Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gallagripur í hamingjuleit

Gallagripur í hamingjuleit
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Þegar ég stóð í skiln­aði í fyrsta skipti átti ég samúð vina og ætt­ingja. Fólk kom gjarnan til mín og sagði mér hversu leitt það væri vegna þess að hjóna­bandið gekk ekki upp og var óspart á ráð­legg­ingar. Þegar ég skildi við eig­in­mann númer tvö fékk ég allt öðru­vísi við­brögð og ég varð vör við gíf­ur­lega for­dóma. Vinir og ætt­ingjar veltu því fyrir sér hvað væri að mér og af hverju í ósköp­unum ég gæti ekki hald­ist í hjóna­bandi. Skila­boðin sem ég fékk voru þau að ég hlyti að vera hinn mesti galla­gripur.

„Ég fékk meðal ann­ars að heyra að við hefðum verið of ung þegar við hitt­umst, of ólík og fólk gekk svo langt að spyrja mig út í hvernig kyn­lífi okkar hefði verið háttað og hvort ég hefði sinnt honum nægi­lega vel! Þeir voru fáir sem sáu eitt­hvað athuga­vert við leið­ina sem hann valdi, að láta sig hverfa á brott.“

Ég var tví­tug þegar ég hitti fyrsta eig­in­mann minn. Við vorum bæði í námi og unnum sam­hliða því, keyptum okkur litla íbúð og ég hélt að ég væri búin að höndla ham­ingj­una fyrir lífs­tíð. Við giftum okkur eftir eins árs sam­band og við áttum heim­inn. Eftir þriggja ára hjóna­band fann ég lít­inn miða á eld­hús­borð­inu einn föstu­dags­eft­ir­mið­dag­inn. Á honum stóð að mað­ur­inn væri far­inn frá mér og vildi gjarnan sækja dótið sitt nokkrum dögum síðar. Hann not­aði helg­ina til að skreppa til útlanda með annarri konu og flutti svo inn til hennar á mánu­deg­inum. Ég fékk hálf­gert tauga­á­fall enda stóð ég í þeirri trú að allt væri í góðu lagi á milli okkar. Ég fékk aldrei neinar útskýr­ingar enda óskaði ég þeirra ekki frá honum. Ég átti nóg með að púsla sál­ar­tetr­inu í mér saman því fátt er meira and­lega nið­ur­brjót­andi en að standa í skiln­aði. Að sjálf­sögðu var dóms­stóll göt­unnar (vinir og ætt­ingjar) búinn að greina ástæður skiln­að­ar­ins niður í rót. Ég fékk meðal ann­ars að heyra að við hefðum verið of ung þegar við hitt­umst, of ólík og fólk gekk svo langt að spyrja mig út í hvernig kyn­lífi okkar hefði verið háttað og hvort ég hefði sinnt honum nægi­lega vel! Þeir voru fáir sem sáu eitt­hvað athuga­vert við leið­ina sem hann valdi, að láta sig hverfa á brott. Eftir þetta hef ég veitt því athygli að í lang­flestum til­fellum þyki fólki það vera sök kon­unnar ef hjóna­bandið gengur ekki upp. Þær hafa ekki gert þetta og hitt nægi­lega vel að ógleymdum enda­lausum athuga­semdum um útlit þeirra. Hjóna­bands­raunum mínum var hvergi nærri lokið á þessum tíma­punkti þótt ég héldi að ég væri búin með minn skammt af höfnun.

Hið fullkomna hjónaband!

Þremur árum síðar hitti ég Ólaf. Þar sem ég var þakin örum á sál­inni eftir fyrri reynslu, fór ég mér hægt og taldi að ég hefði haft alla neyð­ar­hemla í lagi. Eftir tveggja ára sam­band fór ég að geta hugsað mér að deila hluta af líf­inu með þessum ynd­is­lega manni. Þetta var fyrsta alvöru­sam­bandið hans og því erfitt fyrir hann að gera sér í hug­ar­lund af hverju ég var svona hvekkt og vildi fara mér hægt. Hann kraup á kné og bað mín og vænt­an­lega brúð­urin sveif um á sælu­skýi, þess full­viss að núna myndi ham­ingjan elta hana hvert fót­spor. Ólafur starf­aði í aug­lýs­inga­iðn­aði og ég kynnt­ist nýjum heimi í gegnum hann þar sem ég er kenn­ari. Ég hitti margt fólk og kynnt­ist mörgum þekktum and­litum. Veislur og kok­teil­boð urðu fljót­lega hluti af lífs­stíl okkar og ég lagði mig svo sann­ar­lega fram um að aðlag­ast breyttum aðstæðum. Eftir tveggja ára hjóna­band þurfti Ólafur að sinna verk­efni erlendis í tæpt ár og ég ákvað að drífa mig með honum. Við höfðum lengi rætt um barn­eignir en Ólafur vildi alltaf bíða aðeins lengur, hann ótt­að­ist skuld­bind­ing­una. Á meðan við vorum úti varð ég ófrísk án þess að hafa planað það. Ég var alsæl þar sem ég þráði fátt meira en að eign­ast barn en því miður gladd­ist Ólafur ekki á sama hátt. Í hans huga voru börn fjötrar. Fyrstu mán­uðir með­göng­unnar voru hræði­legir, ég kastaði stans­laust upp og end­aði á sjúkra­húsi í útlendri borg þar sem ég þekkti fáa. Ólafur gaf það skýrt til kynna hversu lítið þetta barn, og með­gangan, kæmi honum við og sýndi mér litla vænt­um­þykju. Ég var komin sex mán­uði á leið þegar ég flaug heim en hann ætl­aði að ljúka verk­efn­inu og koma heim fyrir fæð­ing­una enda aðeins far­inn að mild­ast í afstöðu sinni á þessum tíma. Hann kom heim þremur dögum áður en Sveinn litli fædd­ist. Um leið og hann fékk son sinn í fangið iðr­að­ist hann orða sinna og hegð­unar gagn­vart barn­inu sem nú væri fætt og Sveinn var sól­ar­geisl­inn hans um tíma.

Stríð án orða

Hjóna­band okkar var gott í nokkra mán­uði á eftir. Ólafur gat varla séð af syni sínum og var hættur að stunda veislu­höldin í kringum vinn­una, hann vildi bara vera heima hjá okkur. Ég lagði mig fram um að vera þessi fyr­ir­mynd­ar­hús­móðir og það eina sem Ólafur þurfti að gera var að mæta heim í mat. Ég gerði engar kröfur til hans, hvorki varð­andi heim­il­is­störf né annað. Ég sá um að panta borð á veit­inga­húsi eða leik­húsmiða ef mig lang­aði að eiga róm­an­tíska kvöld­stund. Ég var sífellt á nálum því mér fannst sam­bandið standa og falla með því hvernig ég héldi utan um það og ég trúði því að ég ein bæri ábyrgð á hvernig til tæk­ist. Sam­bandið versn­aði smám saman og þegar við héldum upp á eins árs afmæli Sveins, töl­uð­umst við varla við. Í stað þess að ríf­ast, not­uðum við þögn­ina sem tján­ing­ar­tæki. Ég leit­aði til sál­fræð­inga og ann­arra ráð­gjafa í von um að þeir gætu hjálpað mér að bæta hjóna­bandið. Þeir bentu mér allir á þá stað­reynd að ég væri ein að leita hjálpar en hjóna­band byggð­ist á sam­spili tveggja ein­stak­linga. Ég reyndi að ræða við Ólaf um vand­ann en hann vildi ekki heyra á það minnst og rauk út í hvert skipti sem þessi mál komu upp. Einu sinni ætl­aði ég að koma honum á óvart með því að kaupa helg­ar­ferð til London en þegar ég sýndi honum far­mið­ann, spurði hann hvað í ósköp­unum ég væri að hugsa. Hann þyrfti að vinna alla helg­ina og hefði engan tíma í slór. Í stað þess að eiga róm­an­tíska helgi með mann­inum mínum, fór ég með vin­konu minni í versl­un­ar­ferð. Þegar Sveinn var tveggja ára við­ur­kenndi ég loks­ins fyrir sjálfri mér að ég væri í dauða­dæmdu hjóna­bandi. Sam­bandið var stein­dautt og það fyrir löngu síðan.

Ólafur var ekki lengi að sam­þykkja skilnað þegar ég bar hann upp. Hann við­ur­kenndi að hafa lengi langað að ræða þann mögu­leika því hann vildi ekki búa við þetta ástand lengur. Hann var þegar búinn að koma sér upp verk­efni erlendis og var á leið­inni út til sex mán­aða þegar við ræddum um að skilja. Á meðan hann var úti und­ir­bjó ég fram­tíð okkar Sveins. Mér fannst óend­an­lega sárt að þurfa að selja fal­lega húsið okkar en ég varð að gera það og ég keypti litla íbúð þess í stað. Þegar maður skilur er ekki nóg með að þurfa að takast á við allar til­finn­ing­arnar, heldur tapar maður líka hluta af eigum sínum og þarf að byrja aftur frá grunni að koma sér upp hús­næði, hús­munum og öðru slíku.

Hjartað hafði vinninginn

Ég hefði aldrei getað ímyndað mér við­brögðin sem ég fékk frá fólki þegar það fór að spyrj­ast út að við værum að skilja. Það fyr­ir­gefst að skilja einu sinni á lífs­leið­inni enda annað hvert hjóna­band sem endar með skiln­aði. En skiln­aður númer tvö er dauða­dómur. Ég fékk að heyra svo margar and­styggi­legar athuga­semdir að ég ætla ekki að hafa þær verstu eftir. Skyndi­lega höfðu allir skoðun á því hvernig maður á að við­halda góðu hjóna­bandi. Mamma fór að segja mér að stundum væri ég illa til fara að hennar mati og þar af leið­andi lítið spenn­andi fyrir mann­inn minn. Pabbi til­kynnti mér að ég hefði fitnað þegar ég gekk með strák­inn og það gæti nú skýrt ýmis­legt (bara svona til árétt­ingar þá er ég 175 cm á hæð og sex­tíu kíló). Ég fékk aldrei að heyra neina athuga­semd í þá veru að hugs­an­lega hefði Ólafur ekki sinnt hjóna­band­inu nægi­lega vel. Hann var jú bara dug­legi mað­ur­inn sem vann nán­ast allan sól­ar­hring­inn til sjá fjöl­skyld­unni far­boða, eða þannig leit dæmið að minnsta kosti út í augum fólks­ins. Ein vin­kona mín benti mér á að þar sem Ólafur væri alltaf í partíum með fræga fólk­inu, skildi ég örugg­lega ekki hugs­un­ar­hátt­inn sem við­geng­ist þar, því ég væri nú bara kenn­ari. Sem betur fer lét ég þessar ill­kvittnu athuga­semdir ekki brjóta mig niður en ég verð að við­ur­kenna að auð­vitað sárn­uðu mér orð minna nán­ustu. Hvaða rétt hafði annað fólk til að dæma mig og mínar aðstæður hverju sinni? Ekki var ég að biðja það um álit og ég get rétt ímyndað mér hvað var sagt um mig þegar ég heyrði ekki til. Ég hef það oft á til­finn­ing­unni að fólk haldi að skiln­aður sé smit­andi sjúk­dómur því á tíma­bili fannst mér svo­kall­aðir „vinir mínir“ forð­ast mig. Það gleymd­ist (alveg óvart) að bjóða mér í afmæl­is­veislur, inn­flutn­ings­partí og gift­ingar en svo frétti ég seinna af því að Ólafi hafi verið boðið (ætli það hafi verið fyrir til­viljun?).

„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér við­brögðin sem ég fékk frá fólki þegar það fór að spyrj­ast út að við værum að skilja. Það fyr­ir­gefst að skilja einu sinni á lífs­leið­inni enda annað hvert hjóna­band sem endar með skiln­aði. En skiln­aður númer tvö er dauða­dómur.“

Þegar ég hitti núver­andi sam­býl­is­mann minn, fyrir tíu árum, var ég ekki á leið­inni í fleiri ást­ar­sam­bönd. Mér fannst nóg komið. Honum tókst hins vegar að heilla mig upp úr skónum á nokkrum mán­uðum. Ég var mjög lengi að læra að treysta honum og öðl­ast trú á sam­band­inu. Það má segja að þarna hafi tvær óheilla­krákur hist því hann átti líka tvær sam­búðir að baki og vissi nákvæm­lega hvernig það væri að standa í þeim sporum að gera upp við sig hvort maður sé til­bú­inn, eina ferð­ina enn.

Sem betur fer létum við hjartað ráða för og rugl­uðum saman reytum okkar. Við erum ekki gift og tókum þá ákvörðun strax að búa í óvígðri sam­búð. Sam­bandið hefur svo sann­ar­lega borið ávöxt, því í dag eigum við saman þrjú börn og erum ham­ingju­sam­ari með hverju árinu sem líður.

Við erum öll bara mann­leg og þar af leið­andi gera allir mis­tök ein­hvern tíma, sumir velja sér rangan maka en aðrir haga sér ekki eftir settum reglum. Stundum eru mis­tökin okkar svo stór að þau eru sjá­an­leg en sem betur fer gerum við líka oft mis­tök sem minna ber á. Næst þegar þú fréttir af ein­hverjum sem stendur í skiln­aði eða sam­búð­ar­slitum, slepptu öllum athuga­semdum og ráð­legg­ingum. Það leikur sér eng­inn að því að standa í þessum sporum. Ef þú vilt gera eitt­hvað, sendu við­kom­andi eins mikið af hlýjum hugs­unum og þú getur. Það er það eina sem sár­þjáð sál þarf á að halda.

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu