Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Logi afar áhyggjufullur vegna Delta og krefst aðgerða strax: „Við megum ekki hætta að berjast“

Logi afar áhyggjufullur vegna Delta og krefst aðgerða strax: „Við megum ekki hætta að berjast“
Logi Ein­ars­son. Mynd/Hallur Karlsson.

Logi Ein­ars­son þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er hugsi yfir stöð­unni í sam­fé­lagi okkar í kjöl­fari hrað­ara dreif­ingar Delta-afbrigð­is­ins.

„Sú fjölgun smita sem orðið hefur síð­ustu daga er högg fyrir þjóð­ina sem hefur loks­ins notið ferða­laga og lang­þráðra sam­vista við vini og fjöl­skyldu í sumar og hlakkað til betra lífs eftir að hafa lagt mikið á sig og sýnt gríð­ar­legan sam­taka­mátt og styrk,“ segir Logi og nefnir að

„vissu­lega er hægt að gagn­rýna ýmsar ákvarð­anir rík­is­stjórn­ar­innar, svo sem að fara of geyst í aflétt­ingar á landa­mærum og að hætta að skima bólu­setta ferða­menn.“

Logi bætir við:

„Aðal­at­riðið nú er samt að taka engu sem gefnu í þess­ari erf­iðu viður­eign, og reyna að læra af mis­tökum stjórn­valda. Sam­fylk­ingin hefur staðið við bakið á sótt­varn­ar­yf­ir­völdum og þrí­eyk­inu í gegnum far­ald­ur­inn og það munum við gera áfram. Við viljum einnig sýna fram­línu­fólki auk­inn stuðn­ing.“

Logi telur að veru­leiki okkar Íslend­inga næstu miss­erin muni mót­ast af umgengni við veiruna. Hann segir að miðað við þessa stöðu þá verðum við Íslend­ingar að sam­ein­ast um þá þætti sam­fé­lags­ins sem eru okkur dýr­mæt­astir og verja þá af alefli:

„Við megum ekki hætta að berj­ast fyrir far­sælli fram­tíð til langs tíma í þessu erf­iða stund­ar­stríði.“

Og heldur áfram:

„Næstu tvær vikur munu leiða í ljós hversu vel núgild­andi tak­mark­anir duga til að hemja útbreiðslu smita og hversu margir koma til með að veikj­ast alvar­lega þrátt fyrir bólu­setn­ingar. Næstu ákvarð­anir hljóta að byggja á yfir­veg­uðu og raun­sæju mati á stöð­unni.

Við getum ekki látið fram­línu­starfs­fólkið eitt um að stytta sum­ar­leyfin sín til að takast á við afleið­ingar auk­inna smita. Í bar­átt­unni við þetta nýja afbrigði þarf skýr mark­mið og aðgerðir. Því þótt óvissa ríki um veiruna er hægt að ráð­ast strax í ýmis verk­efni.“

Logi telur upp fimm aðgerðir sem hann telur að við þurfum að vera með­vituð um og fram­kvæma:

„Í fyrsta lagi verðum við að styrkja heil­brigð­is­kerfið til að það geti tek­ist á við óvænt áföll eins og það sem við upp­lifum nú. Það verður ekki lengur beðið með að bregð­ast við ítrek­uðu ákalli heil­brigð­is­starfs­fólks um það. Það er líka skýrt að ef sá nið­ur­skurður sem rík­is­stjórnin boðar í fjár­mála­á­ætlun sinni til næstu fimm ára þótti óraun­sær þegar stjórn­ar­meiri­hlut­inn sam­þykkti hana í vor, þá er hann aug­ljóst glapræði nú. Þvert á móti þarf að styrkja mun betur ýmsa þætti heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Þá er nauð­syn­legt að tryggja starfs­fólki umbun fyrir þær fórnir sem það færir í far­aldr­inum, t.d. með sér­stökum álags­greiðslum til þeirra sem nú eru kölluð heim úr sum­ar­fríi til að tryggja öryggi okkar.“

Í öðru lagi nefnir Logi að við Íslend­ingar verðum að „gera allt sem hægt er til að tryggja að skóla­starf geti haf­ist með sem minnstu raski nú í ágúst.

Mannleg sam­skipti og félags­leg færni eru grund­vall­ar­at­riði í þroska barna og ung­menna. Menntun verður að vera í for­gangi auk þess sem áfram­hald­andi tak­mark­anir á félags­lífi í land­inu geta haft slæmar afleið­ingar fyrir félags­þroska og and­lega heilsu ung­menna,“ og þá vega „hags­munir barna og ung­menna mjög þungt við val á aðgerðum í baráttunni við veiruna; liður í því getur verið að setja kenn­ara og aðra þá sem sinna kennslu, tóm­stunda- eða félags­starfi barna, í for­gang þegar kemur að því að velja hópa í við­bót­ar­skammt af bólu­efni í ágúst.“

Og þá er komið að númer þrjú.

„Í þriðja lagi verður að tryggja lífs­af­komu fólks sem verður fyrir áfalli vegna veirunnar. Atvinnu­leysi er hér enn með því hæsta í Evrópu, og ef við og löndin í kringum okkur horfum fram á áfram­hald­andi útbreiðslu veirunnar er ljóst að grípa þarf til frek­ari aðgerða til hjálpar atvinnu­leit­endum.“

Logi segir að það „þarf að lengja tíma­bil atvinnu­leys­is­bóta og hækka lág­marks­greiðslur – í hið minnsta tíma­bundið. Sam­fylk­ingin hefur einnig lagt til að hækka per­sónu­af­slátt til þeirra sem hefja störf að nýju eftir atvinnu­leysi.“

„Í fjórða lagi,“ segir Logi að það verði að vakta vel starf­semi fjöl­breyttra fyr­ir­tækja um allt land, og grípa til stuðn­ings­að­gerða fyrir þau sem þess þurfa, sér í lagi lítil fyr­ir­tæki og ein­yrkja:

„Mark­miðið er betra atvinnu­líf eftir far­ald­ur­inn. Þótt ferða­þjón­ustan muni áfram leika lyk­il­hlut­verk í íslensku hag­kerfi gerum við okkur flest grein fyrir fyrir nauð­syn þess að fjölga stoðum undir atvinnu­lífið; dreifa áhætt­unni þegar áföll ríða yfir. Nær­tæk­ast og skyn­sam­leg­ast er að virkja hug­vitið og örva þekk­ing­ar­iðnað og nýsköpun.“

Í fimmta lagi segir Logi að þessi mikla útbreiðsla Delta-afbrigð­is­ins sé okkur mik­il­væg áminn­ing um að glíman við veiruna verður ekki unnin fyrr en jarð­ar­búar hafa upp til hópa verið bólu­settir og við höfum náð tökum á far­aldr­inum um alla ver­öld:

„Stjórn­mála­flokk­arnir hafa gjör­ó­líka sýn á þátt­töku í alþjóð­legu sam­starfi en jafn­að­ar­menn hafa alltaf lagt ríka áherslu á það. Mik­il­vægt er að íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir því af öllu afli á alþjóða­vett­vangi að fátæk­ari ríkjum heims verði tryggt bólu­efni hratt og örugg­lega.

Betri grein­ingu, meiri upp­lýs­ingar, skýr­ari aðgerðir

Við í Sam­fylk­ing­unni teljum nauð­syn­legt að þjóðin fái sem skýrasta mynd af því hvernig bregð­ast skuli við stöð­unni. Þess vegna mun þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður Vel­ferð­ar­nefndar Alþingis óska eftir því að nefndin komi saman á fund strax eftir helgi og kalla eftir upp­lýs­ingum frá fær­ustu sér­fræð­ingum og fram­línu­fólki. Við teljum auk þess að aðrar nefndir þings­ins sem fjalla um efna­hags- og atvinnu­mál þurfi að koma saman til að ræða við­brögð og aðgerðir.“

Að lokum hvetur Logi okkur Íslend­inga til dáða á erf­iðum tímum sem eru án hlið­stæðu – biður okkur í lengstu lög að gef­ast ekki upp.

„Fjölgun smita er bakslag. Þá er freist­andi að vilja bara hætta bar­átt­unni eða gef­ast sund­ur­lynd­is­fjand­anum á vald. En þótt við höfum svo sann­ar­lega orðið fyrir von­brigðum megum við ekki láta hug­fall­ast. Næg eru verk­efnin. Við erum rík þjóð og vel menntuð og kunnum vel að takast saman og skipu­lega á við krefj­andi verk­efni eins og dæmin sanna. Við erum þrátt fyrir allt í mun ákjós­an­legri stöðu en mörg önnur lönd. Við skulum því berj­ast áfram við far­ald­ur­inn af krafti en hafa kjark til að miða aðgerð­irnar við það sem er okkur þrátt fyrir allt dýr­mæt­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina