Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Umhverfisvandinn og loftslagsbreytingar ógna samfélagi og lífsskilyrðum komandi kynslóða“

„Umhverfisvandinn og loftslagsbreytingar ógna samfélagi og lífsskilyrðum komandi kynslóða“

Hjalti Hrafn Haf­þórs­son heim­spek­ingur er ekk­ert að fara í kringum hlut­ina og segir að „umhverf­is­vand­inn, lofts­lags­breyt­ingar og aðrar gagn­verk­andi umhverfiskrísur, ógna nú öllu mann­legu sam­fé­lagi og lífs­skil­yrðum kom­andi kyn­slóða á jörð­inni.“

Og bætir við:

„Þetta gæti virst vera yfir­drifin stað­hæf­ing en hún er því miður sá veru­leiki sem við stöndum frammi fyrir og er byggð á traustum vís­indum.

Lofts­lags­breyt­ingar munu í náinni fram­tíð leiða til gíf­ur­legra ham­fara. Ef fram fer sem horfir og ekki er gripið inn í upp­söfnun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í and­rúms­loft­inu á afger­andi hátt þá mun hlýna meira á jörð­inni á nokkrum ára­tugum en ger­ist að öllu jöfnu á mörgum árþús­undum þegar jörðin kemur út úr ísald­ar­skeiðum,“ og að „það mun leiða til víð­tækrar eyði­legg­ingar vist­kerfa, einkum vegna þurrka sem munu gera gróð­ur­sæl svæði að eyði­mörkum, og bráðun­unar jökla sem leiðir til upp­þorn­unar árkerfa og hækk­unar á yfir­borði sjávar.

Hjalti færir í tal að „lif­andi vist­kerfi og efn­is­legar hringrásir í nátt­úr­unni mynda net gagn­verk­andi tengsla og þegar margir þræðir slitna byrjar netið að rakna upp með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum.

Að hans mati er umhverf­is­vand­inn marg­þættur og orsakir og áhrif mis­mun­andi vanda­mála skar­ast:

„Þó lofts­lags­breyt­ingar séu mest aðkallandi vanda­málið þá er ekki rétt að draga úr öðrum umhverf­is­vanda­málum á borð við notkun eit­ur­efna, jarð­vegseyð­ingu, eyð­ingu vist­kerfa, tap á líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika, efna­mengun, og svo fram­vegis. Mann­kynið er í ósjálf­bærum far­vegi á mörgum sviðum og stefnir í að raska stór­feng­lega sumum af mik­il­væg­ustu hringrás­ar­ferlum nátt­úr­unnar.“

Hann nefnir að „við höfum gengið svo nærri líf­ríki plánet­unnar að tap á líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika og tíðni útrým­inga er sam­bæri­leg við stærstu útrým­ing­ar­skeið jarð­sög­unnar.“

Hjalti segir drif­kraft­inn á bak við umhverf­is­vand­ann sé það efna­hags­lega ferli sem kallað er kap­ít­al­ismi. Og það er ekki hægt að takast á við lofts­lags­breyt­ingar og hinn víð­ari umhverf­is­vanda innan kap­ít­al­ism­ans:

„Kap­ít­al­ism­inn er rót vand­ans og getur ekki verið hluti af lausn­inni án þess að brjóta gegn sínum eigin innri lög­málum. Hvert það sam­fé­lag sem vill takast á við umhverf­is­vand­ann getur ekki gert það án þess að takast á við kap­ít­al­ismann á sama tíma. Samtök og ein­stak­lingar sem berj­ast fyrir nátt­úr­unni geta ekki náð mark­miðum sínum án þess að taka stefn­una á nýja sam­fé­lags­gerð handan kap­ít­al­ism­ans. Það er ekki lengur aðeins rétt­læt­is­mál fyrir vinn­andi stéttir að bylta auð­vald­inu heldur er það bók­staf­lega lífs­spurs­mál fyrir jörð­ina, nátt­úru hennar, og allar kom­andi kyn­slóðir um ókomna tíð.“

Hann ljær máls á því að „þessar stað­hæf­ingar ganga lík­lega þvert á það sem almennt heyr­ist um lofts­lags- og umhverf­is­mál og lausnir á þeim. Þær lausnir sem lagðar eru til af stjórn­völdum; stórum umhverf­is­vernd­ar­sam­tökum og fyr­ir­tækjum og þær lausnir sem rætt er um í fjöl­miðlum lúta nán­ast ein­göngu að því að gera kap­ít­al­ismann sjálf­bær­ann eða grænan og umskiptin eiga jafn­vel að stuðla að grænum hag­vexti og hag­sæld innan hins kap­ít­al­íska kerfis.“

Og bætir við:

„Með öðrum orðum þá hall­ast umræða um loft­lags- og umhverf­is­mál nán­ast ein­göngu að lausnum sem ögra ekki efna­hags­legum, póli­tískum og menn­ing­ar­legum valda­tengslum kap­ít­al­ísks sam­fé­lags þrátt fyrir að slíkar lausnir geti ekki tekið á und­ir­liggj­andi drif­kröftum eyði­legg­ing­ar­innar.“

Einnig að „kap­ít­al­ism­inn hefur í margar aldir verið for­dæmdur og dásamaður sem drif­kraft­ur­inn bak við bæði auð­legð okkar og arð­rán. En þó liggur ekki alltaf ljóst fyrir hvað átt er við með hug­tak­inu kap­ít­al­ismi. Orðið er ekki notað sem nákvæmt hug­tak í dag­legu tali. Þannig getur það átt við efna­hags­kerfi í mjög víðum skiln­ingi – líkt og gert er hér að ofan – frjálsa mark­aði, póli­tísk kerfi eða hug­mynda­fræði, ákveðin stétta og valda­tengsl, en einnig ákveðna menn­ingu og gildi. Í þeim til­gangi að útskýra und­ir­liggj­andi drif­krafta kap­ít­al­ism­ans getur verið gagn­legt að skil­greina hann nákvæmar.“

Í ofur ein­fald­aðri mynd má segja að kap­ít­al­ismi sé ákveðið sam­band pen­inga og fram­leiðslu þar sem mögu­legt er að ávaxta pen­inga með því að fjár­festa þeim; umbreyta þeim í kap­ítal eða auð­magn, í ein­hverju efna­hags­legu ferli, til dæmis fram­leiðslu ein­hverrar vöru eða þjón­ustu:

„Það hefur engin ástæðu til þess að setja pen­inga inn í slíkt efna­hags­legt ferli nema sú mann­eskja búist við að fá meiri pen­ing til baka á end­anum. Því verða nauð­syn­lega að vera til meiri pen­ingar í hag­kerf­inu á morgun en eru til í dag. Hag­kerfið verður að vaxa ef kap­ít­al­ism­inn á að ganga upp.“

Hjalti segir þetta vera ástæð­una fyrir því „að um allan heim hafa stjórn­mála­menn hag­vöxt á heil­anum. Vöxtur í kap­ít­al­ísku hag­kerfi er óhjá­kvæmi­legur, hann er ekki auka­verkun eða eitt­hvað sem hægt er að breyta eða tak­marka með reglu­verki. Ef hag­kerfið er ekki að vaxa verður kreppa, sem þýðir að kap­ít­alist­arnir fá ekki arð af fjár­fest­ingum sínum og draga pen­ing­ana sína til baka eða flytja þá annað með til­heyr­andi gjald­þrotum, sam­drætti og atvinnu­leysi í við­kom­andi hag­kerfi.“

Og nefnir að í sam­hengi við umhverf­is­mál er „mik­il­vægt að skilja að kap­ít­al­ískt hag­kerfi vex ekki jafnt og þétt, heldur í veld­is­vexti. Það þýðir að eftir því sem á líður vex kerfið hraðar og hraðar. Kerfið sem slíkt tvö­faldar sig reglu­lega. Í hvert skipti sem stjórn­mála­maður fagnar 3,5% hag­vexti sein­asta árs er hann í raun að segja að eftir 20 ár verði hag­kerfið helm­ing­inn stærra að því gefnu að það tak­ist að við­halda slíkum hag­vexti. Eftir 40 ár verður hag­kerfið svo fjórum sinnum stærra. Eftir 60 ár verður það átta sinnum stærra. Hver sá stjórn­mála­maður eða kap­ít­alisti sem fagnar 3,5% hag­vexti er í raun að segja að sextán sinnum stærra hag­kerfi með sam­svar­andi aukn­ingu í mengun, ágangi á auð­lindir og eyð­ingu vist­kerfa sé æski­leg fram­tíð árið 2100.“

Einnig bendir hann á að það sé „óhjá­kvæmi­legt að hag­kerfi heims­ins rek­ist á nátt­úru­leg tak­mörk fyrir vexti. Fyrsta og aug­ljós­asta tak­mörkun sem við höfum nú þegar keyrt í gegnum er geta lofts­lags­ins til þess að taka við útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Því miður eru áhrifin af því lengi að koma fram og á meðan virð­ist það vera mark­mið flestra þjóð­ríkja heims að keyra sitt kap­ít­al­íska hag­kerfi áfram á fullum krafti sem mun gera afleið­ing­arnar þeim mun verri.

Fyrir utan stöðugan vöxt hefur kap­ít­al­ískt kerfi margar aðrar auka­verk­anir. Ein er sam­þjöppun auðs í heim­inum til þeirra sem eiga pen­inga og fjár­festa þeim; þeir ríku verðar rík­ari. Í ferl­inu er inn­byggður stig­vax­andi efna­hags­legur ójöfn­uður og stétta­skipt­ing. Einnig er mik­il­vægur munur á valdi og stöðu þeirra sem leggja auð­magn inn í ferlið og þeirra sem vinna í fram­leiðslu hluta ferl­is­ins; það er að segja stétt kap­ít­alista og stétt verka­manna. Mik­il­vægar ákvarð­anir um lífs­við­ur­væri og fram­tíð fólks eru reglu­lega teknar í krafti og í þágu auð­magns­ins án nokk­urrar lýð­ræð­is­legrar aðkomu þeirra sem ákvörð­unin hefur bein áhrif á. Reyndar eru margar af mik­il­væg­ustu ákvörð­unum um fram­tíð plánet­unnar og lífs­við­ur­væri kom­andi kyn­slóða teknar af stjórnum fyr­ir­tækja án nokk­urs gagn­sæis eða lýð­ræð­is­legrar aðkomu almenn­ings.“

Hjalti nefnir að „ef drif­kraft­ur­inn í hag­kerf­inu heilt á litið er fjár­fest­ing pen­inga, frekar en til dæmis það að mæta grunn­þörfum fólks, þá má kalla kerfið sem slíkt kap­ít­al­ískt. Í slíku kerfi er til­hneig­ing til þess að hugsa efna­hags­legar ákvarð­anir út frá því sem við getum kallað innri rök­vísi kap­ít­al­ism­ans; það er að fjár­fest­ingar skili arði í náinni fram­tíð. Stjórnir fyr­ir­tækja geta þannig tekið ýmsar ákvarð­anir um hvernig fram­leiðslu, orku­notkun, auð­linda­námi og losun meng­unar er háttað en aðeins svo lengi sem rök eru fyrir því að það skili arði í náinni fram­tíð. Ef slíkar ákvarð­anir fara að taka mið af því hvort mögu­legt verði að lifa á jörð­inni eftir 200 ár og taka skyn­sam­legar ákvarð­anir út frá sjón­ar­miðum sjálf­bærni sem koma niður á skamm­tíma gróða þá fara hluta­bréf að falla í verði og kap­ít­alistar færa pen­ing­ana sína annað. Kap­ít­al­ískt kerfi mun alltaf hafa stefnu afmark­aða af innri rök­vísi kerf­is­ins og hags­munum auð­magns­ins. Það mun alltaf stefna að skamm­tíma gróða og auknum hag­vexti og með því auknum ágangi á nátt­úr­una.“

Þrátt fyrir þetta eru nán­ast einu lausn­irnar sem haldið er að „okkur“ í lofts­lags- og umhverf­is­málum settar fram innan kap­ít­al­ism­ans. Og á heild­ina litið virð­ist hinn svo­kall­aði græni kap­ít­al­ismi grund­vall­ast á þeirri tál­sýn að kap­ít­al­ism­inn geti frá­tengt sig nátt­úr­unni og skapað vöxt án þess að ofnýta auð­lindir eða gefa frá sér mengun ef rík­is­stjórnir inn­leiði reglu­verk og hvata­kerfi þar að lút­andi:

„En svo lengi sem innri rök­vísi kap­ít­al­ism­ans er leið­ar­ljós allra mik­il­vægra ákvarð­ana er drif­kraft­ur­inn alltaf í átt að því að auka arð­bærni frekar en sjálf­bærni. Hvata­kerfi virka aðeins að því marki að hvat­arnir auki arð­bærni, ann­ars eru þeir huns­aðir. Ef slíkir hvatar eiga að virka verða þeir á end­anum að greiðslu á almannafé inn í kap­ít­al­íska hag­kerfið til þess eins að við­halda auð­söfnun hinnar kap­ít­al­ísku stéttar.“

Hjalti vekur athygli á því að „reglu­verk aftur á móti tekur því sem gefnu að ríkið geti sett reglur sem hamla þess eigin hag­kerfi og farið eftir þeim reglum. Hið vest­ræna þjóð­ríki, þó það sé yfir­borðs­lega lýð­ræð­is­legt, er hel­tekið af hags­munum kap­ít­al­ism­ans og stétta­hags­munir auð­valds­ins hafa mun meira vægi en atkvæði almenn­ings sem að öllu jöfnu fær að velja á milli flokka með lít­il­lega mis­mun­andi kap­ít­al­ískar áherslur á nokk­urra ára fresti,“ og líka að ef „ríkið inn­leiðir reglur sem hefta hag­vöxt til þess að vernda nátt­úr­una leiðir það til kreppu, atvinnu­leysis og flótta auð­magns frá land­inu þegar kap­ít­alistar ákveða að fjár­festa ann­ar­staðar.

Vegna þess hvernig valdið liggur hjá auð­valds­stétt­inni og vegna stöðugt yfir­vof­andi kreppu verður rík­is­stjórn í vest­rænu lýð­ræð­is­ríki að taka ákvarð­anir út frá innri rök­vísi kap­ít­al­ism­ans og hefur mjög tak­markað svig­rúm til að setja reglu­verk eða skatta. Í flestum til­fellum mun ríkið vernda skamm­tíma gróða kap­ít­alista og áfram­hald­andi hag­vöxt frekar en nátt­úr­una og fram­tíð­ar­vel­ferð sinna eigin borg­ara.“

Hjalti segir að því sé líka oft haldið fram að kap­ít­al­ism­inn muni stuðla að fram­þróun nýrrar tækni sem mun bjarga okkur. En tækni­lausnir eru líka óraun­sæjar:

„Það er ekki í grund­vall­ar­at­riðum hægt að frá­tengja hag­kerfið nátt­úr­unni. Flest allar tækni­lausnir eru því ekki lausnir, heldur til­færsla á vanda­mál­inu. Ef það á að leysa lofts­lags­vand­ann með raf­bíla­væð­ingu hvernig á þá að leysa mengun í fram­leiðslu nikk­els og liþ­íums í bíla­batt­er­íum? Það hentar kap­ít­al­ism­anum ágæt­lega að halda á lofti tækni­lausnum; það þýðir dýr og flókin fram­leiðslu­ferli með selj­an­lega vöru á hinum end­anum; það þýðir nýir mark­aðir og meiri gróði, en er í besta falli gálga­frestur á umhverf­is­vand­anum. Trú á tækni­fram­farir er gíf­ur­lega stór þáttur í menn­ingu okkar og svo djúpt inn­rætt að mörg okkar trúa því nán­ast blint að tækni­fram­farir séu óhjá­kvæmi­lega hluti af lausn­inni en geti aldrei verið hluti af vanda­mál­inu.“

Og bætir við:

„Jafnvel tækni­fram­farir sem miða að auk­inni skil­virkni skila sér ekki í umhverf­is­á­hrifum vegna þess að aukin skil­virkni gefur heild­ar­kerf­inu ein­fald­lega svig­rúm til að vaxa hraðar. Vöxtur heild­ar­hag­kerf­is­ins étur þannig upp umhverf­is­legan gróða af tækni­fram­förum. Það er ekki mikið gagn í að byggja sól­ar­orku­ver ef orkan sem það fram­leiðir kemur ekki í stað­inn fyrir kola­ork­una heldur bæt­ist ein­fald­lega við stöðugt vax­andi hag­kerfi þar sem þörf er fyrir stöðugt meiri orku; að sama skapi er spar­neytn­ari bíl­vél ekki að gagn­ast umhverf­inu ef það eru stöðugt fleiri og fleiri bílar á göt­unni. Jafnvel víð­tæk raf­bíla­væð­ing í heim­inum, svo mikil að það hefði áhrif á olíu­verð, myndi ein­fald­lega gera olíu að ákjós­an­legri og ódýr­ari orku­gjafa í öðrum efna­hags­legum ferlum. Í kap­ít­al­ísku hag­kerfi eru öll slík svig­rúm til að minnka fram­leiðslu­kostnað og auka gróða nýtt og lík­leg útkoma væri aukin olíu­notkun í heim­inum en ekki minni.“

Hjalti talar um lausnir:

„Allir und­ir­liggj­andi drif­kraftar kap­ít­al­ísks hag­kerfis miða að því að hámarka fram­leiðslu og hámarka neyslu og hámarka með því ágang manna á nátt­úr­una í enda­lausu og stig­vax­andi ferli eyði­legg­ingar í þágu gróða. Því miður eru ákvarð­anir teknar út frá innri rök­vísi kap­ít­al­ism­ans sam­svar­andi félags­legu sjálfs­morði þegar þær eru skoð­aðar út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum. Það sem við þurfum er að lág­marka fram­leiðslu og neyslu innan þess ramma til að mæta grunn­þörfum allra til mann­sæm­andi lífs og getu nátt­úr­unnar til þess að end­ur­nýja sig,“ og segir einnig að „ríkj­andi stéttir munu seint leggja til lausnir sem grafa undan auði þeirra og valdi; Þess vegna eru þær lausnir á umhverf­is­vand­anum sem fyrir liggja lítið annað en ófull­nægj­andi hálf­kák. Aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum og öðrum umhverf­is­vanda­málum eru að öllu jöfnu skipu­lagðar út frá því hvað er talið mögu­legt innan póli­tískrar heims­myndar hnatt­ræns kap­ít­al­isma. Frá þeim upp­haf­s­punkti er síðan reynt að teygja áætl­anir eins langt og mögu­legt er í átt að þeim tak­mörkum sem við þurfum að ná.“

En það dugar þó „sjaldn­ast til. Við ættum hins vegar að gera vís­indin og efn­is­legan veru­leika að upp­haf­s­punkt­inum í öllum okkar áætl­unum. Gera áætl­anir sem miða að því að ná þeim tak­mörkum sem þarf og aðlaga póli­tískan og efna­hags­legan veru­leika að þeim. Það er auð­vitað ekki hægt án þess að grafa undan grund­vallar for­sendu kap­ít­al­ism­ans, að enda­laus auð­söfnun og hag­vöxtur séu mögu­leg, og með því riðla póli­tísku og efna­hags­legu valda­jafn­vægi heims­ins. En póli­tísku og efna­hags­legu valdi er hægt að bylta sama hversu rót­gróið það kann að virð­ast. Efn­is­legur veru­leiki nátt­úr­unnar og lög­mál eðl­is­fræð­innar eru hins vegar óhagg­an­legar stað­reyndir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina