Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Erla Björg, ritstjóri Stöðvar 2, varð föðurlaus 10 ára: „Ég hætti að treysta á fegurðina“

Erla Björg, ritstjóri Stöðvar 2, varð föðurlaus 10 ára: „Ég hætti að treysta á fegurðina“
Erla Björg Gunn­ars­dóttir

„Þetta er ný áskorun og mik­ill heiður. Ég er mjög stolt af hópnum á frétta­stof­unni sem ég hef unnið með síð­ustu ár, bæði við hlið hans og sem frétta­stjóri. Ég veit hvaða hæfi­leikar eru í hverju horni og hlakka til að næra þá. Ég lít svo á að ég sé í þess­ari stöðu til að leiða hóp­inn næstu skref og þar er „leiða“ lyk­il­orð frekar en að stjórna,“ segir Erla Björg Gunn­ars­dóttir var ráðin rit­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar þegar Þóri Guð­munds­syni var sagt upp á dög­unum. Hún segir að Þórir hafi verið óskap­lega góður stjórn­andi sem komið hafi inn á frétta­stof­una á hár­réttum tíma.

„Hann fylgdi frétta­stof­unni úr Skafta­hlíð­inni og í sam­runa við Sýn. Hann var akkúrat rétti mað­ur­inn í það ferli. Það er þannig í fjöl­miðlum, sem og öðrum brönsum, að stjórn­endur sem taka svona stórt verk­efni að sér gera sér yfir­leitt grein fyrir því að þetta er ákveð­inn kafli sem þeir muni skrifa og síðan tekur annar við þegar þeim kafla er lokið til að fara inn í næsta kafla. Og við erum bara á þeim kafla­skilum. Ég er mjög með­vituð um að núna hafi ég ákveð­inn tíma til að skrifa minn kafla. Það skiptir mig miklu máli að koma þeim kafla frá mér eins vel og fal­lega og Þórir gerði. Þá verð ég sátt. En auð­vitað verður minn kafli öðru­vísi en Þóris enda erum við ansi ólík þótt við náum mjög vel saman.“

Erla Björg er að setja sig inn í nýja starfið.

„Ég lít á þessa frétta­stofu sem mjög öfl­ugt afl. Við erum með útvarp, sjón­varp og vef með ótelj­andi tæki­færum. Stöð 2 hefur þróað með sér ákveð­inn karakter í gegnum tíð­ina sem mig langar að und­ir­strika, mála sterk­ari litum. Við erum fljót, örugg og fag­leg. Við náum að grípa mál hratt, fara í beina útsend­ingu hratt – á öllum miðlum – og fólkið á gólf­inu er fum­laust og fag­legt. Margir bera saman kvöld­frétta­tíma Stöðvar 2 og RÚV en ég er ekki upp­tekin af slíkum sam­an­burði. RÚV er rík­is­út­varp og er rekið af almannafé. Þau hafa ákveðnum skyldum að gegna og það er mjög ákveðið form á frétta­tím­anum þeirra. Við getum sprengt formið upp, prófað nýjar leiðir og fjallað um mál sem passa ekki endi­lega alltaf inn í hefð­bundna frétta­boxið. Þannig færum við áskrif­endum okkar traustar fréttir og um leið gott sjón­varp.“

Ég er mjög með­vituð um að núna hafi ég ákveð­inn tíma til að skrifa minn kafla.

Erla Björg er þriggja barna móðir. Hún er stjórn­mála­fræð­ingur að mennt, með diplóma í blaða- og frétta­mennsku og lauk meist­ara­námi í Árósum í menn­ingar- og fag­ur­fræðum. Áður en hún hóf störf á fjöl­miðlum, 35 ára gömul, hafði hún unnið sem verk­efna­stjóri í inn­flytj­enda­málum hjá Rauða kross­inum og hún var síðar kynn­ing­ar­stjóri For­lags­ins.

„Það besta sem ég veit er að fara upp á fjöll. Það er mín besta slökun og núvit­und að ganga á fjöll í góðum hópi.“

Hún fór í grunn­búðir Everst fyrir nokkrum árum.

„Það að ganga í grunn­búðir Everest er ævin­týra­leg­asta lífs­reynsla sem ég hef upp­lifað. Það var áskorun sem ég bjóst ekki endi­lega við að ég myndi nokkurn tím­ann taka. Mesta áskor­unin var þó and­leg. Að halda áfram á hverjum degi. Við vorum 11 daga á leið­inni upp í grunn­búð­irnar. Við sváfum í köldum og sóða­legum skálum og borð­uðum sama bragð­lausa mat­inn í öll mál dag eftir dag. Núðlur, kart­öflur og hrís­grjón. Það kom mér á óvart að geta haldið í and­lega styrk­inn en á hverjum morgni vakn­aði ég, og hafði aldrei sofið mikið um nótt­ina, saug upp í nefið og hélt áfram glöð í bragði. Mér leið vel allan tím­ann. Þetta var and­leg þrekraun sem ég er mjög stolt að hafa kom­ist yfir á æðru­leys­inu í raun og veru.“

Þetta var and­leg þrekraun sem ég er mjög stolt að hafa kom­ist yfir á æðru­leys­inu í raun og veru.

Skuggahliðin

Segja má að skuggi hafi lagst yfir líf Erlu Bjargar þegar hún missti föður sinn þegar hún var aðeins 10 ára en hann lést á mjög svip­legan hátt. „Frá því ég var 10 ára til 25 ára ald­urs þá fór ég í meira en tíu jarð­ar­farir hjá nánum aðilum. Það er erfitt að kveðja svona marga ást­vini á svo stuttum tíma og svona ungur. Þetta var kafli í lífi fjöl­skyld­unnar þar sem hvert áfallið reið yfir á fætur öðru. Þessi missir kenndi mér á mjög erf­iðan hátt að allt geti breyst á svip­stundu og það brýtur niður traustið í manni.

ég hef ekki drukkið áfengi í sex ár

Þannig að ég var ansi ung þegar ég hætti að treysta á feg­urð­ina og ham­ingj­una. Maður getur nefni­lega orðið ansi kald­hæð­inn þegar traustið er farið og jafn­vel hroka­fullur út í lífið. Ég var svo­lítið hörð; tók lífið á hnef­anum út af því að ég var vön því að lífið væri bar­átta og maður bara hark­aði af sér. Það getur verið hættu­lega gott að fela sig í myrkr­inu og það er vörn fólgin í því að mæta líf­inu með kald­hæðni, hroka og hörku. Að lokum brotnar eitt­hvað í manni og þegar það gerð­ist þá loks­ins vann ég almenni­lega úr þessu. En fyrst þurfti ég að hætta að drekka áfengi, til þess að hætta að flýja í það, og ég hef ekki drukkið áfengi í sex ár. Um leið hætti ég að fela mig í myrkr­inu og horfð­ist í augu við alls konar í líf­inu, mis­tök og missi, og lærði mildi gagn­vart sjálfri mér og öðru fólki. Og auð­mýkt. Helling af auð­mýkt. Smátt og smátt fór ég að trúa og treysta á það fal­lega í líf­inu. Þannig að þetta var sátta­ferli sem ég fór í gegnum, sem ég hefði ekki getað gert án þess að hætta að drekka, og það hefur fært mér milljón gjafir. Falleg sam­skipti, nán­ari tengsl, heið­ar­leika og meiri ein­lægni. Þetta eru eig­in­leikar sem nýt­ast mér mjög vel í starf­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una