Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Svona spara áhrifavaldarnir: Rúmar 100 þúsund í mat á mánuði fyrir níu manna fjölskyldu

Svona spara áhrifavaldarnir: Rúmar 100 þúsund í mat á mánuði fyrir níu manna fjölskyldu
Auður Ýr Guð­jóns­dóttir og Svan­hildur Björg­vins­dóttir reka stóra fjöl­skyldu með hag­sýni að leið­ar­ljósi.

Neyt­endur vik­unnar eru parið Auður Ýr Guð­jóns­dóttir, áhrifa­valdur og ofur­mamma, og Svan­hildur Björg­vins­dóttir leik­skóla­kenn­ari sem leggur stund á masters­nám í lög­fræði. Þeirra á milli eiga þau sjö börn á ýmsum aldri af báðum kynjum þannig að oft er setið þétt við kvöld­verð­ar­borðið og á stóru heim­ili þarf að ríkja gott skipu­lag.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst?

Við eyðum um 100-120 þús­und krónum í stórinn­kaupin, alla jafna. Krónan er í næsta húsi þannig að við nýtum okkur stundum að geta skoppað þangað en helst viljum við versla í Bónus því við finnum mik­inn mun á inn­kaupa­körf­unni þar og ann­ars­staðar.

Við erum svo heppnar að börnin okkar borða eig­in­lega allt sem við leggjum á borð fyrir þau þannig að við getum eldað góðan og hollan heim­il­is­mat, en auð­vitað reynum við að stíla inn á þá sem eru í mat hjá okkur hverju sinni og eldum eftir því. Börnin fara til feðra sinna sumar helgar. Stundum kemur sá elsti með kærast­ann og þegar við erum flest sitja tíu manns við borðið.

Áhrifa­vald­arnir Auður Ýr og Svan­hildur.

Okkur finnst geggjað að nýta okkur „Eldum Rétt“ reglu­lega því það er svo auð­velt að kaupa rétt magn og þannig höfum við verið að spara á því. Svo eldum við stundum aðeins umfram svo krakk­arnir geti tekið með sér mat í skól­ann því stundum er ein­fald­lega ekki matur í boði handa þeim sem þau geta hugsað sér að borða.

Við lág­mörkum það að fara út að borða með alla hers­ing­una þó það komi alveg fyrir. Við skjót­umst auð­vitað af og til saman tvær í smá rómó.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

Aðallega myndum við vilja sjá holla kost­inn á betra verði og aðgengi­legri. Við leggjum mikið upp úr því að stunda heil­brigðan lífs­stíl og þá skiptir mat­ur­inn svo miklu máli. Okkur er gert miklu auð­veld­ara fyrir að grípa sorp­fæði.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

Við erum kannski ekk­ert að rúnta á milli mat­vöru­versl­anna til að gera verðkann­anir en við sjáum alveg heild­ar­kostn­að­inn á mat­ar­körf­unni. Þegar við kaupum stærri hluti, eins og raf­tæki og hús­gögn, þá skoðum við málin alltaf mjög vel og miðum við að kaupa gæði á góðu verði.

Við söfnum yfir­leitt alltaf fyrir því sem við kaupum

Álagn­ingin hérna heima er rosa­lega há; við sáum það þegar við vorum á Tene fyrir stuttu. Það var mun ódýr­ara að versla í sömu búðum úti og eru hér heima og svo var mat­varan miklu, miklu ódýr­ari.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er?

Já, það er nauð­syn­legt. Við erum með sparn­að­ar­reikn­ing hjá við­skipta­bank­anum okkar sem við leggjum reglu­lega inn á. Aðstæður okkar eru þannig að við nýtum okkur ekki sér­eign­ar­sparnað, ekki eins og er alla­vega. 

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán?

Við erum með eitt bíla­lán og náms­lán, ann­ars viljum við helst ekki taka lán. Við söfnum yfir­leitt alltaf fyrir því sem við kaupum ef við getum því vextir á Íslandi eru him­in­háir.

Hvaða mál og málaflokka telur þið að þurfi að leggja meiri áherslu á?

Fólk þarf almennt að vera betra við sjálf sig og hvort við annað! Við teljum að Íslend­ingar séu almennt að drep­ast úr frekju og setja alltof háan stand­ard á okkur.

Dóms­kerfið okkar má líka alveg fara að hugsa sinn gang því maður sér fárán­legar nið­ur­stöður úr kyn­ferðis- og heim­il­is­of­beld­is­málum.

Annars þykir okkur gott að búa á Íslandi og miðað við flest lönd er gott að vera sam­kyn­hneigðar hér. Rétt­inda­bar­átta sam­kyn­hneigðra er samt ekki unnin. Við sjáum ennþá heil­mikla for­dóma.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli?

Auðvitað viljum við koma vel fram við nátt­úr­una en við erum ekk­ert sér­stak­lega að pæla í þessu sem neyt­endur þó að við flokkum og gefum notuð föt.

Annað sem þú vilt taka fram?

Fyrir stórar fjöl­skyldur er mik­il­vægt að versla inn fyrir vik­una í senn, skoða vel hvað er til fyrir, passa upp á mat­ar­sóun og hafa skipu­lag á hlut­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina