Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Birgir: „Ný­frjáls­hyggja, kapí­tal­ismi, ójöfnuður og versn­andi lífs­kjör? Stenst ekki skoðun“

Birgir: „Ný­frjáls­hyggja, kapí­tal­ismi, ójöfnuður og versn­andi lífs­kjör? Stenst ekki skoðun“
Birgir Ármanns­son.

Alþing­is­mað­ur­inn Birgir Ármanns­son er for­maður þing­flokks Sjálf­stæðis­flokks­ins og ritar grein um það sem hann kallar „Íslands­meist­ara­mótið í sós­í­al­isma“ og bætir reyndar spurn­inga­merki aftan við fyr­ir­sögn­ina.

Hann telur að „bar­átt­an vegna kom­andi kosn­inga er rétt að hefj­ast og ekki fylli­lega komið fram hvaða mál­efni það verða, sem mesta at­hygli munu fá af hálfu flokk­anna. Sumt er þó farið að skýr­ast, meðal ann­ars það að all­nokkr­ir flokk­ar og fram­bjóð­end­ur á vinstri vængn­um virð­ast telja það væn­legt til ár­ang­urs að stað­setja sig sem lengst til vinstri og kenna sig jafn­vel við ómeng­aðan sósí­al­isma.“

Hvað er ómeng­aður sós­í­al­ismi? Hvaða ríki eru kap­ít­al­ísk án nokk­urra áhrifa af sós­í­al­isma? Kannski Saudi-Arabía? Allavega ekki Banda­ríkin, hið útópíska ríki kap­ít­al­isma og nýfrjáls­hyggju.

En aftur að Birgi og mál­flutn­ingi hans:

Hann segir að hluta til „birt­ist þessi vinstri sveifla í stefnu­mál­um við­kom­andi flokka, en þó enn frek­ar í upp­hróp­un­um og orða­vali, sem oft á tíðum ber meiri keim af stjórn­má­laum­ræðu frá miðri síð­ustu öld held­ur en þeim áhersl­um sem ríkj­andi hafa verið í stjórn­má­laum­ræðu á Vest­ur­lönd­um síð­ustu 30 árin eða svo,“ og virð­ist finn­ast hálf hjá­kát­legt að „mál­flutn­ing­ur­inn snýst um stétta­bar­áttu, ör­eiga og auð­kýf­inga, of­ur­ríka fá­menna yf­ir­stétt sem merg­sýg­ur snauða alþýð­una, andúð á at­vinnu­rekstri í einka­eigu og of­ur­trú á rík­is­lausn­um og op­in­ber­um rekstri.“

Líkast til eru þetta atriði sem Birgir hefur ekki reynt á eigin skinni þótt erfitt sé að full­yrða það með nokk­urri vissu. En hann heldur áfram að hjakka í sama far­inu:

„Birt­ing­ar­mynd­irn­ar eru mis­mun­andi en und­ir­tónn­inn sá sami; til að bjarga al­menn­ingi úr helj­ar­greip­um kapí­tal­ism­ans þarf að umbreyta sam­fé­lag­inu í anda sós­íal­ískr­ar hug­mynda­fræði. Virðist þá litlu skipta, að all­ar til­raun­ir til að byggja þjóð­skipu­lag á þeim grunni hafa endað með skelf­ingu.“

Er það svo, Birgir? Þeir sem hafa örlít­inn snefil af þekk­ingu á mann­kyns­sögu vita að ekk­ert stjórn­mála­kerfi er full­komið; vita einnig að sós­íal­ísk verka­lýðs­bar­átta hafði og hefur haft góð áhrif á lönd eins og Svíþjóð, Kanada, Portúgal, Banda­ríkin og ótelj­andi fleiri, og færði alþýð­unni þar aukin rétt­indi og bætt lífs­kjör; nokk­urt öryggi og rödd – þó þetta séu ekki ríki þar sem „ómeng­aður sós­í­al­ismi“ ríki sem „endað hefur með skelf­ingu.“

Stór orð frá manni sem hefur verið trúr og dyggur þjónn kap­ít­al­ism­ans frá blautu barns­beini og mögu­lega verið með þverslaufu við skyrtu frá því að sett var á hann fyrsta bleyjan með smá barnapúðri.

Birgir heldur ótrauður áfram að ausa úr visku­brunni sínum, fullum af dýpt og náunga­kær­leik:

„Flokk­ur­inn, sem fremst­ur fer í þess­um mál­flutn­ingi, kenn­ir sig feimn­is­laust við sósí­al­isma en fleiri leita á sömu mið. Sér­stak­lega hef­ur hrað­ferð Sam­fylk­ing­ar­inn­ar til vinstri vakið at­hygli en aug­ljóst er að sá flokk­ur lít­ur á Sósí­al­ista­flokk­inn sem harð­vítug­an sam­keppn­isað­ila. Vinstri græn vilja svo auð­vitað minna á sig í þessu sam­bandi og mun það sjálf­sagt fær­ast í auk­ana eft­ir því sem nær dreg­ur kosn­ing­um. Bilið milli Pírata og ann­arra flokka á vinstri vængn­um hef­ur að mörgu leyti verið að stytt­ast jafnt og þétt á und­an­förn­um árum en for­vitni­legt verður að sjá hvort þeir blanda sér nú af full­um krafti í keppn­ina um það hver sé mesti sósí­alist­inn.“

Og bætir við:

„Að sumu leyti er allt í lagi fyr­ir okk­ur, sem nálg­umst stjórn­mál­in úr ann­arri átt, að ís­lensk­ir vinstri menn gefi sig alla í þessa Íslands­meist­ara­keppni í sósí­al­isma. Það er gott fyr­ir alla að skerpa á hug­mynda­fræð­inni og rifja upp að stjórn­mál snú­ast um mis­mun­andi hug­sjón­ir og val milli ólíkra sjón­ar­miða og raun­veru­legra val­kosta en ekki bara um tækni­leg­ar út­færsl­ur eða vin­sælda­keppni ein­stak­linga. Það að upp­vakn­ing­ar sósí­al­ism­ans eru komn­ir á stjá gef­ur okk­ur, sem telj­um okk­ur hægra meg­in á hinu póli­tíska lit­rófi, til­efni til að skerpa á okk­ar eig­in mál­flutn­ingi og rifja upp á hvaða hug­mynda­fræði­lega grund­velli við stönd­um.“

Og bætir enn við, ótrauður, nán­ast óstöðv­andi:

„Gall­inn við vinstri sveiflu vinstri flokk­anna er hins veg­ar einkum auk­in harka í umræð­unni og það sem stjórn­mála­fræð­ing­ar tala um sem skaut­un í stjórn­mál­um, sem fel­ur í sér að bilið milli flokka eykst og get­ur haft þær af­leið­ing­ar að sí­fellt erf­ið­ara verði að ná sæmi­legri sam­stöðu um mála­miðlan­ir, sem alltaf eru nauð­syn­leg­ar í stjórn­mál­um, ekki síst í fjöl­flokka­kerfi eins og við búum við. Stjórn­má­laum­ræða, sem bygg­ir á ófrá­víkj­an­leg­um skil­yrðum, úr­slita­kost­um, kröf­um um allt eða ekk­ert og úti­lok­un mála­miðl­ana er ekki gæfu­leg þegar kem­ur að úr­lausn raun­veru­legra við­fangs­efna við stjórn lands­ins eða laga­setn­ingu á Alþingi. Það er nefni­lega eitt að hafa skýr stefnu­mál og hug­sjón­ir og annað að vera svo ósveigj­an­leg­ur að eng­ar mála­miðlan­ir komi til greina. Menn mega ekki gleyma því að stjórn­mál eru list hins mögu­lega og til þess að ná ár­angri get­ur verið nauð­syn­legt að setja ágrein­ing til hliðar, slá af ýtr­ustu kröf­um og finna frek­ar það sem sam­ein­ar held­ur en það sem sundr­ar.“

Hann telur upp fleiri galla og talar um skakka mynd:

„En það eru fleiri gall­ar, sem fylgja stór­yrða­kapp­hlaupi vinstri manna um þess­ar mund­ir. Þannig er það áhyggju­efni, að sú mynd sem dreg­in er upp af þjóðfé­lagi okk­ar er á marg­an hátt skökk og í litl­um tengsl­um við raun­veru­leik­ann. Mál­flutn­ing­ur sumra þeirra há­vær­ustu úr röðum vinstri manna er stund­um á þá leið, að hér hafi á und­an­förn­um árum verið við lýði óheft ný­frjáls­hyggja, hreinn kapí­tal­ismi, grimm­ur niður­skurður í op­in­berri þjón­ustu, vax­andi ójöfn­uður og versn­andi lífs­kjör alls al­menn­ings. Ekk­ert af þessu stenst skoðun. Hvort sem litið er til þró­un­ar hér inn­an­lands eða sam­an­b­urðar við ná­granna­lönd­in kem­ur skýrt í ljós að ekk­ert gef­ur til­efni til full­yrð­inga af þessu tagi. Heild­ar­um­svif hins op­in­bera, rík­is og sveit­ar­fé­laga, hafa frem­ur vaxið en minnkað á und­an­förn­um árum. Ætti sú þróun reynd­ar að vera meira um­hugs­un­ar­efni fyr­ir okk­ur sem stönd­um hægra meg­in en þá sem tala fyr­ir sósí­al­isma.

Þá er til þess að líta, að jöfn­uður er meiri hér á landi en víð­ast hvar í helstu sam­an­b­urð­ar­lönd­um, hvort sem litið er til tekna eða eigna. Lífs­kjör alls al­menn­ings hafa líka farið batn­andi og kaup­mátt­ur auk­ist jafnt og þétt. Tíma­bundn­ir erf­ið­leik­ar vegna Covid-19 virð­ast ekki breyta þess­ari heild­ar­mynd.“

Birgir við­ur­kennir þó að „sam­fé­lag okk­ar er svo sann­ar­lega ekki full­komið og margt má bæta, en sú mynd af stöðu mála, sem tals­menn sósí­al­isma úr ýms­um flokk­um hafa haldið á lofti, er víðs fjarri raun­veru­leik­an­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina