Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Eftir að hafa stungið mann móður sinnar 20 sinnum beindi Guðmundur hnífnum að henni: „Ég drep þig“

Eftir að hafa stungið mann móður sinnar 20 sinnum beindi Guðmundur hnífnum að henni: „Ég drep þig“

Dóms­skjöl frá Spáni sem frétta­mið­ill­inn dv.is fékk nýverið aðgang að varpa ljósi á morðið sem Guð­mundur Freyr Magn­ús­son er sak­aður um.

Í skjöl­unum er sagt að Guð­mundur hafi myrt sam­býl­is­mann móður sinnar að yfir­lögðu ráði í jan­úar árið 2020.

Guð­mundur, sem varð fer­tugur í fyrra, hefur ítrekað kom­ist í kast við lögin á Íslandi; hlaut meðal ann­ars þriggja og hálfs árs dóm fyrir íkveikju þar sem kona og börn voru í mik­illi hættu.

Lög­reglan á Spáni hefur varist allra frétta af mál­inu, en áður­nefnd dóms­skjöl sem dv.is fékk í hend­urnar frá dóm­stólum á Spáni varpa nýju ljósi á málið.

Í skjöl­unum kemur fram að Guð­mundur hafi klifrað yfir 2,5 metra háan vegg til að kom­ast að húsi móður sinnar og hins myrta.

Guð­mundur mun þar hafa klætt sig í hanska í þeim til­gangi að hlífa höndum sínum; tekið svo hníf sem var á borði í garði móður hans.

Í gögn­unum kemur fram að Guð­mundur hafi tekið hníf­inn í þeim til­gangi að myrða sam­býl­is­manns móður sinnar.

Jafn­framt kemur fram að móðir Guð­mundar og sam­býl­is­maður hennar hafi heyrt í Guðmundi þegar hann gekk um fyrir utan íbúð þeirra. Sam­býl­is­mað­ur­inn fór út við svala­dyr íbúð­ar­innar til að athuga hvað væri í gangi; á hann að hafa lítið séð vegna myrk­urs.

Fram kemur á dv.is að „á þeirri stundu tók ákærði gaskút sem var í garð­inum og sló honum utan í gler­hurð með þeim afleið­ingum að glerið brotn­aði og kút­ur­inn slóst í [sam­býl­is­mann móður Guð­mundar]. Mun ákærði þá hafa farið inn í húsið og stungið mann­inn ítrekað, eða í allt að 21 skipti, með hnífnum. Þegar hinn látni féll í jörð­ina hélt Guð­mundur áfram að stinga hann.“

Þegar móðir Guð­mundar reyndi að fá hann til að hætta árásinni beindi hann hnífnum að eigin móður og sagði: „Ég drep þig,“ en þetta er haft eftir Guðmundi úr gögnum máls­ins.

Móðir Guð­mundar flúði í átt að úti­dyrum íbúð­ar­innar. Guðmundi tókst þó að hindra flótta móður sinnar og brut­ust þá út átök milli þeirra þar sem hún hlaut mikla áverka af; henni tókst engu að síður að kom­ast út úr íbúð­inni og kalla á hjálp.

Rétt áður fyrstu lög­reglu­þjón­arnir mættu á svæðið – sam­kvæmt gögn­unum – mun Guð­mundur hafa reynt að flýja á bíl og hafa falið hníf sinn undir gólf­mottu bíls­ins; reynt án árang­urs að brjót­ast út af lok­uðu bíla­stæð­inu með skrúfjárni.

Frá byrjun rann­sókn­ar­innar var haft eftir, í íslenskum fjöl­miðlum, spænskri lög­reglu að bíll­inn hafi verið í eigu fórn­ar­lambs­ins og að Guð­mundur hafi áður stolið bíllyklunum og und­ir­búið flótt­ann.

Spænsku lög­reglu­þjón­arnir fóru í það að veita sam­býl­is­mann­inum hjálp og er Guð­mundur sagður hafa nýtt þær aðstæður og flúið hlaup­andi og klifrað yfir vegg­inn sem umlykur húsið.

Guð­mundur var hand­tek­inn eftir að lög­reglu­þjónar sáu hann hlaupa í myrkr­inu rétt hjá heim­ili móður hans og sam­býl­is­manns hennar.

Fram kemur í gögnum máls­ins að sam­býl­is­mað­ur­inn hafi lát­ist stuttu eftir að lög­reglu­þjón­arnir komu að honum hel­særðum. Maðurinn var sex­tíu og fimm ára gam­all að og átti tvö upp­kom­inn börn og fimm barna­börn.

Guð­mundur hefur verið í gæslu­varð­haldi síðan hann var hand­tek­inn tólfta jan­úar í fyrra og er ákærður fyrir morð að yfir­lögðu ráði; inn­brot og fyrir að hafa hótað móður sinni líf­láti.

Sak­sókn­arar á Spáni krefj­ast þess að Guð­mundur verði dæmdur í 31 árs fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina