Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Var Stefán að birta falsfrétt í Mogga? „Kæmi ekki á óvart ef mbl.is væri að birta falsfréttir“

Var Stefán að birta falsfrétt í Mogga? „Kæmi ekki á óvart ef mbl.is væri að birta falsfréttir“
Stefán Einar Stef­áns­son.

Stefán Einar Stef­áns­son er frægur sið­fræð­ingur og við­skipta­rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Í sam­tali við DV stað­festir hann að Almanna­varnir og Land­spít­ali hafi óskað eftir því við mbl.is að vef­ur­inn myndi fjar­lægja frétt tengda Covid.

Stefán er ekk­ert að fara út í nákvæmar lýs­ingar á mál­inu, en hafði þó þetta að segja:

„Þetta teng­ist atviki þar sem ég stóð vakt­ina á blað­inu og laut að því að við vorum beðin um að fjar­lægja frétt sem var rétt.“

Ekki varð Stefán við beiðn­inni og hann seg­ist hafa áhyggjur af þrýst­ingi stjórn­valda á fjöl­miðla  í kringum alheims­far­ald­inn skæða, sem fer nú eins og storm­sveipur um Ísland og gefur lítil sem engin grið.

Stefán segir:

„Maður veit hins vegar ekk­ert hvernig aðrir hefðu brugð­ist við. Þegar full­trúar stjórn­valda, vís­inda­menn­irnir stíga fram og full­yrða að eitt­hvað sé rangt þá hrökkva flestir í kút. En þegar gengið er á menn og þeir látnir rök­styðja full­yrð­ingu sína, þá verður það að halda vatni.“

Og gagn­rýnir orð­ræðu sótt­varna­yf­ir­valda; sér í lagi yfir­lýs­ingar um að Land­spít­al­inn sé að þol­mörkum kom­inn, í pistli á Facebook-síðu sinni í gær.

„Á Land­spít­al­anum eru 638 sjúkra­rúm og þar er fólki með ólíka sjúk­dóma sinnt og einnig þeim sem orðið hafa fyrir alvar­legum slysum. Nú liggja 8 manns á spít­al­anum vegna Covid-19 en það svarar til 1,25% þeirra sjúkra­rúma sem spít­al­inn heldur úti. Þrátt fyrir það er eflaust mjög stutt í að land­læknir, for­stjóri spít­al­ans og helstu yfir­læknar lýsi því yfir að stofn­unin sé komin að þol­mörkum og geti ekki meira. Það mun kynda enn frekar undir hræðslu­á­róðr­inum og upp­lýs­inga­óreið­unni sem boðið er upp á til þess að hafa stjórn á almenn­ingi.

Margir beina sjónum sínum að fjöl­miðl­unum í þessu ástandi en þeir mega sín lít­ils. Þeir eru jafn­vel krafðir um að fjar­lægja fréttir sem ekki henta mál­flutn­ingi yfir­valda. Þar er um fréttir að ræða sem eru sannar og réttar og til þess gerðar að upp­lýsa almenn­ing um raun­veru­lega stöðu mála.“

En eng­inn rök­stuðn­ingur né eðli­legar upp­lýs­ingar fylgja hins vegar máli Stefáns um þá full­yrð­ingu að um sé að ræða „fréttir sem eru sannar og réttar og til þess gerðar að upp­lýsa almenn­ing um raun­veru­lega stöðu mála.“

Hvað á mað­ur­inn við?

Í sam­fé­lags­hópi kemur fram maður að nafni Bergur Ísleifs­son og fjallar um „mál“ Stefáns:

„Stefán Einar Stef­áns­son segir í Facebook-færslu að fjöl­miðlar hafi „jafn­vel verið krafðir um að fjar­lægja fréttir sem ekki henta mál­flutn­ingi yfir­valda.“ DV fær það svo stað­fest hjá honum að „Almanna­varnir og Land­spít­ali hafi reynt að fá mbl.is til að fjar­lægja frétt tengda Covid.“

Bergur bætir við:

„Mér finnst þetta nú býsna alvar­legt ef rétt er. Hafa aðrir á öðrum fjöl­miðlum sömu sögu að segja? Sé svo, er þá ekki sjálf­sagt að upp­lýsa almenn­ing um hvaða frétt eða fréttir þessir aðilar, eða yfir­völd, hafa kraf­ist að yrðu fjar­lægðar?“

Gunnar Aron Ólason er ekki lengi til svars og segir að „það hefur lík­lega verið fals­frétt.“

Annar ein­stak­lingur með skemmti­legt nafn brýst fram á rit­völl­inn, sjálfur Jakob Geim­könn­uður:

„Það kæmi mér ekki á óvart ef mbl.is væri far­inn að birta fals­fréttir, en það er samt spurn­ing um hvað er rétt nálgun á svona. Mér fynd­ist eðli­legar ef það hefði verið gefin út yfir­lýs­ing þar sem greint væri frá fals­frétt­inni og hún leið­rétt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina