Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Haukur: „Þykir víst ekki gott að ungt fólk stígi sín fyrstu skref í neyslu í vernduðu umhverfi“

Haukur: „Þykir víst ekki gott að ungt fólk stígi sín fyrstu skref í neyslu í vernduðu umhverfi“

Haukur V. Alfreðs­son, við­skipta­fræð­ingur og dokt­or­snemi í hag­fræði, „er þreyttur á að for­ræð­is­hyggju Íslend­inga“ og segir að „Íslend­ingum finnst gott að hafa vit fyrir öðrum með for­ræð­is­hyggju; sér í lagi í mál­efnum sem varða þá sjálfa lítið sem ekk­ert.“

Bætir við:

„Und­an­farnar vikur og mán­uði hefur verið rætt um eitt slíkt mál: Hvort tími sé kom­inn til að stytta opnun skemmti­staða miðað við hvað var fyrir Covid.

Nýleg skoð­un­ar­könnun Maskínu sýndi að um tveir þriðju hlutar aðspurðra voru fylgj­andi stytt­ingu opn­un­ar­tíma skemmti­staða“ en að sögn Hauks „ekki nema um einn fimmti and­vígur. Rest var nokkuð sama hvernig fer.“

Haukur nefnir að „það sem kemur lítið á óvart og má lesa úr nið­ur­stöð­unum er að þeir sem eru ólík­leg­astir til að fara á skemmti­staði eru mest hlynntir stytt­ingu; þeir sem eru lík­leg­astir til að fara eru mest and­vígir,“ og vill skoða „það ögn nánar.“

„Því eldra sem fólk er því hlynnt­ara stytt­ingu er það. Að sama skapi eru þeir sem yngri eru marg­falt lík­legri til að vera mót­fallnir.“

Og hvað varðar ein­hleypt fólk nefnir Haukur að  það var „tals­vert and­víg­ara en þeir sem eru í sam­búð, og öfugt með hverjir voru hlynntir.“

Athygl­is­vert.

Haukur bendir á að „þeir sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru mun and­víg­ari en aðrir lands­menn auk þess að þeir sem búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru tals­vert lík­legri til að vera hlynntir.“

Og nið­ur­staða:

„Hér má sjá skýrt að ungt og ein­hleypt fólk er lík­leg­ast til að setja sig upp á móti breyt­ing­unum meðan að eldra fólk og fólk í sam­bandi er mest fylgj­andi breyt­ing­unum. Það þarf ekki að leita langt til að kom­ast að því að yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra sem stunda skemmti­staði eru ungt fólk og sömu sögu má segja um ein­hleypa.“

Haukur segir að „gam­alt fólk og harð­gift fólk er tals­vert minna að stunda skemmti­stað­ina, jafn ein­kenni­legt og það nú er. Þá má einnig bæta við að mest er umræðan að bein­ast að djamm­inu í miðbæ Reykja­víkur, og aftur eru Reyk­vík­ingar sátt­astir við núver­andi ástand. Já okkur Íslend­ingum leið­ist heldur betur ekki að hafa sterkar skoð­anir á hvað aðrir mega gera þó að við sjálf tengj­umst mál­inu í raun ekk­ert. Vit­an­lega á ekki að gefa áliti þeirra sem aldrei stíga inn á skemmti­staði og finna varla fyrir til­vist þeirra gaum í þess­ari umræðu.“

En aftur að for­ræð­is­hyggju og þá ein­stak­lings­frels­inu og Haukur spyr:

„Af hverju eru lög um opnun skemmti­staða eins og þau eru nú fremur en að smíða reglu­verk eftir til dæmis stað­setn­ingu og reglum um hávaða? Í dag – án Covid reglna – má eng­inn sitja á bar til lengur en klukkan eitt eftir mið­nætti á sunnu­dögum til fimmtu­daga. Á hverju byggir það? Hvað með vakta­vinnu­fólk sem á frí í miðri viku en ekki um helgar; væri alveg skelfi­legt ef það fengi að spjalla á barnum til klukkan 3?“

Hauki þykir svo „ein­kenni­legt að við treystum full­orðnu fólki fyrir að keyra þús­und kílóa stál­flykki á fleygi­ferð en ekki til þess að ráða eigin hátt­ar­tíma. Væri ekki nær að leyfa skemmti­stöðum að finna út úr þessu sjálfum eftir hvernig eft­ir­spurn neyt­enda er háttað í sam­spili við leyfi­legan hávaða? Þá er hægt að hafa til dæmis strang­ari skil­yrði í úthverfum en rýmri í mið­bænum.“

Haukur rifjar upp þegar hann byrj­aði í mennta­skóla –  en þá „mátti hafa eitt ball á önn til klukkan þrjú og skóla­fé­lagið skrif­aði á mið­ana: „Ölvun ógildir mið­ann,“ en þegar mið­inn var rif­inn við inn­göngu á ballið rifn­aði ó-ið af og eftir stóð „ölvun gildir mið­ann“. Böllin voru feikna skemmti­legt og margir gjör­sam­lega á eyr­unum. Með árunum var þó horfið frá böllum til klukkan þrjú og harðar var tekið á áfeng­is­neyslu. Til að mynda hef ég heyrt að fólk sé látið blása við dyrnar. Það þykir víst ekki gott að ungt fólk skemmti sér of vel né fái að stíga sín fyrstu skref í áfengis- og vímu­efna­neyslu meðal jafn­aldra í vernd­uðu umhverfi. Það þykir skyn­sam­legra að það sé gert með ókunn­ugu fólki af öllum aldri í heimapar­tíum, eft­irpar­tíum eða á skemmi­stöðum.“

„En þrátt fyrir þessa stefnu­breyt­ingu varð­andi djamm ungs fólks er þá hægt að segja að betur sé komið fyrir sam­fé­lag­inu varð­andi fíkni­efna­neyslu, almenna líðan, vel­gengni og fleira?“ spyr Haukur og bætir við:

„Ekki get ég séð það miðað við vin­sældir fíkni­efna, tíðni þung­lyndis eða í öðru hjá ungu fólki. Né virð­ist vera að þorri mið­aldra fólks hafi hlotið skaða af því að fá sér í glas sem ungt fólk. Er hægt að segja að þetta við­horf eldra fólks um að neyta ungu fólki um að fá að sletta úr klauf­unum á sama máta og það sjálft hafði frelsi til áður fyrr sé að skila nokkru? Er það að fara loka barnum snemma að fara breyta nokkru nema að djam­mið dreif­ist um víðan völl, í íbúða­hús­næði með til­heyr­andi raski fyrir nágranna og þar sem engir bar­þjónar eða dyra­verðir eru til að skar­ast í leik­inn þegar illa fer?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við