Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Margir stóðu á öndinni yfir bláa karfanum – Sjómenn í Eyjum fengu þjóðarathygli en …

Margir stóðu á öndinni yfir bláa karfanum – Sjómenn í Eyjum fengu þjóðarathygli en …
Mogginn sló frétt­inni um bláa karf­ann upp á bak­síðu.

Í febr­úar árið 1995 upp­lýstu skip­verjar á frysti­skip­inu Bylgju VE að þeir hefðu fengið bláan karfa í botn­vörpuna í Skerja­dýpi, út af Reykja­nesi. Karfi er að öllu jöfnu rauður eins og flestir vita og því þótti þetta vera stór­merki­legt. Eftir að skipið kom til lönd­unar varð fjöl­miðla­fár í kringum karf­ann. Morg­un­blaðið sló þessum meintu stór­tíð­indum upp sem aðal­frétt á bak­síðu. Mynd var af stýri­manni skips­ins og háseta með þetta undur haf­djúpanna. Seinna kom á dag­inn að þetta var ekki alveg eins og sjó­menn­irnir höfðu lýst því.

Fagurblár karfi

„Fag­ur­blár karfi kom upp í trolli Bylgju VE er skipið var að veiðum í Skerja­dýpi fyrir tveimur vikum, að sögn skip­verja á Bylgju VE. Kristján Egilsson, safn­vörður Nátt­úru­gripa­safns­ins í Eyjum, skoð­aði karf­ann í gær. Sagðist hann ekki hafa séð slíkt fyr­ir­brigði áður og var mjög efins um að karf­inn væri þannig frá nátt­úr­unnar hendi en skip­verjar Bylgju VE sögðu að fisk­ur­inn hefði komið svona útlít­andi upp í troll­inu og þeir hefðu ekki litað hann, eins og Kristján taldi lík­legt að gert hefði verið,“ sagði í Morg­un­blað­inu.

Síðan var vitnað í stýri­mann skips­ins um nán­ari stað­setn­ingu á veiði­staðnum. Skip­verjar voru að draga tveggja báta troll ásamt Þórunni Sveins­dóttur VE, neðan við 400 faðma dýpi í Skerja­dýp­inu.

„Hann sagði að ýmsir kynja­fiskar fengjust oft á svo miklu dýpi og hefðu þeir fengið margar teg­undir af slíkum fiskum í túrnum. Hann sagði að Ásgeir Guð­munds­son háseti hefði fundið bláa karf­ann og komið með hann upp og sýnt sér hann. Þeir hefðu fryst hann og ætl­unin væri að láta stoppa hann upp.“

Frétta­rit­ari DV sagði sjó­menn­ina sverja að þetta væru engar ýkjur og trúði þeim í hví­vetna þrátt fyrir efa­semdir í höf­uð­stöðvum blaðs­ins. 

 Uppstoppaður karfi

Og efa­semdir Krist­jáns safn­varðar eru í frétt­inni því þar segir að í fiska­bókum sem hann hafði með­ferðis hafi ekki verið unnt að finna neitt líkt karf­anum um borð í Bylgju og taldi hann miklar líkur á að litur karfans væri af manna völdum en skip­verjar þvertóku fyrir að þeir hefðu litað fisk­inn. DV gerði mál­inu góð skil. Haft var eftir skip­verj­unum að allt væri sann­leik­anum sam­kvæmt og útgerð­ar­mað­ur­inn ætl­aði að láta stoppa bláa karf­ann upp. 

Kristján Egilsson sagði í sam­tali við Stundina, nokkrum árum síðar, að hann hefði aldrei trúað því að þetta væri rétt. Hann hefði á sínum tíma skoðað bláa karf­ann og séð strax að lit­ur­inn hefði verið ráð­andi á öllum fisk­inum.

„Venju­lega er karf­inn ljós­ari á kvið­inn og það er líka annar litur í kjaft­inum. En þarna var allt blátt,‟ segir Kristján sem á þessum tíma var safn­vörður í Vest­manna­eyjum.

Kristján stýri­maður með karf­ann fræga.

Hann var svo tor­trygg­inn og sann­færður um blekk­ing­una að hann tók ekki fisk­inn með sér frá borði til frek­ari skoð­unar.

Játning skipverja

„Skip­verjar gerðu mikið úr þessu en ég var mjög tor­trygg­inn. Seinna við­ur­kenndu þeir fyrir mér í tveggja manna tali að hafa notað lit­ar­efni sem þeir höfðu kom­ist yfir. Þetta er litur sem sprautað er í fólk við röntgen­mynda­tökur. Þannig gerðu þeir karf­ann fag­ur­bláan. Þetta höfðu þeir dundað við um borð og skemmtu sér vel,“ segir Kristján.

Hann rifjar upp annað hrekkja­mál frá sjó­mönnum í Eyjum. Þá komst í fréttir að tog­ar­inn Vest­mannaey VE hefði dregið botn­vörpuna yfir neð­an­sjáv­ar­eld­gos. Trollið átti að hafa bráðnað við þær aðstæður. Þetta varð mikið fjöl­miðla­fár og voru jarð­fræð­ingar kall­aðir til að gefa álit sitt. Skip­verjar gáfu upp nákvæma stað­setn­ingu á meintu gosi. Kristján segir að seinna hafi menn við­ur­kennt að trollið hefði brunnið inni á dekki af allt öðrum ástæðum. Troll­pok­inn hafði kast­ast til á dekk­inu og lent utan í sjóð­heitum strompi frá aðal­vél og bráðnað.

„En eins og með bláa karf­ann þá tókst þeim að plata fjöl­miðla og sér­fræð­inga,“ sagði Kristján við Stundina. 

Fréttin birt­ist áður að stofni til í Stund­inni en höf­undur er sá sami.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við