Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Monika er með sjálfsofnæmissjúkdóm: „Hárið á mér varð eins og á gamalli barbídúkku“

Monika er með sjálfsofnæmissjúkdóm: „Hárið á mér varð eins og á gamalli barbídúkku“
Konur með sjálfsof­næmi. Mynd: Róbert Reynisson

„Það var rosa­lega mikið að ger­ast þannig að sálin mín átti á þessum tíma kannski ekki mikið pláss til að vor­kenna sjálfri mér og ég var ótrú­lega lítil í mér. Það var rosa­lega stutt í grát og ég var mjög pirruð á þessum tíma,“ segir Monika K. Waleszczynska sem greind­ist fyrir þremur árum með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alopecia sem veldur því að hún missti allt hár.

Hún talar hér meðal ann­ars um áfallið við að missa hárið, að sér hafi fund­ist hún fá stjórn­ina þegar hún lét raka það hár af sem eftir var og hún talar um að hún sé sjálfs­ör­ygg­ari og sterk­ari en áður vegna þess­arar reynslu. Alþjóða­dagur Alopecia er 1. ágúst og er talið að um 2 pró­sent fólks fái sjúk­dóm­inn ein­hvern tím­ann á ævinni.

Monika K. Waleszczynska er með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alopecia og hefur misst öll lík­ams­hár.

Það herr­ans ár.

„Hjá mér byrj­aði þetta í apríl eða maí 2018. Það var brjálað að gera hjá mér á þessum tíma. Ég var í vinnu þar sem ég var með mikla ábyrgð og það var ótrú­lega mikið að ger­ast; ég vann mjög langan vinnu­dag og það voru miklar breyt­ingar á vinnu­staðnum sem voru mér áfall. Svo hafði ég tveimur árum áður misst bæði pabba og bróður minn,“ segir Monika K. Waleszczynska.

Hún tengir það við álag að lít­ill skalla­blettur mynd­að­ist á höfði hennar á þessum tíma.

„Hár­greiðslu­konan mín tók eftir þessu og svo hugs­aði ég ekk­ert meira út í þetta. Ég fór svo aftur til hennar nokkrum mán­uðum síðar og þá fékk hún pínu áfall. Hún var að laga hárið á mér og var blett­ur­inn orð­inn um fjórir sentí­metrar. Ég fór strax á lækna­vakt­ina sama dag og læknir þar sagði að þetta kall­að­ist Alopecia og sagði mér að ég yrði að tala við húð­sjúk­dóma­lækni eða heim­il­is­lækni. Það var mjög löng bið eftir að kom­ast til húð­sjúk­dóma­læknis og fékk ég stuttu síðar tíma hjá heim­il­is­lækn­inum mínum og voru mót­tök­urnar sem ég fékk fárán­legar. Hann sagði að þetta virt­ist vera bletta­skalli og að ég þyrfti hár­kollu í versta falli. Ég vissi ekki hvað bletta­skalli var.

Eins og ein­hver hefði slegið mig.

Þetta var eins og að fá blauta tusku í and­litið. Ég vildi fá aðeins meiri upp­lýs­ingar um þetta eða jafn­vel ein­hverja von eða spjall en það var ekki. Ég er ekki þekkt fyrir að væla mikið þannig að ég skipti um heim­il­is­lækni sem mér fannst vera góð ákvörðun.“

Monika fór svo til húð­sjúk­dóma­læknis nokkrum vikum síðar sem stað­festi það sem lækn­ir­inn á lækna­vakt­inni hafði sagt: Sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­ur­inn Alopecia sem skipt­ist í mis­mun­andi teg­undir en hann getur að sögn Monika valdið bletta­skalla, algeru hár­losi á höfð­inu eða algeru hár­losi á öllum lík­am­anum.

„Hann gaf mér ein­hverja mixt­úru og sagði að fyrst blett­ur­inn væri svona lít­ill þá myndi hárið mögu­lega fara að vaxa og verða í góðu lagi. Ég var þess vegna von­góð. Hárið fór hins vegar því miður að þynn­ast meira og meira.“

Um 70 prósent fóru á þremur vikum

Monika segir að sér hafi liðið eins og hún væri ein í heim­inum þrátt fyrir að vita að um Alopecia væri að ræða og hún búin að fræð­ast um ástand sitt.

„Svo vildi ég ekki segja fólki frá þessu af því að þetta var svo erfitt. Hárið á mér varð allt í einu eins og á gam­alli bar­bí­dúkku. Ég gleymi því ekki þegar ég fór einu sinni í sturtu á þessum tíma en þegar ég setti hend­ina í hárið þá fyllt­ist lóf­inn af hári sem var eins og golf­kúla full af hári. Jesús Kristur. Ég hafði á til­finn­ing­unni að ég hefði ekki stjórn á því sem var að ger­ast og ég man að ég sat á sturtu­botn­inum og grét. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Þetta var orðið þannig að ég svaf ekki á nótt­unni út af því að ég var skít­hrædd af því að kodd­inn var far­inn að vera loð­inn af hári þegar ég vakn­aði á morgn­ana. Ég setti þess vegna teygju í hárið til að reyna að koma í veg fyrir það en þegar ég tók teygj­una úr hár­inu á morgn­ana þá var allt fast í henni og hárið fór í hana þannig að það skipti engu. Þetta var svo fárán­legt tíma­bil.

Það var ekki bara það að hárið væri að fara. Mér fannst eins og það væri verið að brenna húð­ina á þeim stöðum þar sem hárið var að fara. Það var ótrú­lega skrýtin til­finn­ing vegna þess að þá vissi ég að þar færi hárið næst og dag­inn eftir var hárið einmitt farið á þessum stöðum. Ég hætti að greiða mér af því að ég gat ekki einu sinni ímyndað mér að setja greið­una í hárið á mér vegna þess að ég vissi hvað myndi ger­ast. Ég vissi að þá færi allt.“

Monika seg­ist hafa misst um 70 pró­sent hárs­ins á höfð­inu á þremur vikum

„Þetta gerð­ist svo fljótt. Versti tím­inn var sept­em­ber en þá fór hárið svo fljótt. Ég skildi ekki af hverju þetta væri að ger­ast og af hverju lík­am­inn hafn­aði hár­inu eins og ein­hverju slæmu. Ég leit­aði mér and­legrar aðstoðar og fór til heil­ara sem róaði mig. Ég fór þrisvar til hans en allt kom fyrir ekki.“

Það var rosa­lega stutt í grát

Ofan á álag tengt vinnu og svo sorg­inni við frá­fall föður og bróður þá slas­að­ist yngsta dóttir Moniku í fjór­hjólaslysi þetta haust og lá á sjúkra­húsi um tíma. Hún var þá í fullri vinnu og í meist­ara­námi.

„Ég vildi ekki ræða um hár­losið og þegar ég kom heim þá lang­aði mig helst til að gráta.“

Andlegt gjaldþrot

Monika seg­ist hafa verið á ein­hverju rófi á þessum tíma.

„Ég fór á sölu­sýn­ingu og þá var hárið orðið rosa­lega lítið og fór þó áður til nýja heim­il­is­lækn­is­ins míns og sagð­ist þurfa að fá hár­kollu. Ég gæti ekki meira. Og ég grét. Ég var með ekka. Mér leið hrika­lega illa. Þetta er til­finn­ing sem ég get ekki útskýrt. Það var eins og ég væri enda­laust með hrika­legan maga­verk af því að mér leið svo rosa­lega illa. Hvað svo? Hvað myndi ger­ast? Heim­il­is­lækn­ir­inn upp­á­skrif­aði fyrir mig hár­kollu og ég pant­aði tíma hjá hár­kollu­gerð. Konan þar var ynd­is­leg en mér fannst pínu­lítið eins og hún væri að tríta mig eins og ég væri með krabba­mein. Hún sagði að þetta væri allt í lagi og að hárið myndi vaxa aftur. Þá fór ég að gráta. Ég sagði að það myndi ekki vaxa aftur. En þessi kona var ynd­is­leg, ekki mis­skilja mig. Hún hjálp­aði mér að máta hár­kollur og þannig eign­að­ist ég mína fyrstu hár­kollu og fór síðan á sölu­sýn­ing­una sem var haldin á Akureyri.“

Monika not­aði hár­koll­una hins vegar ekki á sölu­sýn­ing­unni vegna þess að hún vildi ekki að fólk tæki eftir því að hún var með hár­kollu.

„Ég hitti konu á sölu­sýn­ing­unni sem var ógeðs­lega töff og leit vel út. Og hún var ekki með hár nema pínu brúsk á hausnum. Ég gekk til hennar, kynnti mig og spurði hvort hún væri með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm. Hún sagði svo vera en að hún gæti ekki talað við mig þarna heldur sagði að við gætum hist síðar sem við gerðum. Ég sagði henni að ég væri búin að grein­ast með Alopecia og hún var fyrsta mann­eskjan sem ég hitti sem var með það sama. Ég sá að það var hægt að vera ógeðs­lega töff en samt ekki með hár.“

Monika segir að hún hafi verið komin í and­legt gjald­þrot þegar hún kom heim af sölu­sýn­ing­unni nokkrum dögum síðar.

„Ég hringdi fljót­lega í hár­greiðslu­kon­una mína og spurði hvort hún væri til í að raka allt hárið af mér. Þetta var á föstu­degi og hún sagð­ist vera í fríi. Ég var hrika­lega miður mín. Ég hringdi í annan heil­ara, sem er vin­kona mín, og fór til hennar og náði hún að róa mig mikið og svaf ég í um 12 klukku­stundir eftir að hafa verið hjá henni.“

Monika fór á vinnu­staða­skemmtun þá um helg­ina og not­aði hár­koll­una í fyrsta skipti og segir hún að það hafi næstum því ekk­ert hár verið eftir.

„Það kom fullt af fólki til mín, snerti hár­koll­una og spurði hvað ég hafði gert við hárið á mér. Mig lang­aði til að gráta. Ég var allan tím­ann með­vituð um að ég væri með hár­kollu og var hrædd um að hún væri skökk eða dytti af mér. Það er svo óraun­veru­legt að vera með hár­kollu; þetta er eins og að vera með hatt. Og mig klæj­aði undan henni þannig að ég var ekki alveg til­búin í þetta.“

Monika var líka með hár­koll­una dag­inn eftir þegar hún hitti hóp sam­nem­enda vegna hóp­verk­efnis.

„Þetta voru bara karlar og mér fannst þeir allir gera sér grein fyrir að ég væri með hár­kollu. Ég sagði þeim eftir nokk­urra tíma vinnu þann dag­inn að ég væri með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm og hár­kollu og þá sagði einn þeirra að hann hafi bara haldið að ég væri með slegið hár þann dag­inn. Þá fatt­aði ég í fyrsta skipti að það væri meiri ímyndun í mér að allir væru búnir að fatta að ég væri með hár­kollu.“

Hárið rakað af

Monika seg­ist hafa á mánu­deg­inum hringt grát­andi í vin­konu sína.

„Þá var ég ennþá á þessu róli. Þetta var hrika­legt. Ég var hálf­vælandi og sagði að ég yrði að raka af mér hárið en ég var búin að segja henni frá ástand­inu sem og nokkrum öðrum vin­konum. Ég sagð­ist vera viss um að vera með hnakka­spik og þá fór ég að hágráta. Ég fór svo heim til hennar og við kláruðum heila rauð­víns­flöksu, spjöll­uðum og hlógum. Þetta var kannski ákveðin leið til að hjálpa mér.

Hár­greiðslu­konan mín bauðst til að loka stof­unni sinni og ég mætti þangað með rauð­víns­flösku. Þetta var bara svona tíma­bil. Ég fékk mér eitt glas og sagði að nú mætti hún raka mig. Og ég á myndir af þessu.

„Hausinn á mér var orð­inn svo­lítið eins og haus­inn á þessum  í Hringa­drótt­ins­sögu; þessi litli, ljóti sem sagði „My precious“. Ég er ekki að grín­ast. Þetta var hrika­legt“

„Það var ákveð­inn léttir þegar hár­greiðslu­konan byrj­aði að raka hárið af mér. Þarna tók ég stjórn­ina og hugs­aði með mér að þetta yrði kannski ekki svo hrika­legt. Ég hálf­grét og hár­greiðslu­konan mín tárað­ist af því að hún var búin að vera hár­greiðslu­konan mín í mörg ár.

Ég hitti svo nokkrar vin­konur mínar heima hjá einni þeirra og við fengum okkur sushi og hvítvín og þar held ég að ég hafi tekið ákvörðun um að ég ætl­aði ekki að ganga með hár­kollu.“

Monika setti svo á Facebook-síðu sína texta um ástand sitt, slökkti á sím­anum og þegar hún kveikti aftur á honum voru komin nokkur hund­ruð skila­boð.

„Þetta voru mjög fal­leg og upp­byggj­andi skila­boð en þetta var samt ótrú­lega erfitt. Virki­lega erfitt.“

Hún segir að það hafi verið skrýtið að leggj­ast á kodd­ann fyrstu kvöldin eftir að hárið var rakað af vegna þess að henni fannst hann vera svo kaldur. „Núna finn ég það ekki lengur en húðin var svo ótrú­lega við­kvæm fyrst á eftir að ég fékk kulda­hroll þegar ég lagði höf­uðið á kodd­ann. Það var ótrú­lega skrýtin til­finn­ing.“

Monika hélt að nú væri þetta búið hvað hár­los varðar en nei, svo var ekki.

„Ég missti auga­brún­irnar þremur dögum síðar og svo missti ég augn­hárin. Og í kjöl­farið missti ég öll lík­ams­hár.

Það er svo erfitt að vera ekki með augn­hár og auga­brýr. Ég ákvað að finna ein­hverjar lausnir á þessu og lét húð­flúra á mig auga­brýr og ég nota eyeliner til að fela það að ég sé ekki með augn­hár.

Núna, þremur árum síðar, sakna ég mest að vera ekki með augn­hár og nasa­hár. Það er hrika­legt að vera ekki með nasa­hár. Ég fer svo­lítið á fjöll og á skíði og þá lekur allt úr nef­inu á mér og frýs. Það er eng­inn stopp­ari þarna. Og ef ég fer út að ganga þar sem eru flugur þá eru þær komnar næstum því alla leið upp í heila á mér af því að það er eng­inn stopp­ari heldur. Það er það sama með augun. Þannig að þessi hár hafa til­gang. Þarna lærði ég að hárin hafa til­gang. Þau verja okkur.“

Myndi vilja vera með augnhár

Monika ákvað að ganga ekki með hár­kollu og hún hefur staðið við það.

„Ég man þegar ég fór með vinum mínum í fyrsta skipti út að borða eftir að ég lét raka af mér hárið. Mér fannst vera erfitt að taka húf­una af mér á veit­inga­staðnum og vera sköll­ótt. En svo lærist þetta. Það sem pirrar mig hins vegar er allt fólkið sem ég þekki ekki sem kemur til mín og seg­ist vita í gegnum hvað ég er að ganga. Þetta hefur gerst bæði á Íslandi og erlendis.

„Það er erfitt að segja við fólk að ég sé ekki með krabba­mein heldur „bara“ með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm. Æ, það er öll þessi vor­kunn. Fólk horfir á mig svo­lítið öðru­vísi. Ég hef tvisvar fengið komment um að við værum örugg­lega sam­kyn­hneigðar þegar ég hef farið út að skemmta mér með vin­konum mínum. Það er ekki vanda­mál en mér finnst fólk dæma mig svo fljótt og heldur að ég til­heyri ein­hverju út af því hvernig ég lít út. Þetta er svo vont.“

Monika er jákvæð þrátt fyrir allt og hún virð­ist hafa húmor fyrir ástand­inu.

„Ég hef ekki haft „bad hair day“ í nokkur ár. Allavega þrjú ár. Mér finnst ég orðin allt í lagi. Ég er farin að venj­ast því að vera svona. Ég mun jafn­vel venj­ast því að vera svona „for ever“. Það er bara svo­leiðis. Svona vænt­an­lega verður þetta. Ég fékk nokkur stykki á höf­uðið í fyrra­sumar en þetta fór jafn­óðum. En jú, ég myndi gjarnan vilja fá aftur augn­hár. Það væri frá­bært.“

Hún segir að þetta sé kannski öðruvísi líf

„Ég er stolt af mér að hafa tekið þá ákvörðun að ganga ekki með hár­kollu. Ég er ekki að segja að það sé verra að vera með hár­kollu; alls ekki. En það hentar mér ekki að vera að fela mig undir ein­hverju sem ég er ekki.“

Mjög sterk

Monika missti vinn­una í tengslum við heims­far­ald­ur­inn og segir að það hafi verið svo­lítið erfitt að vera útlensk, en hún er pólsk og hefur búið á Íslandi frá árinu 1995, vera með erlent nafn og sköll­ótt.

„Ég sendi ekki mynd af mér með atvinnu­um­sóknum. Aldrei. Ég hélt að fólk myndi halda að ég væri með krabba­mein og myndi því ekki ráða mig. Þegar ég fór í atvinnu­við­töl þá sagði ég hvers vegna ég væri sköll­ótt. Það gerði mig sterk­ari að vera að sækja um vinnu, sem er nægi­lega stressandi, og þurfa líka að sann­færa fólk um að ég gæti verið góður starfs­maður þrátt fyrir að vera ekki með hár. Viðbrögð fólks varð­andi þetta í atvinnu­við­tölum voru mis­jöfn en oft­ast tók fólk þessu vel.“

Monika not­aði orðið „hrika­legt“ yfir líðan sína fyrst eftir að hún greind­ist með Alopecia.

„Þetta tekur auð­vitað á. Þetta er rosa­leg æfing fyrir sál­ina. Ég var upp og niður. Þetta var til­finn­inga­legt gjald­þrot eins og ég sagði; mig lang­aði ekki einu sinni til að vakna né fara út.

„Mig lang­aði ekki til að gera neitt og mér fannst ég alls ekki kven­leg svona. Í dag finnst mér ég vera orðin mjög sterk. Það koma þó ennþá dagar þegar mér líður illa; ég ligg þá undir sæng­inni og mig langar ekki til að fara á fætur af því að ég þarf þá að setja „make up“ á mig svo ég líti út fyrir að vera með augn­hár.

Ég get orðið gert grín að þessu og mað­ur­inn minn segir að hann sé ánægður með þetta og myndi ekki vilja hafa mig aftur með hár.“

Jú, Monika segir að hún sé sterk­ari and­lega en áður en hún missti hárið.

„Eins og ég sagði þá tók ég stjórn­ina þegar ég lét raka af mér hárið og þá breytt­ist eitt­hvað. Ég ætl­aði bara að vera svona. Ég tók líka ákvörðun um að breyta aðeins for­gangs­röð­un­inni, setja sjálfa sig í fyrsta sæti og njóta meira án þess að vera með sam­visku­bit yfir þessu öllu sem má bíða. Ég læt líka ekki ein­hverjar skrýtnar athuga­semdir frá fólki fara í taug­arnar á mér. Því það skiptir jú máli að hafa húmor fyrir sjálfum sér og hafa gaman þegar fólk glápir á mann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una