Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Við höfum brugðist fólki í kynlífsvinnu og ættum að tryggja því hér aðgang að sjóðum og styrkjum“

„Við höfum brugðist fólki í kynlífsvinnu og ættum að tryggja því hér aðgang að sjóðum og styrkjum“

Oktavía Hrund Jóns­dóttir, fram­bjóð­andi Pírata í Reykja­vík, segir að „skýrsla Front­line Def­end­ers – FLD – sem birt var í gær um rétt­indi fólks í kyn­lífs­vinnu er skýr: Þau eru alþjóð­leg mann­rétt­indi og þeim er hættu­lega ábóta­vant.“

Hún bendir á að í grein­inni megi finna þetta: „Stefnur okkar eiga að vera byggðar á stað­reyndum, ekki sið­boðum.”

„Þetta voru loka­orð Dr. Tlaleng Mofokeng, sér­staks full­trúa fram­kvæmda­stjóra SÞ á sviði réttar til heið­brigðis, í erindið sínu á útgáfu­við­burði skýrsl­unnar í gær.“

Og bætir við að „þetta er erlendis ekki hér á Íslandi.”

Oktavía spyr „hvernig snertir skýrsla FLD Ísland? Skýrsla sem byggð er á rann­sóknum í 20 löndum yfir fjög­urra ára tíma­bil og nær til 350 við­mæl­enda? Hún gerir það því við sem þjóð höfum gjör­sam­lega brugð­ist fólki í kyn­lífs­vinnu á Íslandi. Hin svo­kall­aða sænska leið hefur reynst hættu­leg auk þess sem hana skortir til­finn­an­lega á rétt­inda­vernd fólks í kyn­lífs­vinnu og úrræði á þeirra for­sendum. Við höfum byggt okkar stefnu á sið­boðum, ekki á stað­reyndum eða for­sendum fólks í kyn­lífs­vinnu.“

Oktavía hefur barist „hátt í tvo ára­tugi fyrir mann­rétt­indum.; mik­il­væg­asta lexían sem ég hef lært er að það er ekki hægt að berj­ast ein­ungis fyrir þeim rétt­indum sem eru þægi­leg, sem flest eru sam­mála um eða sem bara snerta okkur sjálf. Til þess að tryggja að rétt­indi þeirra sem vinna kyn­lífs­vinnu séu raun­veru­lega til staðar þarf að setja þeirra eigin for­sendur í for­gang.“

Og spyr:

„Hvað þurfum við að gera? Skýrslan sem birt var í gær tekur á þáttum sem við vitum að eru áskor­anir á Íslandi rétt eins og ann­ars staðar. Hér má nefna afglæpa­væð­ingu kyn­lífs­vinnu, réttar­ör­yggi fólks í kyn­lífs­vinnu og aðgengi þeirra að heil­brigð­is­þjón­ustu, úrræði fyrir fólk í kyn­lífs­vinnu sem jafn­framt er þolendur mansals og ofbeldis, sem þjást í fátækt eða hafa tví­þættan geð- og fíkni­vanda. Enn­fremur er lög­reglan áhyggju­efni hvað varðar öryggi og rétt­ar­stöðu fólks í kyn­lífs­vinnu og lagt til að ríki skuld­bindi sig opin­ber­lega til að fram­fylgja strang­ari siða­reglum og bjóða upp á þjálfun fyrir lög­reglu undir for­ystu fólks í kyn­lífs­vinnu.“

Oktavía ljær máls á því að í skýrsl­unni sé komið inn á að koma þurfi upp sér­tækum, óháðum úrræðum sem taki að sér kvart­anir og rann­sóknir á brotum gegn fólki í kyn­lífs­vinnu; úrræðum þar sem öryggi og nafn­leynd þeirra sem nýta sér þau eru tryggð.

„Skýrslan styður enn fremur við kröfur Femínista­fé­lags Pírata um rétt­indi fólks í kyn­lífs­vinnu; að það eigi skilið laga­legt umhverfi þar sem því er ekki stefnt í hættu – þjón­ustu og vernd af hálfu lög­reglu án þess að ótt­ast mis­notkun eða áreiti; fullt og jafnt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu án jað­ar­setn­ingar; sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt án kúg­unar og að ofbeldi gagn­vart því sé útrýmt.“

Nefnir að „næstu skref fela í sér afglæpa­væð­ingu. Afglæpa­væð­ing kyn­lífs­vinnu í raun- og netheimum er fyrsta skrefið. Við getum gert það á hátt sem tryggir vernd þeirra sem starfa á þessu sviði. Því til við­bótar eru í lok skýrsl­unnar ráð­legg­ingar um svæð­is­bundnar ráð­staf­anir. Í ljósi sterkra tengsla Íslands við ríki Evr­ópu­sam­bands­ins leyfi ég mér að tengja ráð­legg­ingar til ESB við Ísland. Meðal þeirra er að: Funda á lands­vísu með fólki í kyn­lífs­vinnu og taka til­lit til sér­stakra þarfa þeirra. Eins og bent er á þarf vit­und­ar­vakn­ingu í mál­flutn­ingi stjórn­valda, stuðn­ing við aðgang fólks í kyn­lífs­vinnu að rík­is­stofn­unum og að veita neyðar- eða verk­efna­styrk til vernd­ar­þarfa, svo sem öruggra flutn­inga, læknis- og dóms­mála­gjalda og öruggt fund­ar­rými; tryggja neyð­ar­fjár­mögnun – þar með talið til kjarna­starf­semi sem á sér stað í Covid19.“

Og að „tryggja jafnan aðgang fólks í kyn­lífs­vinnu að sjóðum og styrkjum; tryggja að fjár­mögnun sem varðar fólk í kyn­lífs­vinnu sé úthlutað í sam­starfi við það og félaga­sam­tök sem berj­ast fyrir rétt­indum þess.“

Oktavía von­ast til þess að Ísland taki for­ystu í þessum málum, „að við brjótum staðal feðra­veld­is­ins og komum fram við fólk af virð­ingu og á þeirra for­sendum með því að afglæpa­væða kyn­lífs­vinnu og betrumbæta rétt­indi og rétt­ar­um­hverfi þeirra sem vinna þessa vinnu. Sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur ein­stak­lings er grunn­gildi sam­fé­lags­ins og til­raunir til að hafa vit fyrir fólki heldur iðu­lega jað­ar­settu fólki á jaðr­inum þrátt fyrir aðrar fyr­ir­ætl­anir.

Ef þú ert að lesa þetta náðir þú til loka pistils um erfitt mál­efni. Ég vil sér­stak­lega þakka fyrir það því það rót­tæk­asta sem við getum gert er að eiga sam­töl um erfið mál, hlusta, fræð­ast og breyta til fram­tíðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina