Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gunnþór pönksafnvörður gefur sparnaðarráð: „Lánin á Íslandi fara alltaf öll til fjandans“

Gunnþór pönksafnvörður gefur sparnaðarráð: „Lánin á Íslandi fara alltaf öll til fjandans“
Gunnþór Sig­urðs­son pönk­safn­vörður

Neytandi vik­unnar er eng­inn annar en bassa­leik­ar­inn og pönk­safn­vörð­ur­inn Gunnþór Sig­urðs­son. Gunnþór stofn­aði hljóm­sveit­ina Q4U í byrjun 9. ára­tug­ar­ins og hefur verið bassa­leik­ari sveit­ar­innar síðan. Í dag er hann líka bassa­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar Hauswerk þar sem Daniel Pollock, fyrrum Utan­garðs­maður, spilar á gítar og Örvar Árdal leikur á trommur. Hann starf­aði í fjöl­mörg ár hjá Rík­is­sjón­varp­inu en tekur í dag á móti gestum frá öllum heims­hornum á Pönk­safn­inu í Banka­stræti núll og birtir frá­bærar myndir af gestum þess á Facebook síðu Pönk­safns­ins The Icelandic PUNK Museum | Facebook

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst?

Ég versla helst í Extra en það er bara af því að það er nálægt mér. Ég er ekki með stíft bók­hald yfir eyðsl­una í mat­inn því ég nenni yfir­leitt ekki að elda fyrir einn. Ég hef gripið í eitt­hvað fljót­legt en ég hef eitt­hvað skánað aðeins með aldr­inum með rusl­fæðið. Svo leyfi ég mér kjöt­súpu á Hressó.

Hvað með sparnað í mat­ar­inn­kaupum og hverju vilt þú breyta sem neyt­andi?

Ég vil sjá meira af líf­rænu plast­pok­unum. Þessi bréf­poka­menn­ing er algert sorp og alltaf að rifna.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

Labbaðu einn hring í 10-11! Þar kostar allt nán­ast því fimm­þús­und­kall sem er nátt­úru­lega galið. Ég rýni ekk­ert í verð­mið­ana og gríp það sem mig vantar en ef ég sé eitt­hvað fok­dýrt þá lætur maður það eiga sig. 

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er?

Nei. Covid er búið að vera að tak­marka vinn­una mína þannig að ég get ekki leyft mér að spara í bili.

Verð­tryggð lán, óverð­tryggð lán eða engin lán?

Lánin á Íslandi fara alltaf öll til fjand­ans. Ég tek ekki lán; ef ég á ekki fyrir því á ég ekki fyrir því. Maður tók þátt í lána­brjál­æð­inu fyrir hrun, tók bíla­lán og brenndi sig á því þannig að maður er ekk­ert að flýta sér að hoppa á lána­vagn­inn aftur.

Hvaða mál og mála­flokka telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á?

Mér finnst lág­mark að fólk geti lifað af lág­marks­launum en auð­vitað eiga lág­marks­laun að vera mann­sæm­andi.

Umhverf­is­vernd, skiptir hún þig máli?

Já, svo fram­ar­lega að hún fari ekki út í vit­leysu. Það eru öfga­hópar á sínum hvorum kant­inum og svo hópur af fólki í miðj­unni sem móðg­ast yfir öllu. Umhverf­is­vernd sem meikar sens er nátt­úru­lega trygg­ing fyrir fram­tíð­ina.

Mín kyn­slóð ólst upp við að það væri ósköp eðli­legt að allir væru á bíl með engum bíl­beltum, sígar­ettur voru reyktar á sjúkra­húsum og allir að anda að sér máln­ingu og asbesti. Það er kannski ekki hollt en fólk gat að minnsta kosti talað saman sem er skömminni skárra en þetta garg um öll mál.

Svo er það kannski frekar heilsu­tengt þetta með Covid spraut­urnar. En mér fund­ust ýmsar af þessum sam­sær­is­kenn­ingum áhuga­verðar en ég fór samt í sprautu því ég þarf að hugsa um afagutt­ana mína og svo vinn ég á stað þar sem margir ferða­menn koma. Ég get ekki bara hugsað um sjálfan mig.

Hann hefur týnst þessi gullni með­al­vegur en það er ann­að­hvort allt í botni eða allt í fári. 

Annað sem þú vilt taka fram?

Fólk mætti tala meira saman, augn­liti til augn­litis. Ég hef fylgst með þessu mann­lega fara dvín­andi und­an­farin tutt­ugu til þrjá­tíu árin og við erum öll orðin ein­hvern­veg­inn fjar­ræn.

Munn­söfn­uð­ur­inn á fólki á net­inu er alger við­bjóður, það er svo miklu auð­veld­ara að rífa kjaft við tölvu­skjá og við erum svo­lítið mikið í því.

Rafræn sam­skipti eru allt of ráð­andi og fyrir vikið erum við orðin meira ein­manna. Ég hef jafn­vel heyrt af fólki í kringum mig sem fannst Covid ekki hafa nein áhrif á sig því það hitti hvor­teðer aldrei neinn og forð­að­ist bara fólk.

Ég fór á kaffi­hús um dag­inn og sá þar upp­á­k­lætt fólk sem greini­lega var komið til að fagna ein­hverju en allir bara star­andi á sím­ana sína, stemmn­ing eða hitt þó heldur.

Það er voða­lega þægi­legt að stunda við­skipti með sím­anum bara, en ef maður þarf að hringja er maður númer þrjá­tíu í röð­inni eftir bið síðan á þar-síð­ustu öld.

Hér áður þótti flott að vera með SCART tengi á vid­eo­tæk­inu sínu en núna þarf fólk að vera með síma sem geta tekið myndir af fólki á tungl­inu og aldrei hefur verið hlustað á jafn mikið af góðri tón­list í jafn lélegum gæðum.

Ég sá þátt um dag­inn þar sem var fjallað um að í Japan er hægt að leigja sér fjöl­skyldu og fara á kaffi­hús þar sem allir segja þér að þú sért frá­bær. Þeir fíla þetta í botn því þarna geta þeir upp­lifað eitt­hvað mann­legt. 

Við eigum eftir að enda þarna. Við erum öll orðin eitt­hvað app.

Við erum hætt að sjá þetta fal­lega í þessu smáa sem er allt í kringum okkur.

Ég vona bara að við munum öll pinnið þegar vð förum til himna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við