Jónu var ekki skemmt er hún var á göngu með syni sínum við Varmá í Mosfellsbæ í gær og vill vara aðra við.
„Ég og sonur minn vorum að labba við Varmána fyrir neðan íþróttahúsið áðan. Hann labbaði niður að ánni við brúna og þegar hann var á leiðinni aftur upp var hann stunginn af einhverju kvikindi og þegar ég fór til hans að hjálpa réðust þessi kvikindi að mér og ég var stungin að minnsta kosti þrisvar sinnum. Þetta var virkilega vont og erum við rauð, aum og bólgin eftir þessar stungur. Ég náði ekki að sjá hvort þetta væru geitungar en ég tel það líklegast. Bara svona viðvörun svo börn séu ekki að þvælast þarna.“ Þetta skrifar Jóna í Facebook hóp fyrir íbúa Mosfellsbæjar.
Hildur nokkur bendir Jónu á að hringja á bæjarskrifstofuna og láta vita af þessu atviki. „Hringdu endilega í 5256700 (Mos) á mánudag og tilkynntu þetta. Ef um jarðgeitunga er að ræða er best að fjarlæga búið af svæðinu.“































Athugasemdir