Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stjörnulögmaðurinn Villi Vill sviptur titlinum: „Notaði ég hluta af þessu efni í þeirri góðu trú“

Stjörnulögmaðurinn Villi Vill sviptur titlinum: „Notaði ég hluta af þessu efni í þeirri góðu trú“
Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son Mynd: xxx / Valgarður Gíslason Valgarður

Stjörnu­lög­mað­ur­inn Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son var sviptur kandídatstitli sínum við Laga­deild Háskóla Íslands í sept­em­ber 2001 fyrir rit­stuld. Á sama tíma var aft­ur­kölluð sú ein­kunn sem hann fékk fyrir loka­rit­gerð­ina sem hann skirif­aði við deild­ina. Ástæðan er sú að hann not­aði efni frá öðrum í rit­gerð­ina sína, án þess að geta þess með nokkrum hætti.

Efnið sem Vil­hjálmur not­aði til­heyrði í raun stjórn­mála­fræð­ingnum Úlfari Hauks­syni og það var einmitt sá síð­ar­nefndi sem vakti athygli laga­deildar HÍ á stuld­inum. Hvorki var vísað til skrifa Úlfars í rit­gerð Vil­hjálms né hennar getið í heim­ilda­skrá þrátt fyrir að það mátti finna orð­rétta kafla úr rit­gerð stjórn­mála­fræð­ings­ins.

Frjáls notkun

Að loknum deild­ar­fundi var ákveðið að svipta lög­mann­inum titli sínum og ein­kunin fyrir loka­rit­gerð­ina aft­ur­kölluð. Aftur á móti fékk Vil­hjálmur tæki­færi til að skila inn annarri rit­gerð en hann bar fyrir sig að honum hafi verið send skrif Úlfars frá þriðja aðila með þeim skila­boðum að notkun efn­is­ins væri fjáls.

Textinn sem Vil­hjálmur lög­maður nýtti sér var í raun úr ræðu Úlfars á mál­þingi ESB í Brussel um sjáv­ar­út­vegs­stefnu sam­bands­ins. Í kvört­un­ar­bréfi Úlfars til laga­deild­ar­innar sagði hann meðal ann­ars:

„Vil­hjálmi ætti því að hafa verið full­kom­lega ljóst að text­inn væri eftir mig og að ég hefði flutt hann opin­ber­lega.“

Vil­hjálmur Hans lög­fræð­ingur var því sviptur kandídatstitli sínum árið 2001 fyrir rit­stuld. Laga­deild Háskóla Íslands aft­ur­kall­aði ein­kunn sem hann fékk fyrir loka­rit­gerð sem hann skrif­aði við deild­ina. Deild­ar­fundur laga­deildar sam­þykkti hins vegar að heim­ila Vil­hjálmi að skrifa nýja rit­gerð við laga­deild.

Stuldur en ekki fall

Sigurður G. Guð­jóns­son lög­maður fór með mál Vil­hjálms gagn­vart laga­deild­inni og sagði hann stjórn­sýslu HÍ ein­kenni­lega. Vil­hjálmur hafi stað­ist öll próf að mati kenn­ara og því hafi það verið óskilj­an­legt að ein­kunn hans við laga­deild­ina hafi verið aft­ur­kölluð.

Sjálfur svar­aði Vil­hjálmur ásök­un­unum á sínum tíma og vís­aði þar til álits umsjón­ar­kenn­ara síns og próf­dóma í þá veru að þátt fyrir hnökra lög­manns­ins að geta ekki heim­ilda hafi þeir talið málið ekki leiða til falls Vil­hjálms við laga­deild­ina.

Eins og áður sagði gaf Vil­hjálmur þær skýr­ingar á rit­stuld­inum að hann hefði feng­ist send gögn frá þriðja aðila sem hafi tekið það skýrt fram að vera ekki getið sem heim­ild­ar­manns. Í þeim gögnum hafi hins vegar leynst áður­nefnd ræða Úlfars. Við skulum gefa Vil­hjálmi orðið:

„Það við­hengi, eins og hin, var þó algjör­lega ómerkt. Tveimur mán­uðum síðar not­aði ég hluta af þessu efni ásamt óðrum heim­ildum við gerð kandídats­rit­gerðar minnar í
þeirri góðu trú að Aðal­steinn væri höf­undur þess. Síðar kom í ljós að hluti af þessum texta hafði áður verið birtur opin­ber­lega. Um það var mér algjör­lega ókunn­ugt. Þegar mér varð ljóst hvernig málum var háttað hafði ég þegar sam­band við Úlfar og skýrði honum frá mála­vöxtum. Ég bað hann afsók­unar á þessum mis­tökum mínum og itrek­aði við hann að mér hefði verið ókunn­ugt um upp­runa efn­is­ins.“

Svona hljóð­aði sam­þykkt laga­deild­ar­innar á sínum tíma þegar ákveðið var að svipta Vilhjálm titl­inum:

„Deild­ar­fundur sam­þykkir, að ein­kunn fyrir kanídats­rit­gerð Vil­hjálms Hans Vil­hjálms­sonar, er nefn­ist „Um íslenska fisk­veiði­stjórn­kerfið og sjáv­ar­út­vegs­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins og stöðu kvóta­kerf­is­ins við hugs­an­lega aðild Íslands að ESB“, sem hann hlaut 18. maí 2000, ásamt við­ur­kenn­ingu deild­ar­innar á að hann hafi lokið emb­ætt­is­prófi, sæti aft­ur­köllun frá deg­inum í dag að telja. Sú ákvörðun haggar ekki gildi þeirra ein­kunna, er hann hlaut við deild­ina í öðrum náms- og próf­greinum. Jafn­framt sam­þykkir deild­ar­fundur, að veit­ing lær­dóms­tit­ils­ins „candidatus juris“ er Laga­deildin veitti honum 24. júní 2000 að afloknu emb­ætt­is­prófi hans, sæti aft­ur­köllun frá sama tíma. Þá sam­þykkir deild­ar­fundur fyrir sitt leyti, að heim­ila honum að rita kandídats­rit­gerð að nýju enda full­nægi hann almennum skil­yrðum um skrán­ingu og önnur atriði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina