Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Stöðugur viðskiptaflótti frá þéttingarsvæðum Reykjavíkur er þvert á það sem borgaryfirvöld boða.“

„Stöðugur viðskiptaflótti frá þéttingarsvæðum Reykjavíkur er þvert á það sem borgaryfirvöld boða.“

„Eftir ferða­lög mörg ferða­lög í gegnum tíð­ina hef ég líkt og margir heill­ast mjög af fjöl­breyttum sam­göngu­háttum og víða þar sem ég hef komið er braut­ar­stöðin oft­ast nær mið­punktur eða nærri mið­punkti borg­anna,“ segir Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur sem einnig hefur lokið B.A. prófi í lög­fræði frá H.R.

Hann veltir fyrir sér sam­göngu­mið­stöðum víða um heim og nefnir að þær „eru gjarnan alhliða sam­göngu­mið­stöðvar annað er hér á Íslandi.“

Og segir að „þaðan er hægt að fá sér far með áætl­un­ar­bíl – spor­vagni – stræt­is­vagni og leigu­bif­reið; og bíla­leigur eru jafnan með afgreiðslur á braut­ar­stöðvum eða í næsta nágrenni þeirra.“

Björn segir einnig að „braut­ar­stöðv­arnar eru jafnan vel tengdar við flug­velli, en allt er þetta kunn­ara en frá þurfi að segja, en mér var hugsað til þess á ferða­lagi um norð­an­verða Evrópu í sumar hversu mjög skortir sam­göngu­mið­stöð í höf­uð­borg Íslands.“

Sagn­fræð­ing­ur­inn Björn segir að „Reykja­vík var í ýmsum skiln­ingi meiri „borg“ fyrir 60 eða 70 árum. Þá var aðal­skipti­stöð stræt­is­vagna á Lækj­ar­torgi og rétt við torgið — á Kalkofnsvegi — var Bif­reiða­stöð Íslands stað­sett sem og hóp­ferða­bíla­af­greiðsla. Leigu­bíla­stöðv­arnar voru síðan flestar stað­settar þar allt umhverfis og þetta var mið­punktur borg­ar­innar. Síðan þá hefur byggðin vita­skuld þan­ist út, verslun og þjón­usta dreifst vítt og breitt og engin er sam­göngu­mið­stöðin lengur.“

Hann færir í tal að lengi hafi verið rætt um upp­bygg­ingu nýrrar alhliða sam­göngu­mið­stöðvar í Vatns­mýri og „um skeið var gert ráð fyrir henni norðan Loft­leiða­hót­els­ins og hún myndi þá jafn­framt þjóna því hlut­verki að vera flug­stöð – sem væri óneit­an­lega kostur á meðan flug­völlur er í Vatns­mýr­inni. Nú er gert ráð fyrir sam­göngu­mið­stöð þar sem BSÍ stendur, sem yrði þá umferð­ar­mið­stöð fyrir áætl­un­ar­ferðir milli lands­hluta; mið­stöð stræt­is­vagna og nýs hrað­vagna­kerfis sem kallað hefur verið borg­ar­lína. Ekkert bólar þó á fram­kvæmdum þar þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit.“

Björn veltir því fyrir sér „hvort ekki væri ástæða til að ganga lengra og dusta rykið af fyrri hug­myndum um alls­herj­ar­sam­göngu­mið­stöð norðan Hótel Loft­leiða sem yrði allt í senn, flug­stöð, mið­stöð áætl­un­ar­ferða út um land, hóp­ferða­bíla­af­greiðsla, afgreiðsla leigu­bif­reiða, þjón­usta bíla­leiga, og þannig mætti áfram telja. Miðstöð af þessu tagi væri þá nýr mið­punktur Reykja­vík­ur­borgar, og yrði verð­ugt verk­efni arki­tekta og skipu­lags­fræð­inga að tengja hana saman við mið­bæ­inn og stóra vinnu­staði allt í kring. Þar mætti þá jafn­framt gera ráð fyrir stóru bíla­stæða­húsi.“

„Þetta leiðir aftur hug­ann að einu stærsta fyr­ir­tæki lands­ins – Icelandair – sem er með höf­uð­stöðvar sínar stað­settar rétt sunnan við þar sem gert var ráð fyrir sam­göngu­mið­stöð. Stjórn­endur félags­ins kynntu fyrir skömmu að þeir hygg­ist færa skrif­stof­urnar til Hafn­ar­fjarðar og nýlega var greint frá því að einn stærsti fram­halds­skóli lands­ins, Tækni­skól­inn, væri líka á förum þangað suður eftir og þá yfir­gaf nýlega Íslands­banki borg­ina fyrir ekki svo löngu.“

Björn segir að „nefna mætti ótal fleiri dæmi um flótta stórra vinnu­staða úr höf­uð­borg­inni og

þá hafa stórar rík­is­stofn­anir sem almenn­ingur sækir þjón­ustu til, líkt og Trygg­inga­stofnun og sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verið fluttar langt frá miðbæ Reykja­víkur; eru nú stað­settar þannig að fólki er ill­mögu­legt að sækja þangað með almenn­ings­sam­göngum. Þetta ger­ist allt á sama tíma og borg­ar­yf­ir­völd ræða um mik­il­vægi þess að „þétta byggð“ og stytta þann tíma sem fólk tekur að kom­ast til og frá vinnu.“

Og nefnir orð og efndir í því sam­hengi.

Sumir sam­borga okkar leggja meira á sig en aðrir við að byggja upp atvinnu­rekstur og efla fag­urt mann­líf. Vinir mínir, hjónin Ófeigur Björns­son gull­smíða­meist­ari og Hildur Bolla­dóttir kjóla­meist­ari, eru sann­ar­lega þar á meðal. Þau keyptu gam­alt 19. aldar timb­ur­hús við neðan verðan Skóla­vörðu­stíg fyrir rúmum ald­ar­fjórð­ungi og gerðu upp með mynd­ar­legum hætti. Þar hafa þau búið síðan og stundað sína iðnir og verslað með eigin varn­ing. Til að styðja við listir stofn­uðu þau gall­eríi í húsi sínu og að auki hafa þau komið á lagg­irnar fjöl­sóttum götu­há­tíðum í sam­starfi við kaup­menn á svæð­inu. Allt er þetta til mik­illar fyr­ir­myndar og öðrum til eft­ir­breytni.“

Björn nefnir þetta „sóma­fólk hér í þessu sam­bandi vegna þess að þegar þau fluttu á Skóla­vörðu­stíg­inn þurftu þau ekki að eiga bíl; öll þjón­usta var í göngu­færi. Síðan þá hefur sífellt sigið á ógæfu­hlið­ina og nú er meira að segja póst­húsið farið úr mið­bænum,“ og færir í tal að „vinstri­flokk­arnir hafa verið við völd í Reykja­vík­ur­borg meira og minna frá árinu 1994 og allt frá þeim tíma talað mjög fyrir því að sporna við notkun einka­bíls­ins og gera fólki kleift að sækja þjón­ustu í sínu nærum­hverfi fót­gang­andi. Ég hygg að flestir séu sam­mála um að þetta séu göfug mark­mið.“

En „fram­kvæmdin hefur samt verið allt önnur og þannig var allt þar til nýlega nálega allri meiri­háttar upp­bygg­ingu versl­un­ar­hús­næðis nærri mið­bænum beint út á Granda, þar sem búinn var til nýr bíla­mið­bær. Og eins og áður sagði er stöð­ugur við­skiptaflótti frá „þétt­ing­ar­svæðum“ Reykja­víkur, þvert á það sem borg­ar­yf­ir­völd boða.“

Björn segir að sífelld meiri dreif­ing byggð­ar­innar og atvinnu­svæða hafi í för með sér að reisa þarf mun umfangs­meiri umferð­ar­mann­virki en ella.

„Nærri mið­bænum og Vatns­mýr­inni eru nokkrir af stærstu vinnu­stöðum lands­ins, háskól­arnir, Land­spít­al­inn og Stjórn­ar­ráðið og nær væri að stefna að upp­bygg­ingu á þessu svæði frekar en dreifa stórum vinnu­stöðum vítt og breytt um höf­uð­borg­ar­svæðið. Í þéttu borg­ar­um­hverfi verður til eft­ir­sókn­ar­vert mann­líf og ákveðin „dýnamík“ sem Reykja­vík skortir á ýmsan hátt. Alhliða sam­göngu­mið­stöð alls lands­ins yrði veiga­mik­ill þáttur í upp­bygg­ingu mið­bæj­ar­ins.“

Og bætir við:

„Um leið væri ástæða til að taka lög um fólks­flutn­inga á landi til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar. Lands­hluta­sam­tök sveit­ar­fé­laga hafa nú haft ein­okun á rekstri áætl­un­ar­bíla í um ára­tug og því hefur fylgt gríð­ar­leg sóun og tap­rekstur, sam­hliða sífelldri fækkun far­þega. Með því að gera rekstur áætl­un­ar­bif­reiða frjáls­ari mætti stór­auka almenn­ings­sam­göngur um landið. Út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum færi líka mun betur á að beina erlendum ferða­mönnum í áætl­un­ar­ferðir í stað þess að þeir leigi sér bíla­leigu­bíl.“

Og „ein alls­herjar sam­göngu­mið­stöð, þar sem allir rekstr­ar­að­ilar sætu við sama borð, er lyk­il­þáttur í að vel tak­ist til í þessu efni og Reykja­vík geti orðið borg meðal borga með öfl­ugum mið­punkti almenn­ings­sam­gangna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina