Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

John Snorri hefði þurft að klífa þrjá metra án líflínu – Festist á K-2 við að síga niður

John Snorri hefði þurft að klífa þrjá metra án líflínu – Festist á K-2 við að síga niður
Johns Snorri og félagar hans sem lét­ust á K 2.

John Snorri Sig­ur­jóns­son fannst lát­inn á K2 í síð­asta mán­uði í sjálf­heldu með reipið sem hann hékk í úr skorðum, ef marka má frá­sögn úkra­ínska háfjalla­göngu­manns­ins Val­entyns Sypavin. Þá var brotin reipa­fest­ing á fjall­inu. Bilun í bún­aði varð því John Snorra og félögum hans að bana. RÚV segir frá þessu og vísar í frá­sögn Sypavin sem var á fjall­inu að leið­segja hópi þegar hann fann lík Juans Pablos Mohrs, göngu­fé­laga Johns Snorra. Þetta er í fyrsta sinn sem látið er uppi um hvað varð mönn­unum þremur að ald­urtila. Sypavin seg­ist skrifa færsl­una í því skyni að varpa ljósi á málið.

Sypavin fann lík Chimenannsins Juan Pablos, þann 26. júlí. Síðast sást til þre­menn­ing­anna Johns Snorra, Juan Pablos og Alis Sadpara, frá Pakistan, á lífi föstu­dag­inn 5. febr­úar þegar þeir voru að klífa Flösku­háls­inn, erf­ið­asta hlut­ann á fjall­inu K2.

Hann kveðst hafa séð tvo dökka díla ofar­lega í fjall­inu, langt ofan við Flösku­háls. Hann fann Juan Pablo skammt frá efstu búðum á fjall­inu, rétt við upp­göngu­stað­inn þar sem reipin eða líf­lín­urnar byrja. Hann hafi legið þar sam­an­hnipraður án línu og bak­poka. Sypavin segir að lík hans hafi verið í aðeins um klukku­stundar göngu­leið frá Flösku­háls­inum í 7.955 m hæð.

Sypavin segir að  fætur og hand­leggir Pablo hafi verið í eðli­legri stöðu og ekki merki um bein­brot. Hann telur lík­leg­ast að fjall­göngu­mað­ur­inn hafi örmagn­ast og frosið í hel. Frostið á K2 að vetr­ar­lagi getur orðið meira en fimm­tíu stig.

Sjerpar sem fóru fyrstir upp Flösku­háls­inn til að tryggja og festa reipi og laga fundu lík Johns Snorra og Alis Sadpara, frá Pakistan. Sypavin kleif upp á eftir sjerp­unum. Hann segir að Ali hafi legið á bak­inu en höfuð hans hafi vísað niður. Hann hafi legið á bak­pok­anum sínum. Önnur höndin hafi verið vett­linga­laus. Hann hafi verið festur í líf­línu en gam­alt reipi hafi verið flækt um broddana á öðrum fæti.

Sypavin segir það alveg full­víst að Ali hafi verið að fara niður fjallið. Hann telur að hann hafi hugs­an­lega fest annan fót­inn og fallið á bakið. Einnig sé hugs­an­legt að hann hafi örmagn­ast.

Hundrað metrum ofar hafi lík Johns Snorra fund­ist. Hann hafi hangið í reipum sam­an­hnipraður. Ljóst hafi verið að hann hafi verið á leið niður fjallið. Vinstri höndin hafi verið vett­linga­laus. Sypavin segir að John Snorri hafi greini­lega sigið niður á reipa­fest­ingu sem reynd­ist vera brotin. Hann hafi þannig hangið í línu sem var föst í lykkju og þannig lent í sjálf­heldu. Til þess að laga þetta hefði hann þurft að klífa upp þrjá metra, án líf­línu og nota tærnar á ísbrodd­unum á skónum til að halda sér. Slíkt hefði verið afar erfitt við þessar aðstæður.

Margir hafa velt því fyrir sér hvort þre­menn­ing­arnir hafi náð tindi fjalls­ins. Sypavin segir að menn­irnir hafi í það minnsta verið á leið niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina