Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sósíalistar vilja lækka laun þingmanna og taka bílstjóra af ráðherrum: „Þjónar, ekki herrar“

Sósíalistar vilja lækka laun þingmanna og taka bílstjóra af ráðherrum: „Þjónar, ekki herrar“
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

„Á und­an­förnum árum hafa stjórn­málin færst frá því sem kalla mætti alþýðu­stjórn­mál yfir í það sem er í eðli sínu elítu­stjórn­mál. Stjórn­mála­flokk­arnir eru ekki lengur virk almanna­sam­tök heldur eru þeir að mestu reknir fyrir styrki frá ríki og sveit­ar­fé­lögum,“ segir Gunnar Smári Egilsson for­maður Sós­í­alista­flokks Íslands og bætir við:

„Þróunin hefur verið sú að for­ysta flokk­anna hefur orðið óháð gras­rót­inni. Nýrri flokkar eru sumir hverjir lítið annað en skel utan um for­yst­una,“ segir for­mað­ur­inn sem nefnir að

„í stað þess að sækja stefnu, afl og umboð til virkrar þátt­töku almennra félaga kaupir for­ystan ráð­gjöf til að styrkja sig á vett­vangi elítu­stjórn­mála – sem fyrst og fremst eru fréttir og umfjöllun fjöl­miðla.“

Og nið­ur­staðan af áður­nefndum orðum Gunnars Smára eru „svið­sett stjórn­mál sem eru sam­bands­laus við líf almenn­ings; stjórn­mál sem ná ekki að fjalla um það órétt­læti sem stór hluti lands­manna býr við,“ og tekur skýrt fram að „þessu vill Sós­í­alista­flokk­ur­inn breyta; Sós­í­alista­flokk­ur­inn er gras­rót­ar­sam­tök.“

Gunnar Smári kemur inn á skipu­lag flokks­ins sem „er þannig að fámennur hópur for­ystu­fólks getur ekki beygt flokk­inn undir vilja sinn. Grasrót flokks­ins gefur ekki frá sér mótun stefn­unnar eða nið­ur­röðun á fram­boðs­lista heldur er hvort tveggja unnið í slembivöldum hópum almenns flokks­fólks. Skipulag flokks­ins er ekki þrí­hyrndur valdastrúktur, eins og ann­arra flokka, heldur hefur flokk­ur­inn margar miðjur og ólíkar stjórnir, sem allar eru jafn settar og sækja jafnt umboð til Sós­í­alista­þings. Allir félagar hafa rétt á setu á Sós­í­alista­þingi og innan flokks­ins gilda reglur um hámarks­setu félaga í stjórnum. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur því varnir gegn klíku­væð­ingu inn­byggðar í skipu­lag sitt.“

Skipulag Sós­í­alista­flokks­ins er byggt á reynslu ann­arra stjórn­mála­flokka.

„Ef flokkar hafa ekki inn­byggðar varnir gegn klíku­myndun verða þeir klíku­væð­ing­unni að bráð. Það sýnir sagan. Það á ekki aðeins við um stjórn­mála­flokka heldur öll almanna­sam­tök. Þau sem kom­ast til valda nota völdin til að auka enn við eigin völd og til að verja þau. Þetta hefur verið kallað járn­lög­mál klíku­væð­ing­ar­innar.“

Gunnar Smári segir að „Sós­í­alista­flokk­ur­inn er ungur flokkur, enn á leik­skóla­aldri. Flokks­fólk veit vel að skipu­lag flokks­ins og upp­bygg­ing er ekki full­mótuð. En þau eru með­vituð um að ef flokk­ur­inn á að gagn­ast alþýð­unni þarf hann að ná að laða til sín sem flesta félaga, virkja þá til starfa og verja flokk­inn fyrir klíku­myndun,“ og bætir við:

„Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur ekki mótað þá umgjörð sem elítu­flokk­arnir hafa byggt í kringum sjálfan sig. Kjörnir full­trúar flokks­ins ganga inn í ofur­launa­kerfi sem elítu­stjórn­mála­fólk hefur smíðað kringum sjálft sig, flokk­ur­inn fær úthlutað sömu aðstöðu og elítu­flokk­arnir hafa búið sér og hann fær sömu styrki og elítu­flokk­arnir hafa skammtað sér.“

Og þá mun Sós­í­alista­flokk­ur­inn fara „að dæmi Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur borg­ar­full­trúa og gefa inn í styrkt­ar­sjóð Vor­stjörn­unnar hluta af launum sínum svo það sem eftir situr sé á við miðl­ungs milli­stétt­ar­laun, ígildi launa yfir­kenn­ara eða iðn­að­ar­manns.“

Gunnar Smári færir í tal að „alþingi greiðir aðstoð­ar­fólki þing­flokka laun. Sós­í­alistar líta svo á að þing­menn flokks­ins verði hluti breiðrar alþýðu­hreyf­ingar og að starf þeirra verði betra eftir því sem hreyf­ingin verður sterk­ari. Aðstoð­ar­fólkið mun því starfa með hreyf­ing­unni allri, ekki aðeins þing­flokknum. Upp­bygg­ing hreyf­ing­ar­innar mun efla þing­flokk­inn. Þing­flokkur án róta í breiðri alþýðu­fylk­ingu er einskis virði.“

Bætir við:

„Ríkið styrkir stjórn­mála­flokka um háar upp­hæðir. Sós­í­alistar munu nota þetta fé til að efla hags­muna­bar­áttu hópa sem standa veikt fjár­hags­lega, byggja upp fjöl­miðlun í sam­starfi við Alþýðu­fé­lagið/Sam­stöð­ina, sem er vísir af rót­tækum fjöl­miðli, og ýta með öðrum hætti undir bar­áttu alþýð­unnar gegn órétt­læti og kúgun kap­ít­al­ism­ans.“

Gunnar Smári segir einnig að Sós­í­alistar muni flytja þá fjár­muni og aðstöðu sem „elítu­flokk­arnir“ hafi skammtað sjálfum sér út í hreyf­ingu alþýð­unnar, „því að slíkt þjónar best mark­miðum Sós­í­alista­flokks­ins. Flokk­ur­inn mun ekki gera neitt gagn nema sem hluti slíkrar hreyf­ingar. Flokkur án djúpra og virkra teng­inga út í hreyf­ingu alþýðu­fólks er einskis virði og í raun hindrun í vegi bar­átt­unnar. Það á við um elítu­flokk­anna og þannig flokkur vill Sós­í­alista­flokk­ur­inn ekki vera.“

Gunnar Smári segir að breyta verði launa­málum þing­manna og ann­arra kjör­inna þjóna almenn­ings svo þau verði á við ágæt milli­stétt­ar­laun, og nefnir að Þannig hafi þessi laun verið fyrir fáeinum ára­tugum síðan:

„Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill lækka laun þing­manna. Á nýfrjáls­hyggju­ár­unum hækk­uðu laun þing­manna mikið og var það rétt­lætt með því að hærri laun myndu lokka betra fólk á þing. Sú hefur ekki orðið raunin. Fólk sem sæk­ist í stjórn­mál vegna laun­anna á ekk­ert erindi inn á lýð­ræð­is­vett­vang­inn. Þingmenn ættu að vera með sam­bæri­leg laun og yfir­kenn­arar og ráð­herrar við­líka og skóla­stjórar.“

Þá segir Gunnar Smári að „leggja þarf af það sem eftir lifir af upp­hafn­ingu stjórn­mál­anna sem rekja má til kon­ungs­ríkja mið­alda. Stjórn­mála­fólk ætti ekki að kalla hvort annað hátt­virt og enn síður hæst­virt. Það er hreint hlægi­legt á þingi sem nýtur sára­lít­ils traust meðal lands­manna. Leggja á af ráð­herra­bíla, einka­bíl­stjóra og allt slíkt tildur og snobb; leggja á af styrki til stjórn­mála­flokka. Þeir bæta ekki lýð­ræðið heldur veikja það; auka völd for­ystu flokk­anna á kostnað gras­rótar. Til að efla lýð­ræði á ríkið að styrkja og styðja við hags­muna­bar­áttu þeirra hópa sem standa verst og hafa minnst fjár­ráð. Þar liggur vandi lýð­ræð­is­ins. Hin fátæk­ari hafa of lítil völd. Og for­ysta stjórn­mála­flokka til­heyrir ekki hinum fátæku og valda­lausu.“

Hann nefnir einnig að „til að tryggja jafn­ræði á lýð­ræð­is­vett­vangi á að banna fégjafir fyr­ir­tækja og hags­muna­sam­taka fjár­magns- og fyr­ir­tækja­eig­enda til stjórn­mála­flokka. Lýðræðið er vett­vangur almenn­ings – tæki hans til að vega upp á móti ógn­ar­valdi auðs­ins. Til að draga úr áhrifum fjár­muna á kosn­inga­bar­áttu ætti að banna kosn­inga­á­róður í aug­lýs­ingum ljós­vakans,“ enda á auður „ekk­ert erindi í stjórn­mál; það eru næg völd sem fylgja auðnum og hann á ekki að snerta stjórn­mál almenn­ings.“

Í lok sam­tals­ins segir Gunnar Smári þetta:

Mynd / Haraldur Guð­jóns­son.

„Sós­í­alistar munu lækka laun kjör­inna full­trúa við fyrsta tæki­færi og leggja af ofur­styrki elítu­flokk­anna við fyrsta tæki­færi,“ og þá munu „Sós­í­alistar leggja af ráð­herra­bíla –  einka­bíl­stjóra og allt slíkt snobb og tildur. Stjórn­mála­fólk eru þjónar en ekki herrar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina