Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Jón prófessor við Harvard: „Öryggi bólusettra barna óþekkt stærð og það á að láta börn njóta vafans

Jón prófessor við Harvard: „Öryggi bólusettra barna óþekkt stærð og það á að láta börn njóta vafans

Jón Ívar Ein­ars­son er pró­fessor við Lækna­deild Harvard Háskóla og einnig með meistara­gráðu í lýð­heilsu­fræði. Hann veltir því fyrir sér hvort hann eigi að bólu­setja börnin sín við Covid-19.

Jón telur að margir for­eldar hér á landi séu í þeim sporum að þurfa að taka ákvörðun um bólu­setn­ingu barna sinna – þar sem boðað hefur verið að ráð­ist skuli í bólu­setn­ingu 12-15 ára barna.

„Ég á sjálfur 13 ára dreng sem stendur til boða að fara í bólu­setn­ingu síðar í mán­uð­inum. Hafandi starfað sem vís­inda­maður á sviði lækn­is­fræði um ára­bil tel ég mik­il­vægt að skoða þau gögn sem eru til staðar til að hjálpa mér að ræða málið við hann áður en bólu­setn­ing­arnar hefj­ast hér­lendis. Rétt er að taka fram að ég er mjög hlynntur bólu­setn­ingum almennt enda eru þær eitt mesta afrek lækna­vís­ind­anna og hafa bjargað ótal manns­lífum síð­ustu ára­tugi“ segir Jón og bætir við:

„Sömu­leiðis hef ég verið hlynntur bólu­setn­ingu full­orð­inna við Covid-19, og þá sér­stak­lega bólu­setn­ingu áhættu­hópa. Þó virkni bólu­efna til að hindra smit og mynda hjarð­ó­næmi hafi verið ofmetin, hafa þau sann­ar­lega komið í veg fyrir alvar­leg veik­indi og dauðs­föll, sem skiptir auð­vitað mestu máli.“

Hann segir að „bólu­setn­ingar barna á aldr­inum 12-15 ára eru hins vegar afar umdeildar. Þannig mælir CDC til dæmis með þeim á meðan aðrir hópar fræði­manna eru á önd­verðum meiði. WHO mælir ein­göngu með bólu­setn­ingu 12-15 ára barna ef þau eru í áhættu­hópum.“

Og heldur áfram:

„Þá hefur enn fremur verið umdeilt að bólu­setja hópa á Vest­ur­löndum sem eru í lít­illi hættu á meðan fram­línu­starfs­fólk og áhættu­hópar í þró­un­ar­löndum hafa ekki lokið bólu­setn­ingu.

Óhætt er að segja að umræðan í íslenskum fjöl­miðlum hafi verið nokkuð eins­leit og því þótti mér mik­il­vægt að benda á nokkra punkta um þetta mik­il­væga mál­efni.“

Hann segir að fyrsta grund­vall­ar­spurn­ingin snúi að því hve mikil hætta er á að börn láti lífið ef þau sýkj­ast af Covid-19, og að þrjár nýlegar rann­sóknir frá Bret­landi varpi ljósi á stöð­una:

„Nið­ur­stöð­urnar sýna að af þeim börnum á aldr­inum 0-17 ára sem greindust með Covid-19 sýk­ingu lifðu 99.995% barna sýk­ing­una af; dán­ar­hlut­fall í öllu þýð­inu var tvö dauðs­föll per milljón börn – 1/500.000 – og hafa ber í huga að hlut­fallið var óháð því hvort börnin voru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og má því ætla að dán­ar­hlut­fall hraustra barna sé enn lægra.

Jón nefnir að „inn­lagnir á sjúkra­hús voru einnig sjald­gæfar, en meiri­hluti þeirra var hjá börnum með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Um helm­ingur barna sem smit­ast fá engin ein­kenni og eru langvar­andi veik­indi eftir sýk­ingu hjá börnum sjald­gæf. Þannig sýndi nýleg rann­sókn að aðeins 25 af 1379 – 1.8 pró­sent – börnum sem veikt­ust af Covid-19 voru enn með ein­kenni 56 dögum eftir sýk­ingu,“ og segir að „næst er rétt að spyrja sig hvaða áhætta fylgir því að bólu­setja börn við Covid-19? Í stuttu máli má segja að svarið liggi ekki enn fyrir. Líta má til rann­sókn­ar­innar sem Pfizer fram­kvæmdi til að fá mark­aðs­leyfi fyrir notkun bólu­efnis hjá 12-15 ára börnum. Rann­sóknin var gerð á rúm­lega 2000 börnum, þar sem 1131 barn fékk bólu­efnið og hin lyf­leysu. Rann­sóknin sýndi að skömmu eftir gjöf seinni skammts bólu­efnis höfðu 18 í lyf­leysu­hópnum sýkst en eng­inn í Pfizer hópnum og jafn­framt kom fram sterkt mótefna­svar í síð­ar­nefnda hópnum.“

Jón færir í tal að „Pfizer segir nið­ur­stöð­urnar jafn­gilda 100 pró­sent virkni, sem er vissu­lega rétt á þeim tíma­punkti, en lang­tíma­virkni mun svo koma í ljós síðar. Rann­sóknin er hins vegar alls ekki nægi­lega stór til að sýna fram á öryggi bólu­efn­is­ins í þessum hópi. Til þess þarf að gera rann­sókn hjá að minnsta kosti 100.000 börnum. Hvers vegna? Jú, vegna þess að við þurfum að læra af því sem gerð­ist hjá full­orðnum. Bólu­efnin voru talin vera „mjög örugg“ fyrir full­orðna eftir fyrstu rann­sóknir sem voru lagðar til grund­vallar til að fá mark­aðs­leyfi. En svo komu smám saman í ljós mjög sjald­gæfar auka­verk­anir eftir að bólu­efnin höfðu verið gefin millj­ónum ein­stak­linga um allan heim. Þar má nefna tölur frá CDC sem sýna bráða­of­næmi – tíðni 2-5 per milljón, TTS – Thrombosis with Thrombocytopenia Syndrome -með tíðni 39 stað­fest til­felli af 13 milljón skömmtum af Janssen, Guillain-Barré Syndrome 143 stað­fest til­felli eftir Janssen og 716 stað­fest til­felli af hjarta­vöðva­bólgu og goll­urs­húss­bólgu. Staðfest dauðs­föll eftir bólu­setn­ingu eru sem betur fer sjald­gæf eða um 6490 í Banda­ríkj­unum, 0.0019 pró­sent eða 1.9 af 100.000.

Hann nefnir einnig að „þessar síð­komnu auka­verk­anir sem komu í ljós eftir að mark­aðs­leyfi var veitt leiddu svo til þess að sum lönd stöðv­uðu bólu­setn­ingu ákveð­inna hópa með ákveðnum teg­undum bólu­efna, eins og til dæmis í Danmörku, Noregi og hér­lendis í til­felli AstraZeneca bólu­efn­is­ins.“

Af þess­ari stuttu yfir­ferð Jóns er óhætt að segja að áhættan sé sem betur fer mjög lítil á báða bóga:

„Hins vegar vitum við ekki ótví­rætt hvernig börn bregð­ast við bólu­setn­ingu við Covid-19. Tíðni hjarta­vöðva­bólgu og goll­urs­húss­bólgu er til að mynda ald­urstengd – það er að segja, algeng­ari hjá yngri karl­mönnum. Það sama á við um TTS sem er algeng­ara hjá konum yngri en 50 ára. Því er mögu­legt að tíðnin verði hærri í börnum, en það á eftir að koma í ljós. Einnig er mögu­legt að aðrar sér­tækar sjald­gæfar auka­verk­anir geti komið fram hjá börnum eftir bólu­setn­ingu.“

Á Íslandi hafa yfir 800 börn fengið stað­festa sýk­ingu af völdum Covid-19 og ekk­ert þeirra hefur þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús. Tölur erlendis frá sýna mjög lága dán­ar­tíðni óháð áhættu­þáttum og lang­vinn ein­kenni eftir sýk­ingu eru sjald­gæf:

„Það sem ger­ist við Covid-19 sýk­ingu hjá börnum er því nokkuð þekkt stærð. Hið til­tölu­lega nýja Delta afbrigði virð­ist að vísu vera meira smit­andi og því gætu börn smit­ast hraðar af því og fleiri börn gætu því verið smituð á sama tíma. Hins vegar eru ekki komin fram sann­fær­andi gögn um að þetta afbrigði sé hættu­legra börnum. Bólu­setn­ingar hindra ekki smit nægi­lega vel nú þegar Delta afbrigðið er alls­ráð­andi og bólu­efnin virð­ast því ekki geta gefið nægi­lega vernd til að mynda hjarð­ó­næmi. Þar með hlýtur sú rök­semd að bólu­setn­ing barna sé gerð til að vernda aðra eðli máls­ins sam­kvæmt að falla um sjálfa sig.“

Að mati Jóns er öryggi barna eftir bólu­setn­ingu óþekkt stærð og ekki víst að þar sé meiri ávinn­ingur en áhætta,“ og að mínu mati er því rétt að láta börnin njóta vafans og bíða með bólu­setn­ingu þeirra hér­lendis; sér­stak­lega hjá hraustum börnum án áhættu­þátta. Skyn­sam­leg­ast væri að fylgj­ast með þróun og gögnum erlendis frá þar sem byrjað er að bólu­setja börn á aldr­inum 12-15 ára og taka mið af gögn­unum þegar búið er að fylgja stórum hópi barna eftir í tals­verðan tíma. Þannig getum við ef til vill minnkað líkur á að sjald­gæfar auka­verk­anir sem koma ekki í ljós í byrjun geti skaðað börn hér­lendis, eins og gerð­ist í bólu­setn­ingum hjá full­orðnum. Ég hvet for­eldra til að íhuga málið vel og ræða við börnin sín áður en ákvörðun er tekin. Ákvörð­un­ina þarf fólk svo að byggja á eigin gildum og skoð­unum ásamt því að meta sínar eigin aðstæður, meðal ann­ars með til­liti til áhættu­þátta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina