Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þórir í viðtali um brottreksturinn: „Ég hef verið afskaplega heppinn í mínum störfum“

Þórir í viðtali um brottreksturinn: „Ég hef verið afskaplega heppinn í mínum störfum“
Þórir Guð­munds­son

Þóri Guð­munds­syni, rit­stjóra Stöðvar 2, Bylgj­unnar og visir.is, var sagt upp í morgun og hætti hann strax störfum og segir hann í við­tali við Mannlíf að sú sé venjan á staðnum þegar yfir­menn séu látnir fara. Hann seg­ist ekki hafa fengið skýr­ingar á upp­sögn­inni.

„Það er ekk­ert nýtt að skipt sé um stjórn­endur og það geta verið margar ástæður fyrir því. Það er í raun­inni bara ákvörðun yfir­manna hjá fyr­ir­tæk­inu og það eru margir sem hafa farið og komið og nú er ég einn þeirra. Mér skilst að með­al­starfs­aldur hjá rit­stjórum eða frétta­stjórum hjá Frétta­stofu Stöðvar 2 í gegnum tíð­ina hafi verið á milli 18 mán­uðir og tvö ár þannig að ég er bara orð­inn gam­all í hett­unni,“ segir Þórir sem hefur gegnt starf­inu síðan í árs­byrjun 2018.

„Þetta var auð­vitað óvænt en ég er óskap­lega stoltur af því að skilja við frétta­stofu í mjög góðu standi þar sem er sam­held­inn og öfl­ugur hópur fólks sem er vinir og nýtur þess að vinna saman. Ég er afskap­lega ánægður með að skilja eftir þannig starf­semi sem ég held að muni efl­ast á næst­unni undir stjórn Erlu Bjargar og Kolbeins Tuma.“ Erla Björg Gunn­as­dóttir hefur verið ráðin rit­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar og Kolbeinn Tumi Daðason hefur verið ráð­inn frétta­stjóri allra miðla frétta­stof­unnar.

Þórir segir nokkrum tímum eftir upp­sögn­ina að nú taki hjá sér að njóta lífs­ins og hugsa næstu skref. „Það er mjög ánægju­legt að geta gert það þegar sólin skín. Það eru nokkrir klukku­tímar síðan þetta gerð­ist og núna er ég ekki kom­inn lengra en að skipu­leggja að koma torfi á ákveð­inn blett sem ég er búinn að vera að vinna í og kurla trjá­greinar í sveit­inni. Það eru næstu verk hjá mér.“

Stríðsátök og stjórnmálaátök

Þórir á að baki langan feril í fjöl­miðla­heim­inum og er hann spurður hvað standi upp úr. Hvað sé eft­ir­minni­leg­ast.

„Ég hef verið afskap­lega hepp­inn í mínum störfum. Ég hef fengið að gera margt og fara margt. Ég vann lengst af í kringum alþjóð­legar fréttir og hef talað við bæði fyr­ir­menni og venju­legt fólk hingað og þangað um heim­inn og ég hef fengið að fylgj­ast með stríðs­á­tökum og stjórn­mála­á­tökum af ýmsu tagi. Ég fór reglu­lega til fyrrum Júgóslavíu þegar stríðið þar var í gangi og ég fór til gömlu Sov­ét­ríkj­anna þegar þau voru að lið­ast í sundur. Það er margt sem er að baki svo sem. Síðustu tæp fjögur árin hafa verið ein­stak­lega ánægju­leg vegna þess að ég tók við starfi frétta­stjóra sem var í raun­inni yfir tveimur hópum þar sem annar hóp­ur­inn skrif­aði fyrir vef og hinn flutti fréttir í útvarpi og sjón­varpi. Það var mark­mið mitt alveg frá upp­hafi að sam­eina þessa tvo hópa og það er ekk­ert endi­lega hlaupið að því og er ekki gert nema í sam­starfi við aðra stjórn­endur og fólkið sem fyrir er. Og það hefur tek­ist. Þarna er núna einn sam­held­inn hópur þar sem menn stökkva frá því að skrifa fréttir á vef­inn, visir.is, yfir í það að vera í beinni útsend­ingu á Stöð 2. Þetta er gíf­ur­lega góður hópur og okkur hefur tek­ist að gera visir.is að mest lesna fjöl­miðli lands­ins og höfum gert þetta með sam­heldn­inni. Fólk getur treyst á frétt­irnar sem það les á visir.is, hlustar á á Bylgj­unni eða sér í kvöld­fréttum Stöðvar 2“.

Ég vann lengst af í kringum alþjóð­legar fréttir

Allir samtaka

Frétta­stjór­inn fyrr­ver­andi er spurður hvað hafi haft mest áhrif á hann í líf­inu og hvað hafi mótað hann.

„Ég vann tölu­vert í hjálp­ar­starfi erlendis, í Asíu, gömlu Sov­ét­ríkj­unum og Afríku, og það sem hefur alltaf haft mest áhrif á mig er þegar ég kemst í snert­ingu við fólk sem hefur upp­lifað vonda tíma, mik­inn missi, farið í gegnum erf­iða lífs­reynslu og er að takast á við það. Ég hitti marga í þeim sporum svo sem eldri konur sem vita ekki hvað hefur orðið um barna­börn þeirra í stríðs­á­tökum. Það hefur auð­vitað mikil áhrif á mann og það er því miður allt of mikið um slíkt ennþá. Það eru ennþá stríð og átök út um allar grundir sem valda óskap­legri óham­ingju.“

Mynd sem var tekin í Afganistan 2013. Þórir með starfs­mönnum bækl­un­ar­sjúkra­húss Rauða kross­ins í Kabúl.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn víð­förli sem kynnst hefur lífi fólks sem og frétta­mennsku erlendis talar um heims­far­ald­ur­inn. Ísland og heims­far­ald­ur­inn.

„Síðasta eitt og hálft árið höfum við Íslend­ingar verið óskap­lega far­sæl með það að það hafa allir verið sam­taka um að upp­lýsa sem mest um allt það sem er að ger­ast í tengslum við heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar. Það hefur ekki mynd­ast van­traust og tor­tryggni sem maður sér í öðrum löndum. Ég veit ekki hvort fólk geri sér grein fyrir hvað þetta er ein­stakt og hvað við erum heppin með það. Ég held að stjórn­völd, sótt­varna­yf­ir­völd, almanna­varnir, fræði­menn og fjöl­miðlar hafi staðið sig gíf­ur­lega vel og ég vona að svo verði áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una