Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tveir leigubílstjórar neituðu að keyra alvarlega sjónskertan mann í hjólastól heim til sín

Tveir leigubílstjórar neituðu að keyra alvarlega sjónskertan mann í hjólastól heim til sín

„Ég varð fyrir nokkru í dag sem sló mig illi­lega, segir Sigurður Ing­ólfs­son og bætir við:

„Var bara í rólegum „spássitúr“ og var að gleðj­ast yfir lífs­gleð­inni allt í kringum túnið – pott­þétt betri stemm­ing en í hús­inu sem Jón Sig­urð­son fylgist með – þegar ég varð var við rosk­inn mann í hjóla­stól eitt­hvað að vand­ræð­ast á göt­unni.“

Sigurður tók mann­inn tali og „ég spurði hann hvort allt væri í lagi, eins og maður gerir, og hann var þá að leita að leigu­bíl. Ég benti honum á hvernig væri hægt að kom­ast að leigu­bíl­unum í Tjarn­ar­götu – sem mér sýnd­ist allir vera frá sama fyr­ir­tæki. Sem sagt, haf­andi kom­ist að því að hann er alvar­lega sjón­skertur, trill­aði ég með hann yfir Tjarn­ar­braut­ina og að næsta lausa leigu­bíl.“

Þá fyrst blöskr­aði Sigurði.

„Fyrsti bíl­stjór­inn hafði greini­lega meiri áhyggjur af fal­lega bílnum sínum en mann­inum í hjóla­stólnum sem óskaði eftir leigu­bíla­þjón­ustu. Fyrst hélt leigu­bíl­stjór­inn því fram að hjóla­stóll­inn kæm­ist ekki í skottið, sem var della, og síðan tromm­aði hann upp með það að mað­ur­inn væri hland­blautur, sem hann var alls ekki.“

Leigu­bíl­stjór­inn gaf sig ekki varð­andi þá full­yrð­ingu að mað­ur­inn í hjóla­stólnum væri hland­blautur þrátt fyrir að Sigurður og mað­ur­inn í hjóla­stólnum bentu við­kom­andi leigu­bíl­stjóra að svo væri ekki; engir hland­blettir og engin lykt.

Skyldi vera ólög­leitt hér á landi fyrir leigu­bíl­stjóra að neita fötl­uðu fólki um aðstoð eins og víða er í heim­inum, til dæmis í Bret­landi?

„Samt vildi leigu­bíl­stjór­inn ekki keyra full­orð­inn sjón­skertan mann í hjóla­stól sína leið,“ segir Sigurður og heldur áfram:

„Þetta hélt ég ekki að ég myndi upp­lifa nokk­urs staðar. En svo þegar hann var búinn að neita mann­inum um far, þá fór hann að næsta bíl til að vara hann við. Og viti menn, það gekk; allt í einu þurfti hinn leigu­bíl­stjór­inn nefni­lega að fara í útkall! Tveir karld­urtar neit­uðu mann­inum um far þannig að ég beið með honum: En hann var far­inn að spá í að gera eitt­hvað „drastískt“ þegar renndi að okkur afskap­lega indæl kona sem fannst þetta allt hið minnsta mál, svo mér datt í hug að hún væri frá Hreyfli, hún var svo alúð­leg.“

Konan „átti ekki orð þegar ég sagði henni frá fram­komu hinna. Ég gat samt kvatt einn þakk­látan mann og labbað aftur af stað og dást að öðru fólki. Fyrir utan hversu yfir­gengi­lega dóna­legt þetta er – ég skipti aldrei framar við þetta fyr­ir­tæki – þá koma fram í þessu atvik ótrú­lega miklir og inn­grónir for­dómar okkar Íslend­inga almennt – alla­vega þeirra sem kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn af þrælslund einni saman – gagn­vart öldruðum og fötl­uðum.“

Sigurður veltir vöngum yfir þess­ari nei­kvæðu upp­lifun sem hann og mað­ur­inn í hjóla­stólnum lentu í gagn­vart tveimur leigu­bíl­stjórum:

„Þetta er eitt­hvað sem ég hef aldrei skilið, en mér datt í hug ein útskýr­ing sem gæti hugs­an­lega verið rétt: Ég held að það sem liggur til grund­vallar skít­legri fram­komu við aldr­aða, öryrkja og allskyns fatl­aða, sé í raun ótti. Óttinn við að verða gam­all; fatl­aður eða öryrki“ og nefnir að „frá ótt­anum við eitt­hvað er afskap­lega stutt í afneitun. Fólkinu er ýtt til hliðar; það faldið; hent í þá vasa­pen­ingum og síðan er því gleymt. Fyrri bíl­stjór­inn í Lækj­ar­göt­unni, hefur greini­lega verið skelf­ingu lost­inn að þurfa að horfa upp á mögu­leg örlög sín. Best bara að hleypa honum ekki inn og gleyma honum. Þetta er óaf­sak­an­leg hegðun og það ætlar að verða þrautin þyngri að kenna íslenskum karl­mönnum að losa sig við durts­hátt­inn. Foj!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina