að­gerð en Anna bara poppar þeim út á sex mán­aða fresti. Því þarf hún sífelldar aðgerðir til að koma þeim fyrir aftur. Hún er með þykknun á hjarta­vöðva og við erum í stífu eft­ir­liti vegna þess. Svo er hún á vaxt­ar­horm­ónum enda rosa­lega lítil, hún er þroska- og hreyfiskert og með lága vöðva­spennu sem veldur því að hún á erfitt með gang. Hún byrj­aði ekki að ganga fyrr en fjög­urra og hálfs árs gömul og í dag er hún því miður komin með bjúg í báða fót­leggi sem veldur enn meiri vanda með gang. Okkur finnst þetta mjög erfitt þar sem hún var ekki með góða hreyfi­getu fyrir“.

Rosalegur karakter

Anna Lilja er 10 ára gömul og 110 cm á hæð er lífs­glöð og verður ekki oft veik. „Maður er ekk­ert alltaf að hugsa um að það sé eitt­hvað af henni. Hún er lífs­glöð og hug­rökk og rosa­legur karakter,“ segir Hrafn­hildur. „Hún er alveg drottn­ingin á sínum stöðum eins og í Kletta­skóla, á Guluhlíð, frí­stunda­heim­ili skól­ans og Rjóðrinu þar sem hún gistir nokkra daga í mán­uði, og elskar að fara á þessa staði. Í Kletta­skóla er Anna frekar minna fötluð enda margir í hjóla­stól og sumir tala ekki. Hún talar og spyr allan dag­inn enda líka með ADHD,“ segir Hrafn­hildur um dóttur sína hana Önnu Lilju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við