Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björn Ingi Hrafnsson: „Áslaug Arna getur ekki staðið fyrir stjórnarandstöðu í eigin ríkisstjórn“

Björn Ingi Hrafnsson: „Áslaug Arna getur ekki staðið fyrir stjórnarandstöðu í eigin ríkisstjórn“

„Það er eig­in­lega grát­bros­legt að fylgj­ast með for­kólfum ferða­þjón­ust­unnar lýsa áhyggjum sínum af því að það geti haft alvar­legar afleið­ingar fyrir Ísland að kom­ast á rauðan lista yfir nýgengi COVID-smita,“ ritar Björn Ingi Hrafns­son í pistli vef sínum, vilj­inn.is og bætir við:

„Þau hefðu betur átt að hlýða á varn­að­ar­orð Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis sem einmitt benti á áhætt­una sem fylgdi því að hætta að skima alla á landa­mær­unum.

Við Íslend­ingar gerum sömu mis­tökin aftur og aftur og samt eru sumir enn þá undr­andi á að afleið­ing­arnar verði þær sömu. Þetta gerð­ist líka í fyrra. Þá var slakað á landa­mær­unum og veirusmit bár­ust inn með þeim afleið­ingum að herða varð allar aðgerðir inn­an­lands og marga mán­uði tók að ná þeirri bylgju niður. Samt höfðu hag­fræð­ingar á borð við Gylfa Zoëga verið búnir að vara ein­dregið við því, eins og fram kom í bók minni Vörn gegn veiru á síð­asta ári.

„Hag­kerfið mun ná sér á strik þótt ekki komi fjöldi ferða­manna, svo fremi sem annar far­aldur kemur ekki í haust,“ sagði hann þar og bætti við að góður árangur í sótt­vörnum í vor hafi skapað almanna­gæði sem bæti lífs­kjör og örvi hag­vöxt. Gylfi sagð­ist vilja benda sótt­varna­lækni á að þar sem okkur Íslend­ingum hefði tek­ist jafn vel upp gegn veirunni í fyrra vor, væru komin upp eins konar sam­fé­lags­leg gæði að geta búið hér í land­inu og lifað nokkurn veg­inn eðli­legu lífi þótt í heim­inum geisi far­sótt.“

Björn nefnir að Gylfi hafi „auk­in­heldur bent á, að sótt­varna­læknis sé að hugsa um sótt­varnir og hag­fræð­ing­anna og stjórn­mála­mann­anna sé að hugsa um efna­hags­hlið máls­ins. „Ef þú ert að plana næsta vetur, þá skiptir máli að reyna að varð­veita þessi sam­fé­lags­legu gæði sem við höfum hérna. … Og hafa þessa sam­ræðu, þannig að þið séuð ekki að hugsa um efna­hags­þætt­ina. Þið hugsið um sótt­varnir og látið okkur um hitt. Og svo vinnum við saman. Að þið séuð ekki að taka sénsa af því að þið haldið að allt efna­hags­lífið sé að fara á hlið­ina,“ bætti hann við.“

Björn Ingi segir að í „máli Gylfa kom jafn­framt fram, að hann hefur miklar áhyggjur af því að veiran blossi aftur upp við opnun lands­ins og það geti orðið algjört reið­ar­slag fyrir sam­fé­lagið. Því sé afar brýnt að vanda vel öll skref sem tekin eru. Það var ekki gert; slakað var á landa­mær­unum og ný smit flæddu inn í landið með þeim afleið­ingum að öllu var lokað og mann­fagn­aðir blásnir af.“

Og svo gerð­ist það „sama nú í vor. Við lærðum ekki neitt. Smit voru orðin ansi fátíð hér inn­an­lands og vel unnt að ein­angra hvert þeirra og ná niður með smitrakn­ingu og sótt­kví þeirra sem höfðu verið útsettir. En með því að sam­þykkja að und­an­skilja bólu­setta ferða­menn frá skimun var tekin með­vituð ákvörðun um að hleypa nokkrum nýjum veirusmitum á dag inn í landið og aðeins örfáum dögum síðar erum við á beinni leið á rautt svæði; hertar tak­mark­anir teknar gildi inn­an­lands og ný smit­bylgja skollin á sem langan tíma gæti tekið að ná niður.“

Birni Inga lýst ekki vel á ástandið í rík­is­stjórn Íslands um þessar mundir:

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir „dóms­mála­ráð­herra brýtur blað með því að lýsa sig and­snúna ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að herða aðgerðir á landa­mær­unum. Hér áður fyrr hefði afsögn fylgt slíkri yfir­lýs­ingu, enda geta ein­stakir ráð­herrar ekki staðið fyrir stjórn­ar­and­stöðu í eigin rík­is­stjórn. Ef stjórn­ar­and­staðan væri ekki jafn sund­ur­laus og ótrú­verðug sem val­kostur and­spænis stjórn­ar­meiri­hlut­anum og raun ber vitni, væri rík­is­stjórnin nú í harðri varn­ar­bar­áttu og jafn­vel talað um ráð­herra­á­byrgð.“

Hann heldur áfram:

„Fram­kvæmda­stjóri ferða­þjón­ust­unnar spurði í hvaða sirkus hann væri eig­in­lega staddur þegar ákveðið var að herða aðgerðir og fara fram á nei­kvæð PCR-próf. Stuttu síðar hafði hann hvatt stjórn­völd til að „standa í lapp­irnar“ gagn­vart sótt­varna­lækni og ganga ekki á bak orða sinna gagn­vart ferða­þjón­ust­unni.

Þetta fólk kemur nú fram og lýsir af því áhyggjum að Ísland geti orðið rautt land!

Ísland er að verða rautt land og ný bylgja komin á fleygi­ferð af því að við gleymdum okkur í eigin vel­gengni og opn­uðum fyrir landa­mærin sem allir vissu að leka meðan heims­far­aldur geisar. Þessu var­aði sótt­varna­læknir við, en á hann var ekki hlustað. Því fór sem fór.

Og nú er kvartað því að það vanti plan til fram­tíðar. Það er ekki rétt. Far­sóttin geisar um heim­inn sem aldrei fyrr og nú er talið að hún geti gert það næstu 2-3 árin með nýjum afbrigðum. Bólu­setn­ing gegn smitum veldur von­brigðum, enda þótt hún virð­ist verja fólk fyrir alvar­legum veik­indum.“

Björn Ingi er á því að „á meðan sú er staðan getur plan stjórn­valda varla falist í öðru en gera það sem hefur sýnt sig að virkar. Skima alla sem koma til lands­ins, bólu­setta sem óbólu­setta, og krefj­ast nei­kvæðs PCR-prófs sömu­leiðis. Þannig getum við gripið smit á landa­mær­unum og gert við­eig­andi ráð­staf­anir, en lifað góðu lífi inn­an­lands og án flestra sam­komu­tak­mark­ana.“

Hann nefnir að „hinn mögu­leik­inn er að hafa áfram opið, en þá er alveg óhjá­kvæmi­legt að nokkur smit ber­ist hingað dag­lega og næstu vikur og mán­uðir muni ein­kenn­ast af mis­hörðum sótt­varna­að­gerðum. Skól­arnir byrja innan skamms og það er nægt fóður fyrir útbreiðslu Delta-afbrigð­is­ins. Hvað þá þeirra afbrigða sem á eftir munu fylgja,“ og að

það er „aðkallandi að nú þegar verði upp­lýst hvað varð til þess að skimunum var hætt fyrsta júlí. Skaðinn sem af því hefur hlot­ist er þegar orð­inn gríð­ar­legur. Við eigum að nýta okkur það að vera ein­angruð eyja og skima alla sem hingað koma. Þannig verjum við inn­lenda hags­muni, líf og heilsu fólks og getum haft það betra en flestar aðrar þjóðir.“

Að lokum segir Björn Ingi að ekk­ert okkar hafi beðið „um þessa veiru. Við erum öll orðin hund­leið á henni og því að mega ekki gera allt eftir okkar eigin höfði. En meðan hún geisar um heim­inn ber okkur skylda til að hugsa um hags­muni heild­ar­innar og lág­marka tjónið. Það segir sig sjálft.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina